Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Árshátíð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi var
haldin síðastliðinn laugardag. Í tilefni hennar var degin-
um áður blásið til keppni meðal starfsfólks um best skreyttu
deildina. Í ár voru ævintýri þema keppninnar. Hún fór þannig
fram að fulltrúi hverrar deildar dró eitt ævintýri og skreyttu
starfsmenn síðan sínar deildir eftir því þema. Ævintýrin voru
Hans og Gréta, Mjallhvít, Þyrnirós, Frozen, Nemó, Strump-
arnir, Harrý Potter, Lísa í Undralandi, Konungur ljónanna,
Mary Poppins og Ronja Ræningjadóttir. Fengnir voru fjórir
utanaðkomandi til að dæma keppnina og heimsóttu þeir all-
ar deildir fyrir hádegi á föstudaginn. Dómnefndin var skipuð
þeim tinnu Grímarsdóttur, Hrafnhildi Harðardóttur, Samú-
el Þorsteinssyni og Stefni Erni Sigmarssyni.
Það var greinilegt að starfsfólk tók keppninni alvarlega. All-
ar deildir voru skreyttar og mikill metnaður lagður í skreyt-
ingarnar. Sumar deildir voru með leikþátt í tengslum við sitt
þema, aðrir klæddu sig upp í búninga og enn aðrar deildir
lögðu allt sitt púður í skreytingar. En það sem mest er um
vert er að allir sem tóku þátt höfðu bersýnlega gaman af og
vakti framtakið mikla lukku meðal starfsfólks og skjólstæðinga
sjúkrahússins.
Eftir miklar bollaleggingar komst dómnefnd loks að nið-
urstöðu. Fyrsta sætið kom í hlut heilsugæslunnar, en þema
hennar var ævintýrið um Hans og Grétu. Í öðru sæti var
skurðdeildin og ævintýrið um Ronju Ræningjadóttur, en
þriðja sætið kom í hlut ritaranna, en þema þeirra var ævintýr-
ið um Nemó. hh
Ævintýraleg árshátíð HVE
Hans og Gréta og nornin í nammihúsinu. Nornin var dugleg að
bjóða dómnefndinni nammi á meðan hún lét Hans borða brauð og
fitna. Hér sjáum við Frozen, Ólafur lét sig ekki vanta.
Nemó þótti best skreytta ævintýrið og eins og má sjá var ekkert
plast ofan í sjónum þar á bæ.
Við erum stödd undir yfirborði sjávar í ævintýri Nemós. Í loftinu smá
sjá hvar baðgestur spriklar með fæturna ofan í sjónum.
Hér má sjá Mjallhvíti og dvergana sjö. Dómnefndinni var boðið upp
á epli sem hún reyndar þáði ekki, enda gætti hún hlutleysis og þáði
ekki mútur.
Strumparnir ásamt Kjartani og Brandi, en sem betur fer voru þeir
sofandi.
Þyrnirósarævintýrið var flutt með flottum og vel æfðum leikþætti.
Starfsmenn HVE í gervum persóna úr Lísu í Undralandi.
Ronja Ræningjadóttir og félagar hennar í fullum skrúða. Það ævin-
týri hreppti annað sætið að mati dómnefndar fyrir stórskemmtilega
framkomu og leikþátt.
Starfsfólk skurðdeildar, í gervi persóna úr ævintýrinu úr Ronju
Ræningjadóttur, bauð dómnefnd upp á púrtvín og súkkulaði.