Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201912
Flákinn er um 24 sjómílur norðan af Ólafsvík.
„Ég hafði einu sinni keyrt hring-
inn út frá Stykkishólmi og var ekk-
ert að stoppa og skoða landslagið
þá. Ég meira að segja ók held ég
Fróðarheiði og svo til baka,“ seg-
ir Þórhildur Sif Loftsdóttir um
hversu vel hún þekkti Snæfells-
nes áður en hún kom til starfa fyr-
ir Svæðisgarðinn Snæfellsnes núna
í sumar. Þórhildur er alin upp í
Biskupstungum en hefur búið á
Akureyri síðustu tvö ár og stund-
ar nám í ferðamálafræði við Há-
skólann á Hólum. Á Mannamóti
Markaðsstofa landshlutanna hitti
Þórhildur Kjartan Bollason, lekt-
or við Háskólann á Hólum, sem
einnig starfar fyrir Svæðisgarðinn
Snæfellsnes. „Ég var þarna með
nokkrum bekkjarfélögum mínum
og við hittum Kjartan og spjöll-
uðum aðeins við hann. Hann var
þarna að leita að nemum til að
koma í verknám hjá Svæðisgarð-
inum í sumar og ég ákvað bara að
slá til. Ég var ekki með nein sér-
stök plön fyrir sumarið og á Hól-
um stendur til boða að taka starfs-
nám sem lokaverkefni og ég var
alveg til í að gera það eins og að
skrifa BA ritgerð,“ segir Þórhild-
ur um það hvernig leið hennar lá á
Snæfellsnes.
Margt að sjá
á Snæfellsnesi
Þórhildur er með aðstöðu í Gesta-
stofu Snæfellsness á Breiðabliki þar
sem hún tekur á móti ferðamönnum
ásamt samstarfsfólki sínu. „Ég geng
í rauninni í öll verk við Gestastof-
una en er líka með spurningakönn-
un fyrir ferðamenn og fleira. Gesta-
stofan opnaði bara núna í sumar og
er enn að vaxa og starfsemin þar
að mótast. Mitt hlutverk er í raun-
inni að vera hér og læra af Kjartani
og Ragnhildi, framkvæmdastjóra
Svæðisgarðsins. Fyrsta mánuðinn
var mest áhersla lögð á að kynn-
ast Snæfellsnesi en eins og ég segi
þekkti ég svæðið ekki vel áður en
ég kom hingað,“ segir Þórhildur og
brosir. „En það hefur líka að mínu
mati gefið mér einstaka sýn á Snæ-
fellsnes, ég sé það í rauninni eins
og ferðamaðurinn, sem alveg nýjan
stað,“ bætir hún við.
Spurð hvernig hennar sýn á Snæ-
fellsnes sé sem aðkomumanneskja
er hún ekki lengi að svara. „Það
fyrsta sem maður sér er að nátt-
úran á Snæfellsnesi er undurfögur
og kemur svo mikið á óvart. Maður
sér eitthvað nýtt í hvert skipti sem
maður fer um Snæfellsnes og það
er endalaust hægt að skoða. Þetta
er ekki staður sem ferðamenn ættu
að keyra í gegnum á einum degi,
það er of mikið að sjá og það þarf
allavega þrjá til fjóra daga til að
hægt sé að skoða svæðið almenni-
lega. Snæfellsnes ætti ekki að vera
útúrdúr heldur áfangastaður fyr-
ir ferðamenn. Það er svo margt
skemmtilegt og áhugavert í boði.
Náttúran hér er í rauninni bara al-
veg sérstök upplifun sem virkjar öll
skynfærin okkar. Það er einstakt að
vera út í náttúrunni á Snæfellsnesi,
sjá fegurðina, finna lyktina og anda
að sér loftinu,“ segir Þórhildur og
lygnir aftur augunum smá stund.
