Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 17
Landslið Katar í sundknattleik ásamt þjálfurum sínum.
Fæðið er einkamál
Fadel segir að hann sé múslimi og
haldi sinni trú heima við. Í henni
felst að biðja fimm sinnum á dag
og að fasta þegar Ramadan stend-
ur yfir. „En það sem mest fer í
taugarnar á mér er hversu oft ég
er spurður af hverju ég borði ekki
svínakjöt. Mér dettur ekki í hug að
skipta mér af annarra manna trú
eða þá að spyrja til dæmis gyðinga
af hverju þeir borði ekki rækjur
eða þá svínakjöt. Mér kemur ekki
við hvað fólk borðar og finnst
þetta mjög pirrandi spurning. En
ég borða allan annan mat. Fyrir
mér er þetta bara einfalt mál. Ég
veit ekkert af hverju það er bannað
að borða svínakjöt, en ég er ekk-
ert að flækja hlutina,“ segir hann
ákveðinn.
Fara út í jólafrí
Aðspurður um hvort hann ferð-
ist mikið um Ísland svarar Facel
því neitandi. „Ég hef nú ekki gert
mikið af því, en þó hef ég komið
á Gullfoss og Geysi en ég ferðast
þess mun meira erlendis með kon-
unni minni og syni. Ég fer svo til
Katar um jólin þar sem hitinn þar
er mjög góður á þeim tíma, eða um
20 gráður. Konan mín hefur komið
hingað um jólin en þá er oft erfitt
að njóta tímans til ferðalaga vegna
myrkurs og veðra og því betra að
við feðgarnir förum út til Katar í
jólaleyfinu.“
Hér líður mér best
Fadel segir að það sé mikill munur
á matarvenjum á Íslandi og í Katar,
enda Katar mjög ríkt land og mat-
ur þar er mjög ódýr. „Það er virki-
lega góður matur þarna úti. Þótt
konan mín sé afbragðsgóður kokk-
ur pöntum við oft mat heim, bara
með appi, og var ég að panta mat
fyrir konuna mína rétt áður en þú
komst,“ segir Fadel brosandi. „Ég
pantaði bara á appinu flottan mat
sem er bara sendur til hennar og
kostaði maturinn með sendingar-
kostnaði rétt um 1000 krónur ís-
lenskar. En á móti ódýrum mat
kemur að það er dýrt að leigja hús-
næði í Katar, en að vísu eru þetta
allt lúxusíbúðir með öllum þeim
þægindum sem hægt er að hugsa
sér, en ég var að vísu ekki að borga
húsaleigu meðan ég bjó úti þar sem
Sundsamband Katar sá mér fyrir
húsnæði. En fyrir mér eru pening-
ar ekki allt. Þótt ég hefði það mjög
gott í Katar og hafi haft allt til alls,
segir það ekki allt. til marks um
fríðindin sem fólki bjóðast get ég
nefnt að þegar ég fór að taka bens-
ín á bílinn, þá var hann allur þrif-
inn og bónaður um leið og beið
ég bara á veitingastað á meðan og
þáði flottar veitingar. Maturinn og
þrifin á bílnum voru innilfalin í
bensínverðinu. Þetta sýnir hvernig
lífskjör eru allt önnur þarna úti en
hér heima á Íslandi.“
En þrátt fyrir allan lúxusinn
snýst lífið ekki allt um peninga.
„Ef manni líður illa eða finnur sig
ekki í vinnu, á maður ekki að sætta
sig við ástandið. Katar er reynd-
ar mjög öruggt land og lítið um
glæpi. En hjarta mitt slær í Ólafs-
vík og hér líður mér best,“ segir
Fadel að endingu.
af
Fadel, Nevin Amin eiginkona hans og Adam sonur þeirra.
Landsliðsmaðurinn í sundi ásamt félögum sínum.
Náðu lengra með
Tækniþróunarsjóði
Næsti umsóknarfrestur
í sjóðinn er til 16. september
Dagskrá
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur á rannsókna-
og nýsköpunarsviði Rannís, fer yfir:
• Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs
• Skattafrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna
• Nýsköpunarsjóð námsmanna
• Eurostars-2
Áhugasamir hafi samband við svala@ssv.is
www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund
í húsnæði Símenntunar,
Bjarnarbraut 8, Borgarnesi,
fimmtudaginn 29. ágúst, kl. 12.00 – 13.00
Kaffi og meðlæti í boði
SSV
Sautjánda Íslandsmeistaramótið í
hrútadómum fór fram á sunnudag-
inn á Sauðfjársetrinu í Sævangi á
Ströndum. Að venju var fín mæt-
ing og mikið fjör. Fólk kom víða að
af landinu og var gleði og gaman.
Dagurinn snerist ekki einvörðungu
um keppni í hrútaþukli, heldur eiga
þeir sem mæta góðar stundir saman,
spjalla og sitja að kræsingum á kaffi-
hlaðborði, rifja upp gömul kynni og
eignast nýja vini. Þá var happdrætti
með fjölda álitlegra vinninga. Dag-
bjartur Dagbjartsson í Hrísum var
meðal stálheppinna, vann til eignar
hrút frá Böddu og Birni á Melum í
árneshreppi.
Góð þátttaka var í hrútaþukls
keppninni og spreyttu um 60 kepp-
endur sig. Fjölmargir aðrir fylgdust
með eða litu við.
Sigurvegari í flokki vanra hrúta-
dómara, og þar með Íslandsmeist-
ari í hrútadómum 2019, er Jón Þór
Guðmundsson í Galtarholti í Hval-
fjarðarsveit. Í öðru sæti varð Strand-
amaðurinn Sigmundur Sigurðsson í
Lyngási í Kollafirði og þriðji Bjarni
Hermannsson á Leiðólfsstöðum í
Dölum.
Sigurvegari í flokki óvanra hrúta-
þuklara, sem ekki nota stigakerfið
sem þaulvanir bændur nota, varð Dó-
róthea Sigvaldadóttir á Kárastaða-
landi í Borgarnesi. Í öðru sæti varð
Dagrún Ósk Jónsdóttir, náttúrubarn
á Kirkjubóli og í þriðja sæti voru Þór-
ey Dögg Ragnarsdóttir á Heydalsá
og Ólöf Katrín Reynisdóttir í Mið-
dalsgröf, en þær þrjár síðastnefndu
eru Strandakonur og tungusveitung-
ar. mm/ Ljósm. Sauðfjársetrið.
Vestlendingar sigursælir í hrútaþukli
Sigurvegarar í flokki vanra hrútaþuklara.
Fjórar efstu í flokki óvanra þuklara.