Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 20194 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Farsímageislinn fangaður Oft er það svo þegar höfuð er reist frá kodda að morgni dags veit maður ekkert hvað dagurinn mun bera í skauti sér. Sumir dagar eru vissulega eins og flestir aðrir, líða fram í viðjum vanans, meðan aðrir verða eftirminnilegri. Ég ætla að segja ykkur litla sögu af miðvikudeginum síðasta. Vissulega dálítið persónuleg reynsla. Eftir þennan dag var ég dáldið eins og rúllugardína; niðurdreginn. Þó var líðan konunnar öllu verri. á undanförnum árum hef ég haft það fyrir vana að komast helst út af skrifsto- fu fyrir miðjan miðvikudag. Þá er blað vikunnar komið út, búið að leggja drög að verkefnum næstu viku og ef allt gengur að óskum hef ég séð ástæðu til að ko- mast út úr hinu daglega umhverfi sem afmarkast af fjórum veggjum. Stundum felst tilbreytingin í að skreppa í Borgarnes, í sveitina, eða jafnvel sigla smá spöl út úr höfninni á Akranesi. Að þessu sinni ákváðum við hjónin að fara á berjamó. Finnst það skemmtileg iðja á þessum árstíma að ganga til berja, tína dálítið í fötu, taka myndir, viðra hundinn og anda að okkur fersku sveitaloftinu. Að þessu sinni ókum við sem leið lá vestur í Hítardal. Ókum upp með Hítará, yfir skriðuna sem féll þar í fyrrasumar og dáðumst að útsýninu sem opnast þe- gar innar er komið í þennan fallega dal. Þetta er virkilega einstakur staður; friðsæll og fallegur, þar sem kallast á hraunið, áin í sínum nýja farvegi, fallegir klettar og óvenjulegar jarðmyndanir sem ná upp í grösugar hlíðar. Búsældarlegt fé var á beit á völlunum sitthvorum megin við skriðuna og þar er búið að ýta prýðilegum vegslóða yfir til að veiðimenn komist áfallalaust leiðar sinnar. In- narlega í dalnum gengum við upp í brekkurnar í berjaleit. Léttur rigningarúði féll á kinn, virkaði sem ferskur blær og til hreinsunar á loftinu eftir þurrviðri su- marsins. En um leið varð grasið í hlíðum fjallsins sleipt. Þá varð óhapp. Konu minni skrikar fótur og dettur illa. Strax var ljóst að hún hafði brotið fótinn ofan við ökkla. Þegar svona gerist fær maður einhvern auka kraft. Setur sig í þær stellingar að halda kúlinu, reyna að hugsa rökrétt og bregðast fumlaust við. Held að flestir hafi upplifað slíkt sem til dæmis hafa komið að bílslysum. En þarna voru góð ráð dýr. Farsímasamband er nefnilega ekkert innarlega í Hítardal. Því var um tvennt að velja. Annað hvort að hjálpa konunni upp í bílinn og aka sem leið liggur í símasamband, eða fara einn í þeim erindagjörðum að kalla eftir aðstoð. Einhvern veginn hugnaðist okkur ekki að ég æki af stað án hennar. Því var niðurstaðan að ég sótti bílinn, kom honum sem næst slysstað og í bílinn komst frúin, enda sveitastelpa sem er hörð af sér. Þá var ekið afar gætilega sem leið lá niður dalinn til móts við mammon og til að fanga blessað símasambandið. á lítilli hæð móts við Hítardalsbæinn datt síminn loks í samband við umheiminn. Ég gat hringt í 112, kallað eftir aðstoð og ekið svo áfram í rólegheitunum til móts við sjúkrabílinn. Allt fór þetta að endingu vel. Frúin fékk prýðilega góðan flutning og eftir það þjónustu á spítalanum í Foss- vogi og í aðgerð komst hún ríflega tveimur sólarhringum síðar. Er hún nú á hægum en öruggum batavegi. Þarna upp til fjalla varð mér strax hugsað til aðstæðna Finnboga vinar míns og bónda í Hítardal. Nokkrum sinnum hefur það komið fram í fréttum Skes- suhorns að hann búi þar án símasambands en slíku fylgir öryggisleysi og ver- ulegt óhagræði. Engu að síður þykir ekki markaðslega hagkvæmt að halda ho- num í tengslum við umheiminn, jafnvel þótt hann sé búinn að vera sveitar- stjórnarmaður í áratugi og þurfi því oft að vera í sambandi vegna starfa sinna fyrir samfélagið. Vafalítið er það á forsendum markaðarins sem slíkt er látið viðgangast svo árum skiptir. Engu að síður er það í sjálfu sér alveg galið að nú árið 2019 sé ástandið enn með þeim hætti að fjöldi bæja skuli vera einangraðir frá þeim sjálfsögðu þægindum og öryggi sem felst í örbylgjusambandi. Í það minnsta gæti ég alveg bent á hvar lagning ljósleiðara í Borgarbyggð ætti að hef- jast, yrði ég spurður. Magnús Magnússon Fyrirtækið Stafnafell er þessa dag- ana að moka upp stórgrýti úr Grundarfjarðarhöfn og flytja það í haug til geymslu. Hægt er að nota stærsta grjótið aftur þegar fram- kvæmdir hefjast við lengingu Norð- urgarðs. Grjótið er tekið við enda hafnarinnar þar sem framlenging- in mun koma. Vegagerðin er einn- ig við mælingar áður en dæluskipið kemur aftur en von er á því á næstu dögum. tfk Frá því var nýverið greint á fréttasíðu Snæfellsbæjar að framkvæmdum við stýrið í Sjómannagarðinum í Ólafs- vík hefur miðað vel í sumar. Í verk- inu er stuðst við teikningar Valgerð- ar Hlínar Kristmannsdóttur sem endurhannaði garðinn út frá sögu hans og sjósóknar frá Ólafsvík. Gaf hún Sjómannadagsráði teikningarn- ar að loknu námi sínu við umhverf- isskipulagsbraut LbhÍ á Hvanneyri. „Framkvæmdir hafa verið í hönd- um iðnaðarmanna, sjálfboðaliða og Sjómannadagsráðs og eiga allir sem komið hafa að þessu listaverki lof skilið fyrir mikla bæjarprýði,“ segir í frétt Snæfellsbæjar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í haust. Því má við þetta bæta að Val- gerður Hlín var nýverið ráðin til starfa á tæknideild Snæfellsbæjar. Hún vann áður á tæknideildinni sumarið 2014, einmitt þegar hún hannað þær endurbætur sem nú sér fyrir endan á í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. mm/ Ljósm. snb. Malbikun Akureyrar hefur síðustu daga unnið við malbikun í Grund- arfirði. Þar hefur verið malbikað yfir götur, göngustíga og bílaplön. Björg ágústsdóttir bæjarstjóri áætl- ar að um átta til tíu þúsund fer- metrar af malbiki hafi farið niður í þessari lotu en loka þurfti nokkrum götum á meðan starfsmenn athöfn- uðu sig. á meðfylgjandi mynd er verið að malbika Fellabrekku mið- vikudaginn 14. ágúst. tfk Frá því er greint á fréttasíðu Snæ- fellsbæjar í liðinni viku að fram- kvæmdir standa nú yfir í Sand- holti í Ólafsvík. Í vikulokin var búið að skipta um jarðveg, leggja nýja holræsa- og vatnslagnir og ljúka við jarðvinnu vegna síma- og rafstrengja. Styttist því í að gat- an verði klár undir malbikun. Það er tS vélaleigan sem annast fram- kvæmdir. mm/ Ljósm. snb. Framkvæmdir í Sjómannagarðinum til prýði Mikið malbikað í Grundarfirði Endurnýting á grjóti í höfninni Sandholt í Ólafsvík tekið í gegn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.