Skessuhorn - 10.07.2019, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
jónas Sen skrifar í Fréttablaðinu
um helgina afar fallega um tón-
leika Kammerkórs Suðurlands
og Páls á Húsafelli sem haldnir
voru nýverið í Hafnarborg. Gefur
hann tónleikunum fjórar og hálfa
stjörnu af fimm mögulegum.
Dagskrá Sönghátíðarinnar var
tvíþætt. Fyrir hlé voru fjölmörg
mjög stutt verk eftir Atla Ingólfs-
son, Huga Guðmundsson, Benna
Hemm Hemm, Elínu Gunnlaugs-
dóttur og fleiri. En grípum niður
í dóm jónasar Sen: „Á dagskránni
eftir hlé voru flutt allmörg lög eft-
ir Pál Guðmundsson á Húsafelli í
útsetningu ýmissa tónlistarmanna.
Lögin voru við ljóð mismunandi
skálda og voru ávallt grípandi og
falleg. Við kórsönginn var leikið
á hljóðfæri sem Páll hefur smíð-
að, steinhörpur og flautur úr rab-
arbara. Páll sjálfur spilaði með
nokkrum öðrum músíköntum og
þeir gerðu það allir vel. útkoman
var kliður sem auðveldlega mátti
ímynda sér að kæmi úr einhverj-
um álfaheimi, hann var töfrandi
og ómótstæðilegur. Niðurstaða:
Frumleg efnisskrá, flottur flutn-
ingur,“ skrifaði jónas Sen.
mm
Hér er Páll við eina af steinhörpum sínum. Ljósm. úr safni/mm.
Tónleikar Páls og
Kammerkórs fengu
lofsamlega dóma
Árleg Reykholtshátíð verður hald-
in í 23. skipti helgina 26.-28. júlí
og venju samkvæmt verður dag-
skráin hin glæsilegasta. „í fyrra var
aldarafmæli fullveldis íslands alls-
ráðandi en í ár ætlum við að fara
vítt í dagskrárgerð. Á hátíðinni
koma fram einsöngvarar af yngri
kynslóðinni sem þó hafa unnið sér
sess sem frábærir listamenn. Einn
þeirra er Oddur Arnþór jónsson
sem mun opna hátíðina. Hann hef-
ur nokkrum sinnum sungið burð-
arhlutverk hjá íslensku óperunni
og víðar, m.a. í óperunni Brot-
hers auk þess sem hann var valinn
söngvari ársins á íslensku tónlist-
arverðlaununum í ár,“ segir Val-
gerður G Halldórsdóttir kynning-
arstjóri Reykholtshátíðar í samtali
við Skessuhorn.
Glæsilegir opnunar-
tónleikar
Opnunartónleikarnir hefjast
klukkan 20:00 á föstudagskvöld-
inu og þá flytja Oddur Arnþór
og Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir hluta úr Schwanengesang D.
957 eftir Franz Schubert. „Þau
ger þetta á nokkuð óvenjuleg-
an hátt með því að skipta þessum
fræga ljóðasveig eftir ljóðskáldum
– byrja tónleikana á ljóðum Lud-
wig Rellstab og enda á ljóðum eft-
Glæsileg dagskrá fyrir Reykholtshátíð í lok mánaðar
ir Heinrich Heine,“ segir Valgerð-
ur. „Inn á milli flytja þau dásem-
leg verk sem ekki hafa heyrst oft á
íslandi, Dover Beach eftir Samu-
el Barber en það flytja strengja-
leikarar ásamt Oddi, og svo Let us
Garlands Bring eftir Georg Finzi
sem hann samdi við ljóð William
Shakespeare.“ Á laugardeginum
kemur Kvennakórinn Vox feminae
fyrstur fram á síðdegistónleikum
undir stjórn Hrafnhildar Árna-
dóttur Hafstað en hún er tiltölu-
lega nýflutt heim frá Hollandi og
hefur komið víða fram undanfar-
ið. Kvennakórinn Vox feminae er
meðal bestu kvennakóra landsins
og mun flytja íslenska efnisskrá af
bæði frumsömdum lögum og út-
settum þjóðlögum og bera tónleik-
arnir yfirskriftina Ó, ljúfa sól. Á
laugardagskvöldið verða kammer-
tónleikar undir yfirskriftinni Rétt-
trúnaður og rómantík. „Þar kemur
fram sérstakur gestur, Anna Mag-
dalena den Herder, lágfiðluleikari
frá Hollandi, en hún er að koma í
fyrsta sinn fram á Reykholtshátíð,“
segir Valgerður.
Heimskringla
og hetjudáð
Á sunnudeginum klukkan 16:00
verða lokatónleikar hátíðarinn-
ar undir yfirskriftinni Heims-
kringla og hetjudáð. Þar koma all-
ir hljóðfæraleikarar hátíðarinn-
ar fram ásamt þeim Oddi Arn-
þóri og Hrafnhildi og þá bæt-
ist Guja Sandholt, mezzósópran
í hópinn. Á tónleikunum munu
hljóðfæraleikarar Reykholtshátíð-
ar flytja Píanókvintett í f-moll eft-
ir johannes Brahms. „Einnig verð-
ur afar skemmtilegur lagaflokkur
eftir Tryggva M Baldvinsson við
texta Þórarins Eldjárns. Þá mun
Guja flytja stystu óperu í heimi, að
við höldum, King Harald’s Saga.
Það er verk sem unnið er upp úr
Heimskringlu Snorra Sturluson-
ar og er aðeins um 10 mínútur að
lengd,“ segir Valgerður. „Allir sem
fram koma á hátíðinni eru einstakir
listamenn á sínu sviði. Þarna verða
hljóðfæraleikarar sem fólk þekkir
vel, svo sem Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, Auður Hafsteinsdóttir og
svo auðvitað Sigurgeir Agnarsson
sem er jafnframt listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar eins og undan-
farin ár. Við verðum líka með nýja
hljóðfæraleikara eins og Helgu
Þóru Björgvinsdóttur sem hefur
ekki komið fram á Reykholtshá-
tíð áður,“ segir Valgerður. Kynnir
á hátíðinni verður Guðni Tómas-
son útvarpsmaður og mun hann sjá
um að leiða áheyrendur í gegnum
dagskrá tónleikanna á skemmtileg-
an og fróðlegan hátt.
Frásögn af Gísla Súrs-
syni
Snorrastofa í Reykholti tek-
ur þátt í hátíðinni með að bjóða
upp á fyrirlestur á laugardeginum.
„Bjarni Guðmundsson mun segja
frá búskap Gúsla Súrssonar og
hans fólks. Það er alltaf áhugavert
að hlusta á Bjarna,“ segir Valgerð-
ur. Hægt verður að kaupa helgar-
passa fyrir alla tónleika hátíðar-
innar en einnig verður boðið upp
á að kaupa aðgang að stökum tón-
leikum eða þriggja tónleika passa.
„Við buðum upp á þriggja tónleika
passa í fyrra og því var mjög vel
tekið svo við ætlum að endurtaka
það. Það komast um 200 manns á
hverja tónleika og það var næst-
um uppselt á þá alla í fyrra og von-
umst við til að það verði svipað í
ár,“ segir Valgerður. Nánari upp-
lýsingar um hverja tónleika og há-
tíðina í heild er hægt að nálgast á
www.reykholtshatid.is.
arg/ Ljósm. aðsendar
Kvennakórinn Vox feminae verður með tónleika á laugardeginum.
Oddur Arnþór Jónsson syngur á opn-
unartónleikum Reykholtshátíðar.