Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 11
Senter
Ertu í söluhugleiðingum ?
Vertu í sambandi og ég sel fyrir þig.
Sími 695-3502
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími: 695 3502
sms@remax.is
Umsjónarmaður Hjálmakletts
mennta- og menningarhúss Borgarbyggðar
Borgarbyggð og Menntaskóli Borgarfjarðar auglýsa eftir umsjónarmanni fyrir
Hjálmaklett -mennta- og menningarhús Borgarbyggðar.
Í Hjálmakletti er Menntaskóli Borgarfjarðar með starfsemi sína, þar er glæsilegur
menningarsalur og fleiri minni rými. Húsið er bæði í langtíma- og skammtímaleigu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Í starfinu felst samstarf og þjónusta við viðskiptavini sem leigja húsið ýmist til lengri
eða skemmri tíma, starfsmenn og nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar. Um er að
ræða 60% starf á virkum dögum og er tímabundið til eins árs með möguleika á fram-
tíðarráðningu. Í starfinu felst einnig tilfallandi kvöld- og helgarvinna sem stjórnast af
aðsókn að húsinu og tímasetningu viðburða sem haldnir eru.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið felast í umsjón og eftirliti með:
Húsnæði Hjálmakletts, umhverfi þess og almennum búnaði•
Tæknibúnaði, vatns-, hita-, rafmagns- frárennslis- og loftræstibúnaði•
Almennum þrifum•
Skammtíma útleigu og utanumhald leigusamninga, undirbúningi, framkvæmd og •
frágangi vegna viðburða
Markaðssetningu á notkun hússins•
Almennu minni háttar viðhaldi og samskiptum við Eignasjóð Borgarbyggðar vegna •
stærri viðhaldsverkefna
Menntunar og hæfniskröfur:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi•
Tækniþekking vegna búnaðar hússins•
Almenn tölvuþekking•
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð•
Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum•
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags ásamt árangurstengdum launum vegna tilfallandi leigu
og markaðssetningar hússins. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni
og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2019. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Ólafsson
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs í síma 433-7100.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Borgarbyggð á
netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Sankti jóhannesarstúkan Akur á
Akranesi hélt opið hús síðastlið-
inn laugardag í tilefni af 100 ára af-
mæli frímúrara á íslandi. Það voru
þrír meðlimir reglunnar klæddir
kjólfötum eins og hefð er fyrir, sem
tóku á móti gestum. Fólk var boð-
ið velkomið að kynna sér starfsemi
frímúrara ásamt því að þiggja kaffi-
sopa og vöfflur. Á myndvarpa inni
í sal stúkunnar birtust myndir frá
starfseminni í gegnum tíðina.
Víða á landinu verður aldar-
afmælis íslensks frímúrarastarfs
minnst með einum eða öðrum
hætti á árinu, meðal annars með
sérstökum afmælisfundum, kvik-
mynd sem frumsýnd var í Hörpu í
vor og öll fimmtán stúkuhús lands-
ins, þar á meðal Sankti jóhannesar-
stúkan Akur á Akranesi, halda opið
hús hluta úr degi og kynna starf-
semi sína á árinu.
glh
Fjölskylduhátíðin Náttúrubarnahá-
tíð á Ströndum verður haldin í
þriðja skiptið helgina 19.-21. júlí
næstkomandi. „Á hátíðinni fá allir
gestir, bæði börn og fullorðnir, kjör-
ið tækifæri til að finna eða rækta sitt
innra náttúrubarn,“ segir í tilkynn-
ingu. Það er Náttúrubarnaskólinn
sem stendur fyrir hátíðinni. „Nátt-
úrubarnaskólinn stendur fyrir fjöl-
breyttum námskeiðum yfir sumar-
tímann og miðar að því að fræða
börn á öllum aldri um ólíkar hlið-
ar náttúrunnar á námskeiðum sem
snúast um útivist og náttúruskoð-
un þar sem þau læra með því að sjá,
snerta og upplifa viðfangsefnin.“
Náttúrubarnaskólinn er starf-
ræktur innan vébanda Sauðfjárset-
ursins í Sævangi rétt sunnan við
Hólmavík, og þar verður hátíð-
in haldin. Dagrún Ósk jónsdóttir
þjóðfræðingur hefur séð um nátt-
úrubarnaskólann frá upphafi og
skipulagningu hátíðarinnar. „Þetta
gengur bara frábærlega og við erum
æsispennt, eins og alltaf,“ segir
Dagrún Ósk. „Við reynum alltaf að
hafa fjölbreytta dagskrá sem miðast
að því að fræðast um náttúruna og
hafa gaman og það tókst bara mjög
vel, þó ég segi sjálf frá. Svo fengum
við veglega styrki frá Barnamenn-
ingarsjóði og Uppbyggingasjóði
Vestfjarða sem gerir okkur kleift að
hafa ókeypis aðgang að hátíðinni í
ár,“ bætir Dagrún við.
Hátíðin hefst á föstudegi með
fuglaskoðun og síðan setningarat-
höfn og veðurgaldri. „Veðurgald-
urinn á að kalla fram sólskin og
gott veður, þetta er svona hálfgerð-
ur dans. Hann hefur ekki brugð-
ist okkur ennþá enda allt uppfullt
af göldrum hérna á Ströndunum,“
segir Dagrún og hlær. Um helgina
verða svo margir fjölbreyttir við-
burðir sem flétta saman skemmt-
un og fróðleik, til dæmis verður
jónsi í Svörtum fötum með tón-
leika á laugardagskvöldinu. „Við
fáum góða gesti úr Sirkus íslands
á sunnudeginum og svo verður
náttúrubarnakviss og töfrasýning á
föstudeginum. Einnig verða smiðj-
ur tengdar útivist, hægt að fara í
gönguferðir, á hestbak, í náttúru-
jóga og sjósund. Það verða drauga-
og tröllasögur í Sagnahúsinu, leik-
hópurinn Miðnætti, Stjörnu-Sævar
kemur í heimsókn og margt fleira.
Ég hvet sem flesta til að kynna sér
dagskrána og koma og leika sér með
okkur. Það er ótrúlega dýrmætt að
fara út og leika sér saman börn og
fullorðnir og skapa skemmtilegar
minningar,“ segir Dagrún að lok-
um. Hægt er að kynna sér hátíðina
á Facebook eða heyra í Dagrúnu í
síma 661-2213.
mm
Fólk gat kynnt sér starfsemi reglunnar ásamt því að þiggja veitingar.
Frímúrarar héldu opið
hús í tilefni aldarafmælis
Þessir félagar frímúrarareglunnar tóku á móti gestum sem mættu á opið hús. F.v.
Magnús Ólafs Hanson, Stefnir Örn Sigmarsson og Hlynur Sigurdórsson.
Náttúrubarnahátíð á Ströndum