Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 20198 Tvær bílveltur VESTURLAND: Bílvelta varð í nágrenni Búðardals þriðju- daginn 13. ágúst. Ökumaður bifreiðarinnar og tveir farþeg- ar voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna í Búðardal. Allir reyndust ómeiddir en fundu fyrir einhverjum eymslum. Síðastlið- inn mánudag valt bíll á Gríms- staðavegi í Borgarbyggð. Fimm voru í bílnum, hjón og þrjú börn þeirra; 14 mánaða, 13 ára og 14 ára. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum, fór út af veginum þar sem bíllinn valt. Ökumaður- inn var fluttur á heilsugæsluna í Borgarnesi. Hann reyndist vera með skurði á höndum en aðrir sluppu með skrámur. -kgk Margir að masa við stýrið VESTURLAND: Að sögn lög- reglu var töluvert um það í vik- unni sem leið að ökumenn væru gripnir við farsímanotkun undir stýri. Lögregla minnir á að við- urlög við slíku athæfi er fjársekt að upphæð 40 þúsund krónur, enda ökumönnum uppálagt að hafa óskipta athygli við aksturinn og símanotkun undir stýri getur skapað stórhættu í umferðinni. Einn af þeim ökumönnum sem sektaðir voru fyrir farsímanotk- un við aksturinn reyndist auk þess hafa trassað að spenna sæt- isbeltið. Samanlög sekt við þeim brotum nemur 60 þúsund krón- um. Þá voru enn fremur nokkr- ir ökumenn stöðvaðir sem höfðu ekki spennt beltin við akstur- inn í síðustu viku og sektaðir um 20 þúsund krónur fyrir athæfið. -kgk Aflatölur fyrir Vesturland 10.-16. ágúst Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 13 bátar. Heildarlöndun: 12.115 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 2.028 kg í einum róðri. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 7.466 kg. Mestur afli: Rán SH: 7.466 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 278.508 kg. Mestur afli: Helgi SH: 74.819 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík: 6 bátar. Heildarlöndun: 97.783 kg. Mestur afli: Brynja SH: 32.427 kg í fimm róðrum. Rif: 3 bátar. Heildarlöndun: 83.189 kg. Mestur afli: tjaldur SH: 58.045 kg í einni löndun. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 19.737 kg. Mestur afli: Blíða SH: 15.946 kg í fjórum róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 58.045 kg. 15. ágúst. 2. Kristín GK - GRU: 55.315 kg. 13. ágúst. 3. Jóhanna Gísladóttir GK - GRU: 45.925 kg. 14. ágúst. 4. Helgi SH - GRU: 42.786 kg. 12. ágúst. 5. Sigurborg SH - GRU: 34.842 kg. 13. ágúst. -kgk Sveitarstjórn Borgarbyggðar ræddi á fundi sínum síðastliðinn fimmtu- dag þá stöðu sem upp er komin í stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar og ítarlega var fjallað um í síðasta Skessuhorni. Ekki fór fram form- legur fundur í gær í hópi hluthafa Menntaskóla Borgarfjarðar, eins og sagt var í frétt Skessuhorns í síðustu viku, heldur funduðu fulltrúa úr byggðarráði og níu stærstu hluthaf- ar í MB sem ráða yfir ríflega 99% atkvæða í félaginu. Þar var ákveðið að leggja til að samþykktir Mennta- skóla Borgarfjarðar yrðu yfirfarnar sem og hluthafasamkomulag. Í kjöl- far þess fundar kom sveitarstjórn saman en þar lagði Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir formaður byggðar- ráðs fram eftirfarandi bókun full- trúa meirihlutans í sveitarstjórn: „Fulltrúar meirihluta sveitar- stjórnar árétta vilja sinn til að standa kröftuglega við bakið á Mennta- skóla Borgarfjarðar. Menntaskóli Borgarfjarðar er stofnun sem hefur verið flaggskip sveitarfélagsins og ávallt hefur ríkt sátt um starfssemi skólans. Meirihluti sveitarstjórnar vill einnig koma því á framfæri að skólastarfið muni ekki raskast þrátt fyrir þá stöðu sem skapast hefur í kring um verkaskiptingu stjórnar. Eðlilegt er að huga að ráðningar- ferli á nýjum skólameistara. Það er algjörlega skýrt í okkar huga að um Menntaskóla Borgarfjarðar þarf að ríkja eining og sátt. Öll aðkoma að skipun í stjórn og verkaskiptingu hefur miðað að því að stjórnin væri öflug, hefði þekkingu á málefnum skólans og að um hana gæti ríkt sátt. Sú sátt hefur hinsvegar