Skessuhorn - 10.07.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig finnst þér best að
hjálpa öðrum?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Sigurmunda Ásbjörnsdóttir
„Vera hlý, góð og með gott við-
mót.“
Páll Arnar Kandeh
„Gera daginn hjá öðrum betri.“
Guðmundur Benediktsson
„Með því að bjóða fólki hjálp.“
Lovísa Ösp Helgadóttir
„Vera til staðar.“
Marella Steinsdóttir og Júlíus
Steinn Valgeirsson
„Vera til staðar og passa upp á
litlu hlutina.
Meistaraflokkur karla í íA var í há-
tíðarskapi á laugardaginn þegar
bæjarhátíðin írskir dagar á Akra-
nesi stóð sem hæst. Liðið gerði sér
lítið fyrir og sigraði Fylki í mikl-
um baráttuleik á Akranesvelli þeg-
ar 12. umferð Pepsi Max deildar
karla var spiluð. Fyrir viðureign-
ina voru Skagamenn búnir að vera
á einhverju brölti þrátt fyrir fanta-
góða byrjun í upphafi tímabils. Fyr-
ir leikinn gegn Fylki var liðið búið
að tapa þremur leikjum og gera eitt
jafntefli og því hungraði marga í
sigur, sem raunin varð á laugardag-
inn.
Heimamenn voru í banastuði allt
frá fyrstu mínútu og sýndu mikinn
sigurvilja í öllum sínum aðgerðum.
Fyrsta marki koma snemma í leikn-
um. Á 13. mínútu brunaði Hörður
Ingi Gunnarsson upp endilangan
völlinn og náði með tilþrifum að
gefa boltann fyrir liðsfélaga sinn,
Albert Ólafsson og Sveinbjörg
Rósa Sumarliðadóttir settu tvö
heims- og Evrópumet á Heims-
bikarmótinu í bogfimi sem fram
fór í Berlín í liðinni viku. Metin
sem þau settu voru fyrir bland-
aða liðakeppni í hópi 50 ára og
eldri. í undankeppninni fengu
þau 104 stig en bættu sig um tíu
stig í útsláttarkeppninni og fengu
114 stig. Var þetta í fyrsta skipti
sem keppendur frá íslandi setja
heims- eða Evrópumet í grein-
inni. Er þetta jafnframt í fyrsta
skipti sem þau Albert og Svein-
björg Rósa keppa á alþjólegu móti
en þau byrjuðu að stunda bogfimi
fyrir rúmlega ári. Næst á dagskrá
hjá þeim er European Master Ga-
mes í lok júlí. Þess má geta að
Sveinbjörg Rósa er Borgfirðingar
að ætt og uppruna, frá Ferjubakka
í Borgarhreppi. arg
Skallagrímur þurfti
að sætta sig við eins
marks tap gegn
Vængjum júpiters
þegar liðin mætt-
ust á gervigrasvellin-
um í Grafarvogi á föstudaginn. Var
þessi leikur liður í tíðundu umferð
þriðju deildar karla.
Segja má að einbeitingin hafi
verið víðs fjarri hjá gestunum
úr Borgarnesi í upphafi leiks því
heimamenn skoruðu strax á 3. mín-
útu þegar Sigurjón Már Markús-
son lagði boltann í net Skallagríms-
manna. Dugði þetta eina mark til
sigurs og fóru Vængir júpiters með
stigin þrjú í farteskinu.
Lítið gengur hjá Skallagríms-
mönnum að kalla fram sigur í leikj-
um sínum það sem af er tímabili.
Þeir sitja sem fyrr í næstneðsta
sæti með sex stig eftir tíu umferð-
ir, tveimur stigum meira en KH
sem vermir botnsætið. Næsti leikur
Skallagrímsmanna verður í Borgar-
nesi í kvöld klukkan 20 þegar Reyn-
ir S. mætir á Skallagrímsvöll.
glh
Tap hjá
Skallagrími
Settu tvö heims- og
Evrópumet í bogfimi
Albert Ólafsson og Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir settu tvö heims- og Evrópumet á Heimsbikarmótinu í bogfimi.
Ljósm. archery.is.
ÍA vann langþráðan sigur
Tryggva Hrafn Haraldsson, sem
potaði knettinum í rétta átt og kom
Skagamönnum yfir. Héldu heima-
menn eins marks forystu inn í hálf-
leikinn.
Skagamenn héldu uppi sama
hætti í síðari hálfleik, voru skipu-
lagðir í sínum leik og gerðu gestun-
um úr Árbænum erfitt fyrir. Annað
mark Skagamanna kom á 80. mín-
útu, eftir frábæra fyrirgjöf frá Al-
berti Hafsteinssyni á Viktor jóns-
son sem tók vel á móti boltanum og
renndi honum framhjá markmanni
gestanna. Fylkir átti góða spretti
og reyndu að minnka muninn, en
sterkt lið Skagamanna kom í veg
fyrir það. Lokatölur, 2-0 íA í vil.
Með sigrinum færir íA sig upp í
þriðja sæti deildarinnar og er með
20 stig eftir 12 umferðir. í öðru sæti
fyrir ofan er Breiðablik með 22 stig
en í sætinu fyrir neðan er Stjarnan
með 19 stig. Næsti leikur íA er gegn
KA. Fer hann fram á Greifavelli 21.
júlí og hefst klukkan 17:00.
glh
Fagnað í leikslok. Ljósm. gbh