„Á Snæfellsnesi eru ekki bara allir
fallegu ferðamannastaðirnir, held-
ur eru bæirnir á Snæfellsnesi líka
áfangastaðir sem fólk verður að
skoða. Þetta eru allt svo ólíkir bæir
með ólíkum veitingastöðum og af-
þreyingu og hver og einn svo fal-
legur á sinn hátt. Ég fæ ekki nóg
af því að skoða Snæfellsnes,“ bætir
hún brosandi við.
Fækkun ferðamanna
ekki neikvæð
En hvað er það sem ferðamennirnir
eru helst að koma til að sjá á Snæ-
fellsnesi? „Þeir sem koma á Gesta-
stofuna vita það ekki. Þangað koma
ferðamenn til að spyrja okkur hvað
þeir ættu að sjá og við leiðbeinum
þeim áfram. Við erum í samstarfi
við ferðaþjónustuaðila á svæðinu og
Markaðsstofu Vesturlands um hvert
við ættum að vísa ferðamönnum en
við viljum aðeins stjórna umferð-
inni eftir því hvaða svæði eru und-
ir það búin að taka á móti fólkinu,“
segir Þórhildur. Eins og mikið hef-
ur verið talað um hefur orðið fækk-
un ferðamanna á íslandi í sumar
miðað við í fyrra og er Snæfellsnes
þar engin undantekning. Þórhild-
ur segist ekki sjá það sem neikvæða
þróun heldur upplagt tækifæri fyrir
ferðaþjónustuaðila að taka skref til
baka og gera enn betur fyrir næsta
sumar. „Við þurfum að gæta þess að
ferðamönnum fjölgi ekki það hratt
að við missum tökin. Við verðum
að gefa okkur tækifæri til að ná ut-
anum alla og gæta að uppbyggingu
svo við lendum ekki í sömu stöðu
og til dæmis við Gullfoss og Geysi.
Þar eru þessar fallegu perlur lands-
ins sem hafa þurft að þola mikinn
ágang ferðamanna. Uppbygging á
svæðinu hefur ekki verið nægilega
hröð til að taka á móti öllu þessu
fólki og nú sést það á landinu. Þetta
viljum við forðast á Snæfellsnesi,“
segir Þórhildur. „Það er mikilvægt
að ferðaþjónustuaðilar, ferðamenn,
bændur, sjómenn og aðrir íbúar geti
allir lifað í sátt,“ bætir hún við.
arg
Blíða á miðunum
Það var óvenjulega stillt og fallegt
veður á miðunum norðan við Snæ-
fellsnes á þriðjudaginn í síðustu
viku. Alfons Finnsson fréttaritari
var á strandveiðum og fagnaði því
að fá einn svona blíðviðrisdag til
tilbreytingar. „Ég var á Flákanum,
um 24 sjómílur norður af Ólafsvík.
Aflinn var blandaður, en þó betri en
hann er nær landi. Menn hafa því
verið að sigla þetta upp í 45 sjómíl-
ur til að komast í betri fisk,“ sagði
Alfons. Veiðimenn hafa einnig ver-
ið að taka eftir makríltorfum á mið-
unum, einkum suður af Svörtuloft-
um. „Vestan við Flákann hafa menn
einnig verið að fá makríl á krókana
þannig að hann er mættur á svæð-
ið,“ sagði Alfons.
mm
Koppalogn á Flákanum.
„Fyrst og fremst er náttúran
á Snæfellsnesi undurfögur“
-segir Þórhildur Sif Loftsdóttir nemandi í ferðamálafræði sem starfar í sumar við upplýsingagjöf
„Til okkar í nýju upplýsingamiðstöðina í Breiðabliki koma ferðamenn til að spyrja hvað þeir ættu að sjá og skoða og við
leiðbeinum þeim áfram. Ljósm. úr umferðinni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ljósm. gó.
Þórhildur Sif Loftsdóttir þekkti Snæfellsnes lítið þegar hún kom þangað í verknám hjá Gestastofu Snæfellsness í sumar. Hún
segir Snæfellsnes stað sem ferðamenn ættu að gefa sér góðan tíma til að skoða. Ljósm. arg.