Skessuhorn - 10.07.2019, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 17
Við upphaf Hvanneyrarhátíðar á
laugardaginn flutti Ragnheiður I.
Þórarinsdóttir rektor Landbún-
aðarháskóla íslands ávarp og setti
hátíðina. Gat hún þess að í ár er
fagnað 130 ára afmæli búnaðar-
fræðslu á Hvanneyri. „En það eru
fleiri merk tímamót sem við höld-
um upp á í ár. Það eru 15 ár frá því
að Landbúnaðarháskóli íslands
tók til starfa í núverandi mynd, 80
ár síðan garðyrkjunám að Reykj-
um í Ölfusi hófst, tíu ára afmæli
Yndisgróðurs og 70 ár frá því
Ferguson kom til landsins.“
Ragnheiður rakti ástæðu þess
að búnaðarskóla var valinn stað-
ur á Hvanneyri. „Ástæða þess að
Hvanneyri varð fyrir valinu sem
staðsetning fyrir búnaðarskóla
mun hafa verið hin miklu nátt-
úrugæði jarðarinnar með stórum
næringarríkum engjalöndum og
laxveiði. Þá stóðu um átta býli
umhverfis kirkjuhólinn. Enginn
húsakostur var metinn nothæfur
til skólahalds og var ráðist í gerð
60 fermetra skólabyggingar strax
fyrsta sumarið. í framhaldinu var
ráðist í heilmiklar framkvæmdir,
reistar allmargar byggingar svo
sem kirkja, hlaða, hesthús, fjár-
hús, smiðja og fjós og farið var í
umfangsmiklar sléttanir og rækt-
un túna, lagðir vegir með meiru.
Hér hefur svo ýmislegt gerst í
ofsaveðrum og brunum í gegnum
tíðina, en ávallt verið endurbyggt
og betrumbætt.
Landbúnaðarháskóli íslands
hefur nú yfir að ráða glæsilegri
skólabyggingu í Ásgarði, ásamt
aðstöðu til kennslu og rannsókna
á Keldnaholti í Reykjavík og að
Reykjum í Ölfusi. Hér á Hvann-
eyri er auk þess gott rannsókna-
og kennslufjós, lítið gróðurhús
og rannsóknahús, bútæknihús
auk þess sem jarðræktarmiðstöð
skólans er að byggja upp aðstöðu
hér. Þá er fjárbú rekið að Hesti
og hestamiðstöð að Mið-Fossum.
Nemendagarðarnir bjóða upp á
glæsilega aðstöðu fyrir nemend-
ur í misstórum rýmum sem henta
ýmist einstaklingum, pörum eða
fjölskyldufólki.“
Ragnheiður sagði það gleðilegt
að umsækjendum um nám í Lbhí
fjölgaði milli ára um 33% en met-
aðsókn var í náttúru- og umhverf-
isfræði og skógfræði nú í vor. „Þá
stefnir í að fjöldi doktorsnemenda
við skólann verði í fyrsta sinn
tveggja stafa tala,“ sagði Ragn-
heiður. mm
Fjórir fyrrverandi stjórnendur skólans voru mættir, auk Ragnheiðar, og fengu þeir trjáplöntur að gjöf. Ágúst Sigurðsson í
Kirkjubæ var fjarstaddur. F.v. Sæmundur Sveinsson, Magnús B. Jónsson, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Björn Þorsteinsson
og Sveinn Hallgrímsson.
Þriðjungs fjölgun nemenda við LbhÍ
Séra Flóki Kristinsson sóknarprestur á Hvanneyri tók sig til í sumar og hélt ljós-
myndanámskeið fyrir 11-12 ára börn. Afrakstur sýningarinnar mátti skoða á
veggjum í stofu gamla skólastjórabústaðarins.
Ingi Þór Magnússon í Ásgarði sýndi góða takta á Farmal A í dráttarvélafiminni.
Bræðurnir Jónas og Sigurjón á Bjarteyjarsandi meta stöðuna.
Þær Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum og Ingibjörg Björnsdóttir frá Háafelli í
Skorradal sýsla ýmislegt saman og kalla sig þá gjarnan heimasæturnar í fram-
dalnum. Þær seldu reyktan Skorradalssilung við góðar undirtektir.
Opið hús var í Ásgarði. Þar var m.a. kynnt námsframboð við skólann og efni tengt
brautunum dregið fram. Þá gátu gestir skoðað húsakynnin og kíkt á vinnusal
nemenda umhverfisskipulags, þar sem þessi mynd var tekin. Ljósm. rbj.
Álfheiður Marinósdóttir sýndi býflugnaræktun sína. Ljósm. úr safni/rbj.
Verkefnastjóri atvinnu,
markaðs- og menningarmála
Borgarbyggð óskar eftir að ráða verkefnastjóra atvinnu, markaðs- og menningarmála. Leitað er
eftir einstaklingi sem hefur metnað, reynslu af ímyndarmálum og upplýsingamiðlun og áhuga á
eflingu sveitarfélagsins. Starfið er 100% starf á stjórnsýslu- og fjármálasviði og er tímabundið til
eins árs með möguleika á framtíðarráðningu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Stefnumótun og markmiðasetning í atvinnu, upplýsinga- og menningarmálum•
Samstarf og samskipti við atvinnulíf•
Efla og samræma kynningar- og markaðsmál•
Upplýsingatækni og rafræn þjónusta•
Umsjón með menningarhátíðum og ýmsum menningarverkefnum•
Starfar fyrir atvinnu, markaðs- og menningarmálanefnd •
Menntunar og hæfniskröfur:
Háskólapróf sem nýtist í starfi•
Reynsla af störfum í upplýsingatækni, kynningar – og markaðsmálum•
Þekking og reynsla af verkefnum tengdum atvinnu- og menningarstarfi•
Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti•
Góð samstarfshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum•
Frumkvæði og skipulagshæfileikar•
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Eiríkur Ólafsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 433-7100.
Umsókn skal senda á borgarbyggd@borgarbyggd.is Henni skal fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu.