Skessuhorn - 10.07.2019, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201924
Olgeir Helgi Ragnarsson rennir hér þurrflugunni á laugardaginn í fallegri lænu á norðanverðri Arnarvatnsheiði. Ljósm. vk.
Fyrsti hnúðlax sumarsins var veidd-
ur í Ölfusá fyrir landi Hrauns í Ölf-
usi 2. júlí síðastliðinn. Um var að
ræða 2,4 kg nýgengna og vel haldna
hrygnu. í kjölfar vaxandi gengd-
ar hnúðlaxa í íslenskar ár sumar-
ið 2017, þegar um 70 hnúðlaxar
veiddust í ám víðsvegar um land-
ið, má búast við að talsvert margir
hnúðlaxar komi til með að veiðast í
sumar. Lífsferill hnúðlaxa er stutt-
ur. Þeir hrygna seinni hluta sum-
ars og snemma hausts, jafnan fyrr
en hefðbundnir laxfiskar. Hrognin
klekjast út að vori og ganga til sjáv-
ar aðeins nokkurra vikna gömul.
Þannig eru í raun aðskildir stofn-
ar í ánum með jafna tölu í ártali og
oddatölu svo ekki verður blöndun
á milli þeirra. Árgangurinn á odda-
tölu ári er jafnan stærri. Hnúðlaxar
drepast allir að lokinni hrygningu
og því verður stundum vart við út-
hrygnda fiska síðsumars.
Sumarið 2017 varð mjög mi-
kil aukning í fjölda hnúðlaxa og
varð þeirra vart í talsverðum mæli
í ám í Noregi, á Bretlandsey-
jum, Frakklandi og Spáni. Hvort
hnúðlaxar nái að nema land í ám
hér á landi er ekki enn vitað, að
sögn starfsmanna Hafrannsóknas-
tofnunar, né hvort þeir kunni að
hafa áhrif á stofna laxfiska hér á lan-
di. Hnúðlaxahængar hafa áberan-
di hnúð á baki og oft með rauðan
lit á kvið. Hrygnum er oft ruglað
saman við bleikju en hnúðlaxah-
rygnur hafa m.a. doppur á sporði
og bakugga sem eru ekki á bleikju.
Hafrannsóknastofnun safnar up-
plýsing um veidda hnúðlaxa. „Mi-
kilvægt er að veiðimenn sem veiða
hnúðlaxa, skrái þá í veiðibækur og
komi upplýsingum um þá til Ha-
frannsóknastofnunar,“ segir í til-
kynningu. mm
Hafrannsóknastofnun hefur gef-
ið út yfirlit yfir lax- og silungsveiði
sumarið 2018. Þá var skráð stang-
veiði á laxi í ám á íslandi 45.291 lax.
Af þeim var 19.409 (42,9%) sleppt
aftur og var heildarfjöldi landaðra
laxa því 25.882 laxar, eða 57,1%. Af
veiddum löxum voru 36.044 laxar,
eða 79,6%, með eins árs sjávardvöl
og 9.247 stórlaxar með tveggja ára
sjávardvöl eða lengri. Alls var þyngd
landaðra laxa í stangveiði rétt tæp
69 tonn. Afli í stangveiðinni skiptist
þannig að 22.907 laxar voru smálax-
ar, alls 53.649 kg og 2.975 stórlax-
ar sem voru 15.148 kg. Af þeim löx-
um sem sleppt var aftur voru 13.137
(67,8%) smálaxar og 6.272 (32,3%)
stórlaxar.
„Fimm veiðihæstu laxveiðiárn-
ar voru Ytri - Rangá, Hólsá Vest-
urbakki með 4.039 laxa, Eystri -
Rangá með 3.960 laxa, Miðfjarðará
2.725 laxa, Þverá og Kjarará 2.441
og Norðurá með 1.692 laxa. Heild-
arafli landaðra laxa í stangveiði og
netaveiði samanlagt var 49.901 lax
sem vógu alls 81.712 kg. Af þeim
voru 26.620 smálaxar og 3.856 stór-
laxar. Þyngd smálaxa var 54.870 kg
og þyngd stórlaxa 18.738 kg.
Urriðaveiðin hefur verið á uppleið
síðustu fjögur árin. Af urriðaveiði-
svæðum landsins þar sem stangveiði
var stunduð, veiddust flestir urriðar
í Veiðivötnum, alls 10.330 þ.e. 1.006
fleiri veiddir urriðar en á árinu áður
og í Laxá í Þingeyjarsýslu ofan Brúa,
en þar veiddust 3.763 urriðar þ.e.
461 fleiri í ár en árið áður. í Fremri
Laxá á Ásum var urriðaveiðin 2.536
fiskar sem var nánast sama veiði og
árið áður.
Bleikjuveiðin var svipuð árið 2018
og árið áður. Alls voru skráðar á
landinu 27.909 bleikjur og af þeim
var 4.413 (15,8%) sleppt aftur. Það
veiddust 143 fleiri bleikjur 2018 en
árið áður. Fjöldi í afla var því 23.496
bleikjur og heildarþyngd aflans var
17.318 kg. Eins og í urriðaveiðinni
þá var mest veiði í landshlutum á
bleikju á Suðurlandi en þar veiddust
14.749 bleikjur og 758 var sleppt.
Bleikjuveiði á Norðurlandi vestra
var 4.411 bleikjur og litlu færri voru
á Norðurlandi eystra 4.373 bleikjur.
Sumarið 2018 bar ekki mikið á
hnúðlöxum í ám hér á landi líkt og
árið 2017. Meira er af hnúðlaxi þeg-
ar ártalið stendur á oddatölu en jafn-
ari tölu. Mikilvægt er að veiðimenn
skrái veiði á hnúðlöxum, þar sem bú-
ast má við auknum fjölda hnúðlaxa
sumarið 2019. Einnig er mikilvægt
að skrá ef veiðist eldislax og koma
sýnum af fiskum til erfðagreiningar
hjá Hafrannsóknastofnun.
Samantekt veiðinnar byggist á
veiði sem skráð er í veiðibækur.
Veiðifélög/veiðiréttarhafar bera
ábyrgð á skráningu veiði skv. lögum.
Hafrannsóknastofnun annast sam-
antekt veiðitalna og skráningu í raf-
rænan gagnagrunn í umboði Fiski-
stofu.
Nánari greiningu og umfjöllun í
skýrslu má sjá á heimasíðu Hafrann-
sóknastofnunar.“ mm
„Við erum í Langá á Mýrum með
erlenda veiðimenn þessa dagana og
veiðin gengur rólega, samt rigndi
ágætlega í fyrradag,“ sagði Harpa
Hlín Þórðardóttir þegar við spurð-
um um stöðuna. Laxveiðin er langt
frá því að vera góð. Það þarf að
rigna meira til að búast megi við að
glaðni yfir veiðinni. „Það er eitt-
hvað af fiski en hann tekur ekki
vel,“ sagði Harpa við Langá. Hún
sagði veiðimenn reyna hvað þeir
geti. Áin hefur gefið um 40 laxa.
Veiðitölur úr öðrum ám tala sínu
máli. í Norðurá var vikuveiðin 25
laxar sem verður að teljast í min-
na lagi. jafnvel þótt kröftugar gön-
gur hafi sést neðarlega í ánni, er fis-
kurinn ekki í tökustuði í heitu og
súrefnissnauðu vatni.
í Haffjarðará hefur veiðin gengið
ágætlega og þar voru komnir hun-
drað laxar á land. Eftir rigningar
þar um slóðir kom aukið líf í veiði-
na og tökurnar urðu öllu skemm-
tilegri. gb
Lax- og silungsveiðin 2018
Fín veiði á Arnarvatnsheiði þegar lægði
,,Það var slæmt veður á föstudag-
inn en miklu betra núna. Við erum
búnir að fá 23 stykki,“ sagði Sævar
Sverrisson sem var á Arnarvatns-
heiði um helgina ásamt fleiri vösk-
um silungsveiðimönnum. „Á föstu-
daginn var varla hægt að veiða,
fremur hvasst og kalt. Við vorum á
báti og fengum góða veiði á laug-
ardaginn. Stærstu fiskarnir eru um
þrjú pundin, en flestir hinna í kring-
um tvö pund. Það er alltaf gaman á
Heiðinni,“ sagði Sævar. Við kvödd-
um Sævar sem hélt áfram veiða. gb
Það byrjaði að veiðast á Arnarvatnsheiði um leið og lægði. Ljósm. ss.
Laxveiðin langt frá
því að vera góð
Flottur lax kominn á land í Langá á
Mýrum. Ljósm. Harpa Hlín.
Hrygnan sem veiddist í Ölfusá í byrjun mánaðarins.
Fyrsti hnúðlax sumarsins
kominn á land