Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 23
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Um 600 nemendur verða í námi í
vetur í Háskólanum á Bifröst en um
85% nemenda eru í fjarnámi. Há-
skólagátt er þegar hafin en skóla-
setning hennar var síðastliðinn
föstudag. Skólasetning hjá grunn- og
meistaranámi verður svo á morgun,
fimmtudaginn 22. ágúst. „Við eig-
um von á því að staðnemum fjölgi
nokkuð vegna fleiri erlendra nem-
enda. Við væntum þess að skóla-
starfið gangi vel í vetur og að nem-
endur okkar nái þeim árangri sem
þeir stefna að. Háskólinn á Bifröst
er nemendadrifinn skóli og velferð
og árangur nemendanna okkar er í
fyrirrúmi. Við lítum á hvern nem-
anda sem einstakling en ekki kenni-
tölu og starfslið skólans hefur sem
markmið að laða fram það besta í
hverjum og einum,“ segir Vilhjálm-
ur Egilsson, rektor Háskólans á Bif-
röst, í samtali við Skessuhorn.
Viðskiptafræði í grunnáminu og
forysta og stjórnun í meistaranám-
inu eru vinsælustu greinarnar enda
ekki úr vegi þar sem skólinn er við-
skiptaháskóli og viðskiptafræði-
námið hefur löngum verið burðar-
námið á Bifröst. „Í viðskiptafræði í
grunnnámi er ný áherslulína á verk-
efnastjórnun, í forystu og stjórnun
er þjónandi forysta ný áherslulína
og við bjóðum nú upp á BA nám í
opinberri stjórnsýslu. Í Háskóla-
gáttinni voru ýmsar nýjungar eins
og að taka námið með vinnu,“ bætir
rektorinn við.
Ný kennslukerfi
Skólinn er líka að uppfæra nemenda-
skrárkerfið og kennslukerfið sem er
mikið verkefni að sögn Vilhjálms.
Uglan er nýtt sem nemendaskrár-
kerfi en hún er þróuð af Háskóla Ís-
lands og nýtt í opinberu háskólun-
um. Canvass er nýja kennslukerfið á
Bifröst en það er viðurkennt kerfi á
alþjóðavísu og mjög öflugt.
Eins og hjá flestum menntastofn-
unum í upphafi skólaárs, þá eru ein-
hverjar starfsmannabreytingar hjá
háskólanum. „Heather McRobie er
komin til liðs við félagsvísinda- og
lagadeild, og nýjar í viðskiptadeild
eru Þóra Þorgeirsdóttir og Arn-
ey Einarsdóttir en hún hefur störf
um áramót. Halldóra Lóa Þorvalds-
dóttir er komin aftur eftir ársleyfi.
Lara Becker og María Ólafsdótt-
ir eru að koma úr fæðingarorlofi.
Meðal þeirra sem hafa hætt eru Páll
Rafnar Þorsteinsson og Lilja Björg
ágústsdóttir,“ segir Vilhjálmur um
starfslið við skólann.
Markvisst er verið að bæta að-
stöðuna á Bifröst. Skipt hefur ver-
ið um glugga á heimavistarhúsinu
og vinnuaðstaða þar bætt til muna.
Endurnýjun á skólastofum er hafin
og stöðugt er fjárfest í tækjum og
tæknibúnaði.
Meistaranámið í sókn
Háskólinn á Bifröst er í sífelldri
endurnýjun og leitast við að þjóna
nemendum sínum sem allra best
með margskonar nýjungum í
námsframboði og kennsluháttum.
„Meistaranámið við skólann hefur
verið í sókn á undanförnum árum.
Stefnumarkandi ákvörðun var tek-
in fyrir tveimur árum að sækja fram
í alþjóðavæðingu skólans og bjóða
upp á aukið námsframboð fyrir er-
lenda nemendur. Það er langtíma-
verkefni en eftir 5 – 10 á verður
nám fyrir erlenda nemendur von-
andi sjálfbær stoð í skólanum og
undirstaða enn fjölbreyttara mann-
lífs á Bifröst,“ segir rektorinn að
lokum.
glh
Það eru rúmlega 500 nemendur
skráðir til náms við Landbúnað-
arháskóla Íslands nú þegar kennsla
fer að fara á fullt þetta skólaárið.
