Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201916
Fadel A Fadel er borinn og barn-
fæddur Egypti. Í heimalandinu lauk
hann sinni skólagöngu og útskrif-
aðist sem íþróttafræðingur á tíunda
áratugnum. Hann býr nú í Ólafsvík
ásamt fjórtán ára Adam syni sínum,
er í fjarbúð, en kona hans Nevin
Amin býr og starfar í Katar. Eftir
að hafa lokið námi höguðu tilviljan-
ir því svo að hann fór til Íslands og
eftir nokkur ár til Ólafsvíkur. „Ég
flutti til Íslands árið 1996 vegna
þess að frændi minn bjó þá hér á
landi,“ segir Fadel þegar fréttarit-
ari Skessuhorns settist niður með
honum í spjall í liðinni viku. á há-
skólaárum sínum var Fadel valinn í
sundknattleikslandslið Egyptalands
og tók m.a. þátt í undankeppni fyr-
ir Ólympíuleikana í Barcelona árið
1992 og árið eftir fór hann á HM
undir 20 ára.
Tilviljun að leiðin
lá til Ólafsvíkur
„Ég bjó í Reykjavík fyrstu fjögur
árin mín eftir að ég flutti til Íslands.
Vann meðal annars á Hróa Hetti og
við ræstingar. Síðan fór ég í háskól-
ann til þess að læra íslensku, sem
gekk mjög vel. Ég átti ekki svo erf-
itt með að læra tungumálið,“ segir
Fadel á flottri íslensku. „Ég var allt-
af með hugann við að fá að kenna
sund og íþróttir hér á Íslandi.
Svo einn daginn þegar ég opnaði
Morgunblaðið sá ég að það vant-
aði íþróttakennara í Ólafsvík og
hringdi ég þá einfaldlega í skóla-
stjórann í það númer sem gefið var
upp í auglýsingunni. Og já, ég var
ráðinn, en þetta var aldamótaárið
2000. Einn vinur minn sem var að
vinna með mér á Hróa Hetti spurði
mig hvort ég vissi hvar Ólafsvík
væri - og spurði ég á móti hvort það
væri ekki örugglega hverfi í Reykja-
vík? En vinur minn hélt nú ekki og
sagði að það væri svona tveggja tíma
akstur vestur á Snæfellsnes. Jæja, en
ég var engu að síður tilbúinn að
prófa þetta og sló því til,“ rifjar Fa-
del upp. Hann segir það hafa verið
eina af bestu ákvörðunum lífs síns
að flytjast til Ólafsvíkur. „Hér á ég
heima og mér líður hvergi betur en
einmitt í Ólafsvík.“
Óheppinn með
yfirmann
Í Ólafsvík var Fadel allt til árs-
ins 2011 þegar hann fékk tilboð
frá Katar um að taka þátt í þjálf-
un landsliðs þeirra í sundknattleik,
ásamt fimm öðrum þjálfurum. „Það
gekk vel fyrstu árin en svo fóru leik-
ar þannig að ég og hollenskur yfir-
maður minn áttum ekki skap sam-
an og fann hann reyndar öllu sem
ég gerði allt til foráttu. Hann jafn-
vel eignaði sér þá góðu hluti sem
ég hafði gert með liðinu og raun-
ar lagði mig í einelti. Hann var eig-
inlega alveg á móti mér allan tím-
ann sem ég var að þjálfa úti í Kat-
ar. Hann lét mig aldrei í friði í
vinnunni eins og til dæmis þegar ég
fékk efnilega nemendur. Ég kenndi
strákum að synda og að byrja með
boltann í sundlauginni. Ég var með
þá í fjögur ár og á fimmta árinu voru
þessi nemendur tilbúnir að spila og
fór ég þá með þá til Ungverjalands
í æfingabúðir. Ferðin gekk ljóm-
andi vel en þegar ég kom heim með
strákana þá gerði þessi hollenski yf-
irmaður minn lítið úr minni vinnu
og eignaði sér allan heiðurinn, þrátt
fyrir að hann hafi ekki gert hand-
tak. Þetta pirraði mig mikið og
þegar hann frétti að ég hefði mót-
mælt byrjaði hann að baktala mig
inn á skrifstofu Sundsambandsins
og yfirmenn hans trúðu honum.
