Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201910 Síðastliðinn fimmtudag var boð- að til útgáfuhófs í Jónsbúð á Akra- nesi. tilefnið var útgáfa bókarinn- ar Undir kelduna - saga Hvalfjarð- arganga 1987-2019. Það er bókaút- gáfan Svarfdælasýsl sem gefur bók- ina út en höfundur er Atli Rún- ar Halldórsson. Að bókaforlaginu standa sex systkin, Halldórsbörn frá Jarðbrú í Svarfaðardal. Þetta er önnur bók forlagsins, en sú fyrri kom út fyrir tveimur árum og ber sama nafn, Svarfdælasýsl og fjallar um bernskuslóðir þeirra systkin- anna. Undir kelduna er 400 síð- ur harðspjaldabók, ríkulega mynd- skreytt, og fjallar um afar merkilega framkvæmd sem um margt ruddi braut í íslenskri samgöngusögu. Í bókinni er skrifað um þessa fyrstu einkaframkvæmd í íslensku samgöngusögunni. á bókarkápu segir m.a. „Göngin eru jafnframt fyrstu neðansjávargöng veraldar í ungu gosbergi, fyrsta fjárfesting sinnar tegundar í Evrópu á veg- um bandarísks tryggingafélags, fyrsta fjárfesting íslenskra lífeyris- sjóða í einkaframkvæmd og fyrsta verkefni á Íslandi þar sem verktak- inn bar alla ábyrgð á fjármögnun verkefnisins og tæknilega ábyrgð á framkvæmdatímanum.“ Þarna er í heildstæðu riti fjallað um undir- búning að verkinu, framkvæmd- ir og rekstur Hvalfjarðarganga allt þar til ríkið fékk göngin að gjöf haustið 2018. Sumt af því efni sem bókin hefur að geyma hefur aldrei komist áður á prent. „Margt er hér skrifað sem hvergi hefur komið fram fyrr og meira að segja er þetta líka átaka- og spennusaga, bæði í upphafi og lok einkarekstrarins,“ sagði Atli Rúnar meðal annars þeg- ar hann kynnti ritið. mm Norskir fósturvísar af kúastofn- inum Aberdeen Angus voru flutt- ir inn frá Noregi 2017 og komið fyrir í kúm sem höfðar voru í sér- stakri einangrunarstöð á Stóra ár- móti í Flóahreppi. Þriðjungurinn af þeim 33 kúm sem fyrstu fósturvís- unum var komið fyrir í báru kálfum sem nú eru að vaxa úr grasi, sá elsti 11 mánaða. úr nautkálfunum sem fæddust fyrir tæpu ári er nú haf- in sæðistaka á vegum Nautastöðv- ar BÍ á Hesti. á vefsíðu stöðvarinn- ar kemur fram að tekið hafi verið sæði síðastliðinn fimmtudag úr ell- efu mánaða gömlu bolunum Baldri og Draumi og voru 380 skammtar frystir. Fyrstu tíu stráin fór strax í kút hjá Þorvaldi Jónssyni frjótækni frá Innri-Skeljabrekku sem brunaði beint á heimaslóðir og sæddi fyrstu kúna á Hvanneyrarbúinu með sæði úr Draumi. Bændur sem vilja rækta holda- naut geta nú pantað sæði úr þess- um arfhreina nýja Aberdeen An- gus stofni sem kallaður er AA. Jafnframt hefur einangrun ver- ið aflétt af kálfum sem fæddust á einangrunarstöðinni á Stóra- ármóti á síðasta ári og nautkálf- arnir seldir bændum til ræktunar. Það munu þó mörg ár líða þar til ræktun hér á landi fer að skila telj- andi árangri og kjötið af þessum nýja stofni verður ekki ríkjandi á markaði hér fyrr en eftir fimm til tíu ár. Verulegur skortur er á ís- lensku nautakjöti á markaði og því eru miklar vonir bundnar við ræktun nýs holdanautastofns. Með innflutningi fósturvísa má segja að íslenskir bændur fái að- gang að ræktunarstarfi norskra starfsbræðra þeirra. mm Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi föstudaginn 16. ágúst