Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 11 S K E S S U H O R N 2 01 9 Opið hús / kynningafundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Skógarhverfis verður mánudaginn 26. ágúst frá kl. 12:00 til 17:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18. Breyting á Aðalskipulagi Skógarhverfis Breytingin felst í að landnotkunarreitur Íb13 stækkar til norðurs, skógræktarsvæði O9 minnkar, íþróttasvæði O12 er fellt út. Tjald- svæði við Garðalund er breytt í opið svæði, stofnanareitur S16 er stækkaður. Gert er ráð fyrir tengingu við þjóðveg norðan Skógarhverfis. Breyting á deiliskipulagi Skógarhverfi 2. áfangi Breytingin felst í að norðurhluti deiliskipulags 2. áfanga frá 2007 er felldur úr gildi. Deiliskipulag Skógarhverfi áfangi 3A Nýtt deiliskipulag fyrir einbýlishús og raðhús. Deiliskipulag Skógarhverfi áfangi 3B Nýtt deiliskipulag fyrir stofnanalóð, gert er ráð fyrir leikskóla, grunnskóla og íþróttahúsi. Deiliskipulag Skógarhverfi 4. áfangi Nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fjölbýlishúsum, meginhluti húsanna verða tveggja hæða án bílakjallara og einu fimm hæða fjölbýlishúsi. Eftir kynningu (opið hús) á ofangreindum skipulagsgögnum verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulags- breytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur. Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs Opið hús / kynningafundur Hettupeysur fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp Elís� www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110 Kór Akraneskirkju mun taka þátt í Sálmafossi á menningarnótt laugar- daginn 24. ágúst í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Þar verður fjölbreytt tónlistardagskrá frá kl. 15 - 21 þar sem kórtónlist og orgeltónlist mun hljóma. Kórsöngur mun verða á heila tímanum og mun Kór Akra- neskirkju syngja kl. 16 undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar. mm Kórinn á söngferðalagi í Salzburg fyrr í sumar. Kór Akraneskirkju á menningarnótt Í síðustu viku var ný heilbrigðis- stefna – stefna fyrir íslenska heil- brigðisþjónustu til ársins 2030, kynnt á opnum fundi sem hald- inn var á Heilbrigðisstofnun Vest- urlands á Akranesi. Vel var mætt í fundarsal HVE þar sem Björn Bjarki Þorsteinsson stýrði fund- arhöldum. tóku til máls Svan- dís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra sem kynnti stefnuna og Jó- hanna Fjóla Jóhannesdóttir, for- stjóri Heilbrigðisþjónustu Vestur- lands, sem sagði frá sýn forstjóra HVE. Þá fjallaði María Heimis- dóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Ís- lands, um áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ. Rætt var um mikilvægi þess að vera með stefnu yfir höfuð, hvað fælist í heilbrigðisstefnu og til hvers er verið að ákveða slíkt. Um fjórðungur ríkisútgjalda fer í gegn- um heilbrigðisþjónustuna með ein- hverju móti, að sögn heilbrigðis- ráðherra, og því gríðarlega mikil- vægt að vera með skýr leiðarljós og vita hvert kerfið á að stefna. „Þessi stefna fjallar um heilbrigðisþjón- ustuna og fjallar fyrst og fremst um þetta kerfi sem tekur við þegar áföll og slys bjáta á. Það er mikilvægt að halda til haga að í stefnunni eru sjö kaflar og að þessari stefnu er ætlað að vera grundvöllur allrar annarrar stefnumótunar í heilbrigðiskerfinu. Þannig fjallar þessi stefna ekki ein- vörðungu um einstaka sjúkdóma, einstaka aldurshópa eða einstaka þjónustugeira, heldur meginregl- ur sem eiga að gilda í öllum kim- um heilbrigðisþjónustunnar,“ sagði Svandís í erindi sínu. „Mikilvægt er að halda til haga að þetta er ekki skrifborðsverkefni ráðherra, heldur mikilvægt að svona verkefni njóti breiðs stuðnings. Þess vegna var langur aðdragandi að því að stefn- an lítur nú dagsins ljós og er færð fyrir Alþingi. Það eru vinnustofur með fulltrúum heilbrigðisstofnana, fundir með stéttarfélögum, fundir með félagasamtökum í rekstri heil- brigðisþjónustu og loks opið heil- brigðisþing þar sem mættu á þriðja hundrað manns.“ Heilbrigðisráðherrann impraði sérstaklega á því að ný heilbrigðis- stefna væri ekki ríkisstjórnarinnar einnar, heldur stefna Alþingis og þar með stefna sem lifir af kosn- ingar og breytingar og mögulegar sviptingar í stjórnmálum. Sagði ráðherra að í nýrri heilbrigðisstefnu yrði hugað að nokkrum málaflokk- um sérstaklega og nefndi mál- efni aldraðra, áhersla verður lögð á þjónustu við heilabilaða, málefni áfengis- og vímuvarna og krabba- meinslækningar. Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum lands- ins og var fundurinn á Vesturlandi sá fjórði í fundaröðinni. glh Fundurinn sem fram fór á Akranesi var vel sóttur. Heilbrigðisstefna til framtíðar kynnt á fundi með ráðherra Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Jóhanna Fjóla Jó- hannesdóttir, forstjóri HVE. Ný heilbrigðisstefna var kynnt á opnum fundi í liðinni viku.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.