Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201928 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Hestamannafélagið Glaður í Döl- um er rótgróið félag og hefur ver- ið starfandi síðan 1928. Aldurinn gerir það að næstelsta hestamanna- félagi landsins en aðeins Hesta- mannafélagið Fákur er eldra, stofn- að 1922. Mikil gróska er í æskulýðs- og fræðslustarfi hjá Glað um þessar mundir og er fræðslunefnd félags- ins himinlifandi með þátttöku unga fólksins í námskeiðum. Í fyrra störtuðum við námskeiði sem við köllum Ævintýranámskeið en það er í raun þriggja daga hesta- ferð og var ákveðið að ríða úr Búð- ardal inn í Haukadal. á það nám- skeið mættu um 20 krakkar og fór þátttaka á námskeiðinu fram úr okkar björtustu vonum. Það gladdi okkur í fræðslunefndinni enn frek- ar hvernig til tókst en þessir krakk- ar eru hreint út sagt frábærir og gríðarlega öflugir reiðmenn og varð þetta allt hinn mesta skemmt- un sem endaði með grillpartýi á lokadegi. Þetta ár er búið að vera enn öfl- ugra hjá félaginu en auk hinna hefð- bundnu vetrarnámskeiða sem við höfum haldið undanfarin ár inni í reiðhöll þá bættum við nú við út- reiðarnámskeiði í júní og skelltum aftur í ævintýranámskeið í júlí þar sem það hafði slegið svona rækilega í gegn í fyrra. Þátttakendur á nám- skeiðunum voru frá 4 til 15 ára. útreiðarnámskeiðinu stilltum við þannig upp að það var fimm daga námskeið þar sem krakkarnir mættu í hesthúsahverfið í Búðardal og riðu út þaðan alla dagana. Sjöfn Sæmundsdóttir reiðkennari sá um námskeiðið fyrir okkur og voru 32 börn sem mættu og það má segja að allir hafi farið vel út fyrir þæginda- ramman á þessu námskeiði. Í svona litlu samfélagi er þetta gríðarlega góð mæting á námskeið eða u.þ.b. þriðjungur af fjölda barna í grunn- skólanum. Börnunum var skipt niður í fjóra hópa. Einn hópur voru yngri börn sem voru minna vön og voru þau inni í reiðhöll en hin- ir þrír hóparnir á útreiðum. Það er erfitt að lýsa ánægjunni hjá börnum og foreldrum með þetta námskeið, það var algjörlega magnað að sjá og heyra hvað þetta gekk vel og var gaman. Sem dæmi var riðið niður í fjöru og fóru allir á sund í sjónum og á lokadegi námskeiðs reið megn- ið af krökkunum berbakt frá hest- húsunum niður í fjöru til þess að hnakkurinn væri nú ekki að flækjast fyrir þeim á sundinu og heyrði ég frá foreldri að það bara trúði ekki að þetta væri barnið sitt, svo mikl- ar voru framfarirnar í þori og getu. á lokadegi var grillað í reiðhöll- inni og slúttað með stæl. Sjöfn og Laufey Fríða sem aðstoðaði Sjöfn á námskeiðinu eiga heiður skilinn fyrir þetta frábæra námskeið. Ævintýranámskeiðið brast svo á í lok júlí en eins og í fyrra sáum við sjálf um það í fræðslunefnd- inni og tökum ekkert fyrir okkar vinnu heldur stillum verði í hóf og bjóðum foreldrum að slást með í för ef þeir kjósa það. Þetta árið var ákveðið að ríða frá Ljárskógarétt og yfir fjöruna í Hvammsfjarðar- botni og alla leið að bænum Lyng- brekku á Fellsströnd og aftur voru það þrír dagar. Ferðin gekk í alla staði frábærlega og mættu 24 börn og nokkrir foreldrar sem svo fjölg- aði eftir sem dagarnir liðu og end- uðum við 37 í hnakknum. Veðrið lék við okkur þessa daga og end- uðum við í grillveislu á pallinum á Lyngbrekku þar sem reyndar logn- ið fór aðeins hraðar en við hefðum kosið meðan við borðuðum en það voru allir svo glaðir og sælir að það skipti engu máli. Þetta er mjög gaman og gefandi að vinna að æskulýðs- og fræðslu- starfi í hestamennskunni. Það er einnig vítamínsprauta inn í svona starf að hafa reiðhöll þar sem ung- ir og óreyndir geta tekið sín fyrstu skref í hestaíþróttinni og öðlast ör- yggi og þor áður en þeir leggja í að ríða út einir úti. Einnig er inniað- staðan forsenda þess að geta þjálf- að þá sem vilja taka knapamerkin, fara á keppnisbrautina og kom- ast lengra í íþróttinni. Síðan er nauðsynlegt að vera með framboð námskeiða á sumrin fyrir þá sem hafa ekki eiga kost á að vera með hross á járnum á veturna og kom- ast því ekki á vetrarnámskeiðin og ennfremur fyrir þá sem hafa ekki áhuga á námskeiðum inni og vilja bara ríða út og njóta hestsins og ís- lenskrar náttúru. Það eru forréttindi að búa í sveit og að börnin í félaginu okkar hafi kost á því að upplifa íslenska nátt- úru og íslenska hestinn í sínu um- hverfi. Það eru forréttindi að fá að ríða um og sjá rjúpnaunga hlaupa um, selina sólbaða sig og örninn fljúga um með sitt tignarlega væng- haf. Það er dásamlegt hvað börnin í Glað eru heppin að eiga foreldra sem geta veitt þeim þessa upplifun, að fá að kynnast hestinum og um leið sveitinni okkar, ferðast saman og hjálpa hvert öðru. Svala Svavarsdóttir Sigrún Hanna Sigurðardóttir Björk Guðbjörnsdóttir Af æskulýðsstarfi hestamannafélagsins Glaðs

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.