ekki náðst og mikilvægt er að ekki séu pólitísk átök um stjórn skólans,“ segir í bókunni. Tilbúnir að stíga til hliðar Síðar í bókun meirihlutans segir: „Það var samhugur á fundinum um að endurskoða samþykktir félags- ins með það að markmiði að skerpa á því hvernig stjórn er skipuð m.a. til þess að koma í veg fyrir að póli- tískur ágreiningur skapi ójafn- vægi við stjórnun skólans. Einnig er mikilvægt að skoða með hvaða hætti fulltrúi annarra hluthafa er valinn og hver hans staða innan stjórnar eigi að vera. Farið verð- ur í að vinna bæði drög á breyting- um á samþykktum og að hluthafa- samkomulagi og svo verður boðað til lögformlegs hluthafafundar þar sem skjölin verða lögð fyrir til um- ræðu og afgreiðslu. Nú verður boð- að til fundar með stjórn skólans þar sem sú staða sem þar er uppi verður rædd og stefnt að því að finna lausn á málinu. Fulltrúar meirihluta Borgarbyggðar í stjórn MB hafa lýst því yfir að þau eru bæði tilbú- in að stíga til hliðar, ef að það leysir þann ágreining sem uppi er núna,“ sagði í bókun meirihluta sveitar- stjórnar Borgarbyggðar. Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar í stjórn MB eru Vilhjálmur Egilsson, frá- farandi formaður stjórnar og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir. Fulltrúi annarra hluthafa en Borgarbyggð- ar er Sigursteinn Sigurðsson og fulltrúar tilnefndir af Framsóknar- flokki eru Helgi Haukur Hauksson og Hrefna B Jónsdóttir. mm Þorpið í Flatey verður eftirleiðis skilgreint sem verndarsvæði í byggð. Í því felst að það ber að varðveita í sem upprunalegastri mynd. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra og tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhóla- hrepps, undirrituðu staðfestingu þess efnis við hátíðlega athöfn síð- astliðinn laugardag. Við sama tæki- færi afhenti Reykhólahreppur ís- lenska ríkinu bókhlöðuna í Flatey og verður húsið eftirleiðis í umsjá Þjóðminjasafns Íslands. Greint er frá þessu á Reykhólavefnum. Athöfnin í bókhlöðunni hófst á því að Þorsteinn Bergsson, fram- kvæmdastjóri Minjaverndar, af- henti tryggva lykla að húsinu, en Minjavernd stóð fyrir endurbygg- ingu hennar í kringum 1980. Þor- steinn rakti sögu bókhlöðunnar og sagði frá endurbyggingunni. Þegar hann hafði lokið máli sínu afhenti tryggvi Lilju lykilinn og hélt stutta tölu. Í máli ráðherra kom fram að ekki skipti máli að bókhlaðan í Flat- ey væri minnsta bókasafn á landinu, því innihaldið skipti meira máli en umgjörðin. Landsmenn stæðu í þakkarskuld við þá sem stóðu fyrir stofnun lestrarfélaga um miðja þar- síðustu öld og veittu fólki aðgang að fróðleik og afþreyingu bókanna. Gildi bókasafna í dag væri ekki minna en þá. Að svo búnu fór lykillinn enn á milli lófa, nú frá Lilju ráðherra í hendur Margrétar Hallgrímsdótt- ur þjóðminjavarðar og bókhlaðan í Flatey þar með formlega komin í umsjá Þjóðminjasafns Íslands. Við tilefnið hafði Margrét orð á því að bókhlaðan væri kærkomin viðbót við þau 38 hús sem safnið hefur í umsjá sinni. Bókhlaðan í Flatey er annað húsið við Breiðafjörð sem er í umsjá safnsins, en hitt er Staðar- kirkja á Stað á Reykjanesi. Heimsókn ráðherra í Flatey lauk svo með undirritun skjals sem stað- festir að þorpið í Flatey er vernd- arsvæði í byggð og Guðný Gerð- ur Gunnarsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis, afhenti Reykhólahreppi merki verndar- svæða. kgk Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, fyrir framan bókhlöðuna í Flatey. Ljósm. Sveinn Ragnarsson. Þorpið í Flatey er verndarsvæði í byggð Bókhlaðan í umsjá Þjóðminjasafns Horft yfir þorpið í Flatey á Breiðafirði. Ljósm. úr safni/ Garðar Guðmundsson. Frá undirritun staðfestingar um verndarsvæði í byggð. Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, ásamt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningar- málaráðherra. Ljósm. Sveinn Ragnarsson. Ráðist verður í breytingar á samþykktum og hluthafasamkomulagi MB

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.