Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201914
Guðni th. Jóhannesson, forseti Íslands, sótti Borgarnes heim
síðastliðinn miðvikudag. tilefnið var hinn árlegi forvarnar-
dagur forseta, sem haldinn er á hverju hausti í flestum grunn-
og framhaldsskólum landsins. Á deginum er sjónum sérstak-
lega beint að unglingum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í
framhaldsskólum.
Forsetinn fékk góðar móttökur unglingastigs Grunnskól-
ans í Borgarnesi og nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar þeg-
ar hann mætti í Hjálmaklett. Í ávarpi vék Guðni meðal annars
að því að hann teldi hræðsluáróður, boð og bönn, ekki réttu
leiðina til að halda ungmennum á beinu brautinni. Forvarnir
og samræður væru betur til þess fallnar, ekki síst samstal for-
eldra og ungmenna. Þá ræddi hann sérstaklega um rafrettur
og orkudrykki, en sérstök áhersla er lögð á þetta tvennt á for-
varnardeginum í ár, auk þess sem áhersla er lögð á mikilvægi
svefns.
Eftir erindi forsetans skiptu nemendur sér upp í fimm
manna vinnuhópa. Þeir fengu umræðupunkta um áfengis-
neyslu ungmenna og forvarnir. Hver hópur skipaði ritara sem
nótaði hugmyndir og umræður hjá sér. Eyðublöðin verða síð-
an send landlækni.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, skólameistari MB, sagði ung-
mennunum síðan stuttlega frá stuttmyndasamkeppni sem
haldin er í tengslum við forvarnardaginn. Öllum nemendum,
fæddum á árunum 2003-2005, gefst kostur á að taka þátt í
stuttmyndakeppni þar sem unnið er með þætti sem geta dreg-
ið úr áhættuhegðun. Skilafrestur myndanna er 11. nóvem-
ber og verða veitt þrenn verðlaun; fyrir bestu myndina, þá
skemmtilegustu og þá frumlegustu.
Að lokum hélt Sölvi tryggvason fjölmiðlamaður einnig er-
indi í Hjálmakletti. Hann ræddi um orkudrykki, skjánotkun,
mikilvægi góðs og reglulegs nætursvefns og sambandið milli
þessara atriða. Nefndi hann dæmi úr eigin lífi hvernig hann
hefur sett sjálfum sér skýrar reglur um skjánotkun og hvatti
alla til að stilla neyslu koffíns í hóf.
kgk
Miðvikudaginn 2. október var
starfsdagur í flestum skólum á Snæ-
fellsnesi. Þá var skólamálaþing
snæfellskra skólastofnana haldið á
Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Mjög
góð mæting var á þingið en undir-
skrift þess var „líðan og samskipti í
skólastarfi“. Eyþór Eðvarðsson hjá
Þekkingarmiðlun var með fyrirlest-
ur um hamingju, móral, vinnugleði
og helvíti á vinnustöðum en þar var
farið yfir samskipti. Sigurborg Kr.
Hannesdóttir stýrði svo umræðum
um líðan og samskipti í skólastarfi.
Aðferðin sem notuð var í umræðum
kallast Opið rými eða Open Space
technology þar sem þátttakendur
geta stungið upp á umræðuefnum
sem síðan eru rædd í smærri hóp-
um. tfk
Skólamálaþing snæ-
fellskra skólastofnana
Forsetinn á forvarnardegi í Borgarnesi
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tyllti sér í miðjan nemendahópinn og
hlýddi á stutt erindi Guðrúnar Aðalsteinsdóttur skólameistara áður en hann var
sjálfur kallaður upp á svið.
Formenn nemendafélaga grunnskólans og menntaskólans færðu forsetanum
gjöf. F.v. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Elís Dofri G Gylfason, formaður
Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar og Elínóra Ýr Kristjánsdóttir, for-
maður Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi.
Nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar og unglingadeildar Grunnskólans í
Borgarnesi hlýða á erindi forsetans.
Forseti og kannski verðandi forseti? Nemendur á unglingastigi grunnskólans ræða málin við
forsetann.
Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, tekur
stöðuna á einum umræðuhópnum. Forsetann munaði ekkert um að stilla sér upp á myndum
með nemendum þegar þess var óskað.
Menn létu fara vel um sig í hópavinnunni.
Sölvi Tryggvason hélt erindi fyrir krakkana um orkudrykki,
skjánotkun og svefn.Nemendur MB í Hjálmakletti á miðvikudaginn.