Nýnemadagar voru í vikunni, dag-
ana 19.-20. ágúst, og hófst kennsla
í dag samkvæmt stundaskrá. „Við
erum að fara inn í nýtt skólaár með
nýja stefnu fyrir skólann til næstu
fimm ára,“ segir rektor háskól-
ans, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
í samtali við Skessuhorn. „Einnig
erum við að fjölga starfsmönnum og
nemendum og höfum við til dæmis
aldrei fengið fleiri u m s ó k n i r
frá doktorsnemendum,“ bætir hún
ánægð við.
Náttúru- og umhverfisfræði er að
slá öll fyrri aðsóknarmet í skólanum
og einnig er mikil fjölgun í skóg-
fræði að sögn Ragnheiðar. „Svo
virðist sem umræðan um náttúru-
og umhverfismál í þjóðfélaginu hafi
jákvæð áhrif á aðsókn í þessar grein-
ar.“
Vel mannaðar stöður
Vel hefur gengið að manna stöður
fyrir komandi vetur og er skólinn
til dæmis nýbúinn að ráða tvo öfl-
uga akademíska starfsmenn og nýir
doktorsnemar eru að hefja störf á
haustmánuðum og næsta vor. „Þá
eru tveir af okkar starfsmönnum að
fara erlendis í framhaldsnám. Aug-
lýst verða ný störf í stoðþjónustu
á næstu mánuðum á sviði gæða-,
mannauðs-, gagna- og skjalavistun-
ar. Í nýrri stefnu er lögð áhersla á
að efla innviði, kennslu, rannsókn-
ir, nýsköpun og þróun og auka enn
frekar samstarf þvert á fagsvið, bæði
innanlands og alþjóðlegt.“
Landbúnaðarháskóli Íslands er í
stefnu sinni að taka upp sjö venjur
til árangurs sem kenndar hafa verið
á öllum öðrum skólastigum í Borg-
arfirði. „Grunnskólanemendur á
Hvanneyri munu heimsækja okkur
á næstunni og miðla af reynslu sinni
og þekkingu á þessum mikilvægu
venjum,“ segir Ragnheiður aðspurð
um nýjungar sem háskólinn ætlar
að tileinka sér á skólaárinu.
Mikil tilhlökkun
til nýs skólaárs
Skólinn er með þrjár megin-
starfsstöðvar. Þær eru á Hvann-
eyri, Keldnaholti í Reykjavík og að
Reykjum í Ölfusi. Rektorinn segir
að stefnt sé að því að samþætta enn
betur starfsemina á þessum þrem-
ur stöðum. „Það eru alltaf í gangi
umbótaverkefni og er verið að lag-
færa íþróttahús, efla aðstöðu fyr-
ir nemendur og sinna viðhaldi á
Nemendagörðum sem eru fullsetn-
ir í haust. Þá hefur skólinn verið
að endurnýja tækjabúnað ekki síst
á jarðræktarsviði,“ segir Ragnheið-
ur og bætir við: „Í Landbúnaðarhá-
skóla Íslands ríkir bæði tilhlökkun
og gleði yfir því að fá inn nýja nem-
endur og við horfum björtum aug-
um til komandi skólaárs og væntum
þess að við séum að fá framsækna,
duglega og áhugasama nemendur í
skólann. Við horfum bjartsýn fram
á næsta skólaár og væntum þess að
byggja upp enn frekar, efla rann-
sóknir, nýsköpun og kennslu og
auka samstarf við hagaðila.“
glh
Um 500 nemendur hefja nám við Landbúnaðarháskóla Íslands í haust.
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri:
Náttúru- og umhverfisfræði slær öll fyrri aðsóknarmet
600 nemendur verða við nám í Háskólanum á Bifröst. Ljósm. Háskólinn á Bifröst.
Háskólinn á Bifröst:
Líta á hvern nemanda sem einstakling en ekki kennitölu