Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201920
„Jóga er allur pakkinn, líkams-
rækt, núvitund, slökun, hugleiðsla
og bara allt það sem lætur okk-
ur líða betur,“ segir Helga Guðný
Jónsdóttir, jógakennari á Akranesi,
í samtali við Skessuhorn. Helga
Guðný kynntist jóga fyrst í kring-
um aldarmótin þegar hún mætti
í jógatíma í Kópavogi en það var
svo ekki fyrr en árið 2011 þegar
áhuginn á jóga kviknaði hjá henni.
Hún fór þá í Hot jóga á Akranesi
og leiddi það til þess að hún ákvað
að taka kennsluréttindi í jóga. Hún
byrjaði á að taka kennsluréttindi
í Hatha jóga sem er frekar hefð-
bundið jóga. Þar fer fólk í ákveðnar
stöður og heldur þeim í smá tíma
og lætur andardráttinn vinna með.
Hún tók einnig kennsluréttindi
í Vinyjasa jóga, sem hefur aðeins
meira flæði. Þar er farið úr einni
stöðu yfir í aðra nokkuð ört. „Jóga
er í grunninn alltaf það sama, þetta
er alls konar iðkun, eða stöður, sem
unnið er með á margvíslegan hátt,“
segir Helga Guðný sem hefur síð-
ustu ár verið dugleg við að afla sér
þekkingar, reynslu og kennslurétt-
inda í ýmsum tegundum jóga.
Bjó í Hong Kong
Helga Guðný er fædd í Reykjavík
en ólst upp frá fimm ára aldri á Eyr-
arbakka, þar sem foreldrar hennar
búa enn í dag. Eftir að hún lauk
grunnskóla flutti hún til ömmu
sinnar og afa í Reykjavík þar sem
hún stundaði samkvæmisdans og
keppti í greininni. Árið 1996 flutti
hún til Hong Kong ásamt þáver-
andi kærasta sínum sem var boðið
þar starf við að kenna samkvæm-
isdansa. Helga Guðný vann meðal
annars á líkamsræktarstöð og sem
nemi á hárgreiðslustofu á meðan
hún bjó úti. Árið 2002 flutti hún
aftur heim á Eyrarbakka en hafði
þá slitið samvistum við kærastann.
„Það voru viðbrigði að fara frá
Hong Kong til Eyrarbakka,“ segir
hún og hlær. „Í Hong Kong er allt-
af líf og fjör og nóg um að vera all-
an sólarhringinn. Sumir halda því
fram að Bandaríkin séu land tæki-
færanna en ég vil meina að það sé
frekar Kína og Hong Kong. Þar er
hægt að láta alla drauma rætast ef
fólk er nógu staðfast. En þó það
hafi verið virkilega gaman að búa
í Hong Kong gaf þessi tími mér
líka 100% vissu um að Ísland er
besta land í heimi,“ bætir hún við
og brosir.
Eftir heimkomuna fór Helga
Guðný í Iðnskólann og kláraði
hárgreiðslunámið og fór í kjölfar-
ið að vinna á hárgreiðslustofunni
Hársögu. Hún kynnist manninum
sínum, sem er fæddur og uppal-
inn á Akranesi, og flytur með hon-
um á Akranes árið 2005 og fór að
vinna á Hárhúsi Kötlu. Árið 2008
tók hún aðra stefnu og fékk starf
í bókabúðinni, þar sem hún vann
í um átta ár eða þar til hún eign-
aðist yngsta barnið sitt af þrem-
ur. „Ég fór svo að vinna hjá Kaju
á kaffihúsinu svona í hlutastarfi en
þegar hún flutti kaffihúsið í núver-
andi húsnæði vann ég þar alla daga
þar til ég hætti núna síðasta sum-
ar,“ segir Helga Guðný og bætir
því við að hún sé núna að vinna á
sjúkrahúsinu á Akranesi.
Minnisstæður salur
„Ég hef alltaf verið mjög andleg
manneskja og jóga á vel við mig.
Það hefur alltaf blundað í mér að
gera eitthvað meira varðandi jóga
en ég hef bara ekki haft kjark til
þess. Það er eitt að læra eitthvað en
svo er annað að ætla að miðla því
áfram til annarra. Ég hef verið með
stutt námskeið svona við og við en
það var ekki fyrr en sumarið 2018
eftir að ég hafði klárað jógakennara-
nám frá Yogaworks í Los Angeles í
Bandraríkjunum. Þar eru kennarar
sem fara um allan heim með nám-
skeið og komu hingað og kenndu
í sal Yoga og heilsu í húsnæði þar
sem Hótal Ísland var áður. Það var
dásamlegt að iðka jóga þarna á svið-
inu þar sem ég hafði gert svo margt
áður. Ég hef dansað á þessu sviði
þegar ég var í samkvæmisdönsum,
ég var hármódel þarna einu sinni
og eitt sinn fór ég á framhalds-
skólaball þarna og seinna á tón-
leika með Nick Cave. Maður hef-
ur alveg tjúttað í þessum sal og nú
hef ég lært jóga þar líka,“ segir hún
og hlær. Helga Guðný ákvað eft-
ir þetta námskeið að fara að kenna
meira og byrjaði á að setja upp Fa-
cebook síðu undir nafninu Yogandi.
