Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 15 Við í Brákarhlíð leitum að hjúkrunarfræðingi með faglegan metnað og áhuga á öldrunarmálum Starfshlutfall er samkomulagsatriði og sveigjan- leiki til staðar í samsetningu vakta og bakvakta. Staðan eru laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Brákarhlíð vinnur eftir Eden-hugmyndafræðinni, hér er heimilislegur andi og gott starfsumhverfi í snyrti- legum húsakynnum. Starfið er gefandi, skemmtilegt og krefjandi. Starfsmannahópurinn okkar er öflugur og hefur metnað til að sinna heimilisfólki af kost- gæfni og fagmennsku. Áhugasamir eru velkomnir í heimsókn, nánari upplýs- ingar gefa Jórunn hjúkrunarforstjóri í síma 432-3191 eða Bjarki framkvæmdastjóri í síma 432-3188. Brákarhlíð er hjúkrunar- og dvalarheimili í Borgarnesi með rúmlega 50 rými, nánari upplýsingar um heimilið má sjá á heimasíðu okkar, www.brakarhlid.is SK ES SU H O R N 2 01 9 SK ES SU H O R N 2 01 9 1297. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 27. ágúst kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar. Bæjarmálafundir flokkanna hefjast í september. Bæjarstjórnarfundur á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram erindi frá Sláturhúsi Vesturlands ehf. þar sem óskað var eftir af fá tímabundna aðstöðu til að salta gærur og húðir í gamla frystihúsinu í Brákarey. Byggðar- ráð hafði áður verið fylgjandi því að Sláturhús Vesturlands ehf. fái um- beðna aðstöðu í gamla frystihúsinu í Brákarey undir þá starfsemi sem óskað er eftir. Umsjónarmanni fast- eigna er falið að annast útfærslu er- indisins og ganga frá samningi við forsvarsaðila sláturhússins um fyr- irhuguð afnot af aðstöðu í gamla frystihúsinu í Brákarey. Verður sá samningur lagður fyrir sveitar- stjórn til staðfestingar. mm „Þetta gekk ágætlega í Grímsá og hollið veiddi 28 laxa,“ sagði Ari Little Jósefs- son en hann var að koma úr hörkuholli sem var við veiðar í Grímsá í vikunni sem leið. áin hafði þá gefið 360 laxa. „Við fengum líka talsvert af sjóbirtingi svo við erum sáttir,“ bætti hann við. Dídí Carl- son var einnig við veiðar: „Við feng- um í þessu holli; ég og Daníel á stöngina, sjö laxa og nokkra sjóbirtinga. Grímsá er skemmtilegt lax- veiðiá,“ sagði Didí. gb Skipulagsstofnun kvað í liðinni viku upp úrskurð um frummats- skýrslu vegna stækkunar kjúklinga- bús Matfugls á Hurðarbaki í Hval- fjarðarsveit. Matfugl hyggst stækka búið í allt að 192 þúsund eldisrými, en þau eru 80 þúsund í dag. Stefnt er að byggja allt að fjögur, hundr- að metra löng eldishús sem komi til viðbótar þeim tveimur húsum sem fyrir eru til eldis kjúklinga. Skipu- lagsstofnun hafði það verkefni að leggja mat á umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar. Þegar auglýst var eftir athugasemdum við frummats- skýrsluna sumarið 2018 bárust tvær skriflegar athugasemdir. Annars vegar frá Eyjólfi Jónssyni í Hlíð, nágranna við Hurðarbak, en hins vegar frá Veiðifélagi Laxár í Leir- ársveit. Hafa menn áhyggjur af að svona mikil stækkun búsins hafi í för með sér aukna lyktarmengun, en jafnframt hafa menn lýst áhyggj- um sínum yfir að svo miklu magni áburðarefna úr skít frá fuglunum geti skolað niður í vatnasvið Lax- ár að slíkt gæti haft í för með sér slæmar afleiðingar fyrir lífríki ár- innar. Ólykt versta vandamálið Skipulagsstofnun lagði mat á ýmsa þætti sem haft geta áhrif á um- hverfið. Fjallað er um