Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 9
Náms- og starfsráðgjöf
Nám fyrir fólk með fötlun Raunfærnimat
Nám fyrir atvinnuleitendur
Nám fyrir innflytjendur
Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir
Fræðslustjóri að láni – ráðgjöf og gerð fræðsluáætlana
Þjónusta við fjarnema Áhugasviðspróf
Lærum allt lífið
www.simenntun.is facebook.com/simenntun
„Langmikilvægasta viðhorfið sem myndast getur
er löngun til að halda áfram að læra“
JOHN DEWEY
Húllumhæ hátíðin var haldin á
Bókasafni Akraness á miðvikudag-
inn í liðinni viku. Þar var fagnað
sumarlestri barna á aldrinum sex til
tólf ára sem lauk þetta árið 9. ágúst.
110 krakkar mættu og skemmtu sér
vel en sérstakur aðalgestur mætti
á svæðið til að skemmta krakka-
hópnum. Aðalgesturinn að þessu
sinni var Sævar Helgi Bragason,
eða Stjörnu - Sævar eins og hann
er gjarnan nefndur. Hann kom og
fræddi áhugasaman krakkahópinn
um allskyns staðreyndir um heim-
inn og hvernig hann virkar.
215 börn skráðu sig til leiks í
sumarlestri barna í upphafi sum-
ars, en 150 börn komu reglulega og
skráðu lesturinn samviskusamlega.
Í heildina lásu börnin 1.761 bók,
sem gera samtals 114.306 blaðsíð-
ur. „Börnin hafa staðið sig frábær-
lega vel í lestrinum í sumar,“ seg-
ir Halldóra Jónsdóttir, bæjarbóka-
vörður í samtali við Skessuhorn.
Að auki voru dregin út verðlaun
frá styrktaraðilum, þ.e. Nínu og
Lindex. Að þessu sinni fóru verð-
launin til Dagnýjar Allans 8 ára
og Pétur Inga Jóhanssonar sem er
alveg að verða 8 ára. Að lokinni
skemmtun var öllum velkomið að
þiggja djús og kex frá bókasafninu.
glh. Ljósm/ Bókasafn Akraness.
Pétur Ingi ásamt Stjörnu - Sævari.
Lásu yfir hundrað
þúsund blaðsíður í sumar
Krakkar úr sumarlestri hlýða hér áhugasamir á Stjörnu - Sævar.
Dagný Allans ásamt Stjörnu - Sævari.