Sundsambandið ætlaði á þessum
tíma að fækka þjálfurum úr fimm
í þrjá og var ég að sjálfsögðu ann-
ar af þeim sem áttu að fara. á þess-
um tímapunkti gafst ég hreinlega
upp á þessu ástandi og var farinn
að hugsa um að flytja að nýju heim
til Íslands. Ég lít á það sem heima-
land mitt og hér ætla ég að búa í
framtíðinni. Svo fer ég bara til Eg-
yptalands til að heimsækja mömmu
og pabba sem búa þar, en á Íslandi
líður mér best. Ég rifti því samn-
ingi mínum úti í Katar og kom aft-
ur heim til Ólafsvíkur.“
Ríkt land
En Fadel segir að lífið í Katar hafi
verið algjört lúxuslíf. „Ég vann í tvo
tíma á dag og var með 264 fermetra
íbúð á 24. hæð í stórhýsi. Húsnæð-
ið var hluti af launakjörunum. Það
var fínt fólk sem bjó þarna og laun-
in eru hærri en hér á landi, eng-
ir skattar greiddir og góður hiti.
á sumrin gat reyndar orðið mjög
heitt eða allt að 64 gráður og 84%
raki. Þá var of heitt, jafnvel erfitt
að anda, en allar íbúðir og versl-
anamiðstöðvar voru loftkældar og
mikið ódýrara er að lifa þarna en
hér. Samt sem áður leið mér ekki
vel þarna úti, né syni mínum Adam,
en hann er fæddur á Íslandi árið
2005 og er Íslendingur. Adam elsk-
ar rok og rigningu, en konan mín er
fædd og uppalinn í Katar og vinn-
ur sem stjórnandi á sjúkrahúsi þar
úti,“ segir Fadel.
Öryggið stór kostur
„árið 2017 frétti ég að það vant-
aði sundkennara í Ólafsvík og aftur
fékk ég það starf og kom því heim
til Ólafsvíkur ásamt syni mínum
mínum. Það var dáldið nýtt líf fyr-
ir mig og Adam son minn. Það var
svolítið erfitt fyrir Adam tvo til þrjá
fyrstu mánuðina, en núna er hann
kominn með vini og gengur bara
vel hjá honum.“
Fadel segir það besta við Ólafs-
vík vera öryggið sem íbúar búa við.
„Hér er mjög barnvænt umhverfi
og fátt sem þarf að óttast. Hér
þekkja allir alla og er samfélagið
eins og ein stór fjölskylda. Þetta
er mjög ólíkt Katar þar sem þrjár
milljónir manna búa. Þar þorði ég
ekki að láta Adam fara gangandi
í skólann og þorði heldur ekki að
fara að sofa nema læsa öllu heima
við. En hér í Ólafsvík hef ég stund-
um gleymt lyklunum í bílnum og
farið að sofa og er bíllinn enn í sínu
stæði þegar ég vakna um morgun-
inn. Ef slíkt gerðist í Katar eða Eg-
yptalandi væri næsta víst að bílnum
væri stolið,“ segir Fadel.
Hann bætir við að lífið hér heima
sé aðeins erfitt núna þar sem vin-
ir hans, sem voru með honum
að kenna þegar hann kom fyrst
til Ólafsvíkur, eru allir farnir til
Reykjavíkur. Því stefnir hugur hans
þangað þegar Adam hefur lokið
grunnskólanum og leið hans liggur
í framhaldsnám. „Þá er líka mögu-
leiki á að konan mín flytji til Ís-
lands,“ bætir hann við.
Meira félagsstarf
„Það sem vantar helst hér í Ólafsvík
er meira félagslíf, en ég hef kennt
spinning í Sólarsporti þrisvar í viku
meðfram starfi mínu sem sund-
kennari, og svo er nú ekki meira að
gera hjá mér en svo að ég er talsvert
heima að dunda mér til að láta tím-
ann líða. Mér semur mjög vel við
nemendur mína sem ég hef kennt
sund. Núna er ég að fá inn nem-
endur þar sem ég hef einnig kennt
foreldrum þeirra að synda. Bæði
krakkarnir og foreldrar þeirra eru
vinir mínir,“ segir Fadel brosandi.
„Ég lít á Ólafsvík sem heimili mitt“
Rætt við sundþjálfarann Fadel sem á rætur sínar í Egyptalandi og Katar
Fadel A Fadel á vinnustað sínum í Ólafsvík.
Fadel er vinsæll meðal nemenda sinna. Tíundu bekkingar GSNB gerðu þessi skilti sem hanga uppi á vegg í sundlaug Ólafs-
víkur.