um gat á nótarpoka einnar sjókví- ar Arnarlax við Laugardal í tálkna- firði. Gatið uppgötvaðist við þrif og er viðgerð lokið. Samkvæmt upp- lýsingum Arnarlax var gatið um 7cm x 12cm og á 2m dýpi. Voru um 179.000 laxar í kvínni með meðal- þyngd 280 gr. Við köfunareftirlit sem átti sér stað fyrr í þessum mán- uði, eða 6. ágúst sl., var nótarpokinn heill. „Atvikið er til meðferðar hjá Matvælastofnun og munu eftirlits- menn stofnunarinnar skoða aðstæð- ur hjá fyrirtækinu og fara yfir við- brögð þess. Arnarlax lagði út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort slysaslepping hafi átt sér stað. Netanna var vitjað bæði á laugardag og sunnudag og enginn lax veidd- ist og hefur veiðiaðgerðum verið hætt,“ segir í tilkynningu frá Mat- vælastofnun. mm/ Ljósm. Arnarlax. Slökkvilið Grundarfjarðar og Snæ- fellsbæjar var kallað út eftir hádegi síðastliðinn miðvikudag. Glóð hafði komist í einangrun þegar verið var að logsjóða í húsnæði Bifreiðaþjón- ustu Snæfellsness og Rútuferða ehf. við Sólvelli 5 í Grundarfirði. Veg- farandi sá reyk leggja frá húsinu og gerði viðbragðsaðilum viðvart. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út en var aðstoð fljótlega afturkölluð þar sem eldur varð ekki laus og tókst strax að slökkva í glæðunum og af- stýra tjóni. mm/tfk Rauðberjalyng er fremur sjaldgæf jurt hér á landi, en fram til þessa hef- ur hún einkum sprottið um austan- vert landið og í Öxarfirði. Þá hefur það fundist í Þrastarskógi og í fu- rulundinum við Rauðavatn og gæti á báðum þeim stöðum verið aðflutt með skógrækt, að því er fram kem- ur í lýsingu Harðar Kristinssonar í Flóru Íslands. Rauðberjalyng hefur nú einnig numið land í Borgarfirði. Benedikt Sævarsson íbúi á Akranesi var nýverið í gönguferð í Munað- arnesi í Borgarfirði og sá þá lyng af þessari tegund. Það hefur einnig sést víðar m.a. ofar í Norðurárdal. Jurtin er mjög sjaldgæf á Íslandi, þótt hún sé með algengasta berja- lynginu í Noregi og Svíþjóð og kall- ast ber hennar tyttebær. Jurtin er lág- vaxinn runni, um 5–30 sentimetrar, með stinn, gulgræn blöð og hvít eða bleikleit blóm sem þroskast í rauð og safarík ber sem vel eru æt. Rauð- berjalyng líkist nokkuð sortulyngi en blöðin eru oftast gulgrænni, ofurlítið tennt, þynnri en á sortulyngi og með niðurorpnum röndum. mm Húsfyllir var í Jónsbúð þegar bókin var kynnt og formlega gefin út. Allir viðstaddir fengu bækur Svarfdælasýsl að gjöf. Bókin Undir kelduna - saga Hvalfjarðarganga Fimm af starfsmönnum Spalar sem tengdust göngunum alla tíð fengu afhent fyrstu eintökin af bókinni. Hér eru f.v. Marinó Tryggvason, Jónas H Aðalsteinsson lögfræðingur, Gylfi Þórðarson, Gísli Gíslason, Anna Kristjánsdóttir og höf- undurinn og útgefandinn; Atli Rúnar Halldórsson. Gat kom á sjókví í Tálknafirði Glóð komst í einangrun Þorvaldur frjótæknir mjög einbeittur við fyrstu sæðingu með nýju AA sæði. Hafþór fjósameistari á Hvanneyri fylgist spenntur með. Ljósm. Nautastöðin á Hesti. Fyrsta sæðistakan úr Aberdeen Angus holdalendingunum Rauðberjalyng skammt frá Munaðarnesi í Borgarfirði. Ljósm. Benedikt Sævarsson. Rauðberjalyng nemur land í Borgarfirði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.