Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201930
Mt: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað er ómissandi í skólann?
Spurni g
vikunnar
(Spurt við FVA á Akranesi)
Heiðar Páll Hilmisson
„tónlist.“
Nikulás Nói Bjarnason
„Vape-ið mitt.“
Ólafur Stefán Eggertsson
„Monster á morgnanna.“
Sonja Eir Fannarsdóttir
„Súkkulaðimjólk.“
Í síðustu viku birtum við meðfylgj-
andi mynd af fallegum dráttarvél-
um í eigu Gunnars Hinrikssonar frá
Helgafelli, sem býr í Stykkishólmi.
Nafn Gunnars misritaðist hins veg-
ar og hann sagður heita Hinrik.
Beðist er velvirðingar á þessu.
mm
Káramenn unnu mikilvægan sigur
í 2. deild karla í knattspyrnu þegar
þeir lögðu ÍR, 3-1, í 16. umferð 2.
deildar karla í knattspyrnu. Leik-
ið var í Akraneshöllinni síðastlið-
inn föstudag.
Eggert Kári Karlsson kom Kára
yfir á 43. mínútu. Fyrirgjöf frá
vinstri sveif yfir varnarmann ÍR á
Eggert Kára sem var einn og óvald-
aður á markteigslínunni og átti
ekki í vandræðum með að leggja
boltann í netið.
Gestirnir jöfnuðu metin snemma
í síðari hálfleik. Káramenn misstu
boltann klaufalega vinstra meg-
in í teignum, gestirnir sendu fyrir
markið þar sem ágúst Freyr Halls-
son skoraði með skoti af stuttu færi.
Heimamenn komust yfir á nýjan
leik á 62. mínútu leiksins þegar
Andri Júlíusson skoraði með góðu
skoti úr vítateignum hægra megin
eftir laglegan sprett. Það var síð-
an Ragnar Már Lárusson sem inn-
siglaði 3-1 sigur Kára á 68. mínútu
með góðu skoti úr vítateignum.
Með sigrinum lyfti Kári sér
upp úr fallsæti og situr nú í 10.
sæti deildarinnar með 17 stig,
tveimur stigum á undan KFG
í sætinu fyrir neðan en fjórum
stigum á eftir Völsungi í sæt-
inu fyrir ofan. Næsti leikur Kára
er gegn Víði í Garði í kvöld, mið-
vikudaginn 21. ágúst. Hann verður
leikinn suður með sjó. kgk
Í síðasta tölublaði var sagt frá úr-
slitum í Flemming Open, púttmóti
sem nýverið var haldið á Hvamms-
tanga. Í fréttinni höfðu úrslit í
kvennaflokki skolast til og beðist er
velvirðingar á því. Rétt voru úrslit-
in í kvennaflokki þessi:
1. Þóra Stefánsdóttir 75 högg
2. ásdís Geirdal 77 högg
3. Lilja Ólafsdóttir 79 högg.
mm
Forsvarsmenn sveitarfélaganna á
Snæfellsnesi voru í skoðunarferð
um Snæfellsnesið í gær, þriðju-
dag. Farin var hringferð um nes-
ið með viðkomu í öllum sveitarfé-
lögum. Samskonar ferð var einnig
farin í fyrra og heppnaðist það vel
að ákveðið var að endurtaka leik-
inn. á myndinni frá vinstri eru þau
Jakob Björgvin Jakobsson bæjar-
stjóri Stykkishólms, Jósef Ólaf-
ur Kjartansson forseti bæjarstjórn-
ar í Grundarfirði, Júníana Björg
Óttarsdóttir formaður bæjarráðs í
Snæfellsbæ, Björn Haraldur Hilm-
arsson forseti bæjarstjórnar í Snæ-
fellsbæ, Kristinn Jónasson bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar, Eggert Kjart-
ansson oddviti Eyja- og Miklaholts-
hrepps, Guðrún Karólína Reyn-
isdóttir oddviti Helgafellssveit-
ar, Ragnhildur Sigurðardóttir frá
Svæðisgarði Snæfellsness og Björg
ágústsdóttir bæjarstjóri Grundar-
fjarðarbæjar.
tfk
Sænska poppstjarnan Zara Larsson
skellti sér í ferðalag um Ísland eftir
að hún hitaði upp fyrir Ed Sheer-
an á Laugardalsvelli um þarsíð-
ustu helgi. Gerði hún sér m.a. ferð
á Akranes og um Snæfellsnes. á
Akranesi heimsótti hún Akranesvita
ásamt móður sinni og fararstjóra,
tók lagið og birti myndband af sér
að syngja á Instagramsíðu sinni
þar sem hún mærði hljómburð vit-
ans. Hilmar Sigvaldason vitavörður
tók á móti hópnum, en hann við-
urkennir að hafa ekki þekkt popp-
stjörnuna þegar hana bar að garði.
„Allan þennan tíma sem þau þrjú
voru í heimsókninni hafði ég ekki
grun um hver þessi stelpa væri,“
segir Hilmar Sigvaldason vita-
vörður léttur í bragði á Facebook-
síðu Akranesvita. „Ég er þess full-
viss að þessi heimsókn eigi eftir að
hafa góð áhrif á Akranesvitann og
Akranes almennt,“ segir Hilmar,
en þegar þessi orð eru rituð hefur
verið horft 780 þúsund sinnum á
myndbandið.
kgk
Gunnar heitir maðurinn
Rétt úrslit í
kvennaflokki
Byrjunarlið Kára fyrir leikinn gegn ÍR á föstudag. Ljósm. Knattspyrnufélag Kára.
Lyftu sér upp úr fallsæti
Skoðunarferð um Snæfellsnes
Zara Larsson á tónleikum.
Zara Larsson söng í Akranesvita
Ferðaðist um Vesturland á dögunum
Sænska poppstjarnan Zara Larsson.
Sigrún Angela Linnet Sigríð-
ardóttir
„Ríkharður Sverrisson.“