mengunará- lag vegna næringarefna sem skol- að gæti út frá skít sem dreift verð- ur á nærliggjandi tún. Stofnunin telur að viðmið um dreifingu hús- dýraáburðar í reglum um góða bú- skaparhætti verði haldin. Því taldi Skipulagsstofnun að mengunarálag vegna næringarefna verði óveruleg. Varðandi fráveitu frá búinu telur stofnunin ekki hættu á að hún muni hafa neikvæð áhrif á umhverfið, enda verða byggðir nýir settank- ar við eldishúsin. Skipulagsstofnun telur að veigamestu umhverfisáhrif af stækkun búsins verði vegna loft- mengunar. Þrátt fyrir að reynt verði að halda húsunum þurrum þá verð- ur starfsemin stöðug uppspretta ólyktar og muni þau áhrif aukast meira en sem nemur hlutfalls- legri stækkun búsins. Hægt sé að stýra dreifingu skíts eftir aðstæðum hverju sinni, en öðru máli gegni um lykt frá kjúklingahúsunum. Ekki er gert ráð fyrir hreinsun á útblæstri frá húsunum en Matfugl tilgreindi í erindi sínu margvíslegar aðgerð- ir sem miða eiga að því að draga úr lykt, segir í skýrslu Skipulagsstofn- unar, sem telur að óþefur frá eldis- húsunum muni aukast með stækk- uðu búi en að unnt verði að koma í veg fyrir veruleg óþægindi vegna lyktar frá dreifingu hænsnaskíts. Af því leiðir að Skipulagsstofnun tel- ur að áhrif stækkaðs kjúklingabús muni hafa talsverð neikvæð áhrif á loftgæði vegna ólyktar. Varðand mengun af völdum skítadreifingar segir orðrétt í niðurstöðu Skipu- lagsstofnunar: „Skipulagsstofn- un telur að Matfugl hafi sýnt fram á að ekki séu miklar líkur á því að dreifing kjúklingaskíts muni hafa í för með sér verulega aukinn styrk köfnunarefnis í Laxá. Sú niðurstaða byggir á því að dreifing feli í sér hóflegt magn á hvern hektara eins og gert sé ráð fyrir í starfsleyfi og reglum um góða búskaparhætti.“ Takmörkuð stækkun Í niðurstöðu segir: „Skipulags- stofnun telur að matsskýrslan upp- fylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum.“ Þá telur stofnunin, eins og áður segir, að nei- kvæðustu áhrifin verði vegna ólykt- ar frá eldishúsunum. Fram kemur að talsverð óvissa ríki um hversu mik- il óþægindi nágrannar Hurðarbaks munu upplifa í kjölfar stækkunar búsins. Skipulagsstofnun telur því óráð að ráðast í fulla stækkun búsins í einum áfanga. Því leggur stofnun- in til að heimiluð verði stækkun sem bundin verður við smærri áfanga. Að því búnu verði búið rekið í nokkurn tíma og mat lagt á það hvort heimilt verði að ráðast í frekari stækkun eða hvort lagst verði gegn frekari stækk- un þar sem loftmengun vegna ólykt- ar hafi aukist það mikið að frekar skuli takmarka starfsemina heldur en auka við hana. Starfsleyfi í höndum Umhverfisstofnunar Skipulagsstofnun víkur sér und- an að leggja fram beinar tillögur um hversu stóra áfanga skuli heim- ila í stækkun búsins. „Eðlilegt er að Umhverfisstofnun taki ákvörð- un við starfsleyfisútgáfu um stærð áfanga að teknu tilliti til hagkvæmra eininga framkvæmdaraðila,“ segir í lokaorðum Skipulagsstofnunar um frummatsskýrsluna. mm Fín veiði í Grímsá Skipulagsstofnun leggst gegn fullri stækkun kjúklingabús Ný hús á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði að Hurðarbaki, austan við núverandi eldishús Matfugls, er afmarkað með hvítum brotalínum. Byggingarreitir skv. deiliskipulagi eru afmarkaðir með gulum brotalínum. Teikning: Arkitekt og Ráðgjöf ehf. Fá afnot af fyrrum frystihúsi til gærusöltunar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.