Skessuhorn - 21.08.2019, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 13
RARIK - Febrúar 2019:
167x214mm
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki í Borgarnesi
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja til starfa á starfsstöð fyrirtækisins í Borgarnesi. Hér
rarik.is/atvinna.
Atvinna
RARIK - ágúst 2019:
167x228mm
•
• Eftirlit með tækjum og búnaði
• Viðgerðir
•
• Vinna samkvæmt öryggisreglum
Helstu verkefni Hæfniskröfur
•
•
• Almenn tölvukunnátta
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
•
Arnarstofninn hefur stækkað jafnt
og þétt undanfarna áratugi eft-
ir að hafa verið í bráðri útrým-
ingarhættu á fimmtíu ára tíma-
bili frá 1920-1970. á vef Náttúru-
stofu Vesturlands kemur fram að í
ár komust fleiri arnarungar á legg
en nokkru sinni og gekk arnarvarp-
ið sérlega vel við sunnanverðan
Breiðafjörð. Arnarstofninn er vakt-
aður af Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, Náttúrustofu Vesturlands og
fuglaáhugafólki. talið er að 87 óðöl
arna hafi verið í ábúð í sumar og
telur stofninn nú um 300 fugla.
mm
Síðastliðinn föstudag hófu UNI-
CEF á Íslandi og crossfit kappinn
Einar Hansberg árnason hringferð
um landið í baráttu gegn ofbeldi á
börnum. Er hann nú í ferð réttsælis
um landið en byrjaði för sína á Vest-
urlandi. Kom við á Akranesi klukk-
an 10 fyrsta morguninn, klukkan
14 var hann í Stykkishólmi, klukk-
an 17 í Búðardal og deginum lauk
svo á Patreksfirði fyrsta kvöldið.
„átak UNICEF á Íslandi gegn
ofbeldi á börnum sem hófst í vor
undir yfirskriftinni Stöðvum felu-
leikinn er enn í fullum gangi. Þá
boðaði UNICEF byltingu fyrir
börn og nær ákakið hámarki með
ferð Einars Hansberg. Hann fer
hringinn í kringum landið til að
styðja baráttu UNICEF á Íslandi
gegn ofbeldi á börnum með held-
ur óvenjulegum hætti. Einar, fjöl-
skylda hans og vinir, stoppa í 36
sveitarfélögum á einni viku þar sem
Einar ætlar að róa, skíða eða hjóla
13 þúsund metra á hverjum stað,
einn fyrir hvert barn sem verður
fyrir ofbeldi á Íslandi. Í heildina
mun Einar því fara um 500 kíló-
metra,“ segir í tilkynningu.
Markmið átaksins er að vekja at-
hygli á því hversu alvarlegt ofbeldi
gegn börnum á Íslandi er (13.000
börn á Íslandi verða fyrir ofbeldi
fyrir 18 ára afmælisdaginn sinn),
þrýsta á stjórnvöld að standa vakt-
ina og búa til breiðfylkingu fólks
sem heitir því að bregðast við of-
beldi gegn börnum. Nú þegar hafa
yfir 11 þúsund manns skrifað undir
ákall UNICEF. „Það er svo auðvelt
að horfa í hina áttina og vonast til
að einhver annar taki slaginn. En
það þarf ákveðið hugrekki til að rísa
upp og taka slaginn sjálfur,“ seg-
ir Einar spurður hvers vegna hann
hafi ákveðið að hefja þessa áskor-
un. Hann hyggst síðan enda hring-
ferðina með því að hlaupa heilt
maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu
laugardaginn 24. ágúst til stuðnings
UNICEF.
Samhliða hringferðinni mun
UNICEF á Íslandi ítreka áskorun
sína á sveitarfélög landsins að taka
þátt og bregðast við ofbeldi á börn-
um. UNICEF hefur nú þegar sent
ákall á öll sveitarfélög landsins og
mun nýta slagkraftinn sem mynd-
ast með hringferðinni til að þrýsta
á að öll sveitarfélög landsins setji
sér skýra viðbragðsáætlun gegn of-
beldi. Hægt er að skrifa undir ákall
UNICEF á vefslóðinni: https://
feluleikur.unicef.is/
mm
Arnarvarpið gekk
sérlega vel við
sunnanverðan Breiðafjörð
Fer hringferð í baráttu gegn
ofbeldi á börnum
Einar Hansberg byrjaði róðurinn á Akranesi og iðkendur frá Crossfit Ægi komu og réru með honum fyrstu metrana.
Ljósm. arg