Hún er með aðstöðu í húsnæði þar
sem Heilsan mín er, við Suðurgötu
á Akranesi, á fimmtudagskvöldum.
„Draumurinn er að komast í hús-
næði þar sem ég get haft fleiri nám-
skeið en þessi salur er notaður af
mörgum og er því ekki alltaf laus.
En ég ætla bara að byrja hægt og
rólega og sjá hvernig þetta þróast.
Mér liggur ekkert á og vil bara gera
þetta vel,“ segir hún.
Yin jóga námskeið
Aðspurð segir hún jóga henta öll-
um. „Jóga er ekki endilega það
sama fyrir alla, það getur verið mis-
jafnt eftir formi okkar, líkamsbygg-
ingu eða dagsformi en það geta all-
ir stundað það. Í jóga er alltaf mik-
il áhersla á að aðlaga stöðurnar að
hverjum og einum, sem er ekk-
ert mál. Núna er ég með nám-
skeið í Yin jóga, sem gengur út á
stöður sem eru annað hvort niðri
við gólf eða upp við veggi. Hverri
stöðu er haldið frekar lengi eða al-
veg frá einni mínútu upp í tíu mín-
útur. Það er mikil áskorun og snýst
í rauninni um að teygja vel á band-
vefnum um vöðvana okkar og ná
góðri núvitund og slökun. Í lokin er
ég svo með leidda slökun í 20 mín-
útur, algjöra dekurhvíld,“ útskýr-
ir Helga Guðný og brosir. „Það er
misskilningur að jóga sé eitthvað
hægt og leiðinlegt sem reynir ekk-
ert á af alvöru. Þú getur vel reynt
á þig og svitnað í jóga auk þess að
verða stæltur og sterkur. Jóga eyk-
ur þol, liðleika, styrk og sjálfsaga,“
segir hún.
Jóga er lífsspeki
Spurð hvort það sé mikil aðsókn
í jóga segir hún vinsældirnar hafa
vaxið mikið undanfarið víða á
landinu en að fáir séu að stunda
jóga á Akranesi. „Vinsældirnar
hafa ekki alveg náð hingað. Ég
held að margir hafi smá fordóma
gagnvart jóga og tengja það jafn-
vel við trúarbrögð eða sértrúar-
söfnuð. Jóga á ekkert skylt við
trúarbrögð heldur er það lífsspeki
þar sem markmiðið er að ná þess-
ari fullkomnu slökun og núvitund
auk þess að styrkja líkamann. Ekki
það að ég held að Búdda sé kannski
sá eini sem hefur nokkurn tímann
náð uppljómun, eða nirvana. Það
er eitthvað sem krefst þjálfunar,“
segir hún og hlær; „en við vinnum
okkur alltaf í þessa átt.“
Sundfélagið á Akranesi hafði
samband við Helgu Guðnýju
og fékk hana til liðs við sig. „Ég
er með jógakennslu fyrir sund-
félagið einu sinni í viku og iðk-
endurnir hafa verið mjög ánægð-
ir og vilja halda áfram. Þau finna
að þetta gerir þeim gott og getur
hjálpað þeim í sundinu. Jóga eyk-
ur liðleikann og hjálpar þeim að
ná betri stjórn á andardrætti og
að teygja betur úr sér. Þetta eru
þættir sem gagnast þeim mikið í
sinni íþrótt,“ segir hún og bætir
því við að jóga geti gagnast öllu
íþróttafólki að ná betri árangri í
sínum greinum.
arg
Veiðileiðsögumenn eru kynja-
skepnur, fyrir sumum eru þeir ein-
ungis bílstjórar sem koma veiði-
manninum, sem er oftar en ekki í
misjöfnu ástandi (það fer eftir því
hvernig veiðin gengur), á milli
staða. Þá er það stundum tilfell-
ið að um samspil vínanda og blóðs
sem ræður úrslitum hvernig veið-
in gengur. Hjá sumum, því ber
að halda til haga. Sumir breytast í
veiðininjur þegar prómilhlutfallið
eykst og moka fiski upp á meðan
aðrir breytast í ítalsk ættaða spag-
hettígerðarmenn þegar ofskömmt-
un á sér stað, flugulínan verður að
fallegu bolognese á vatnsyfirborð-
inu og hræðir allt kvikt sem fyrir-
finnst í hylnum. En svo fyrir öðrum
eru þeir vinir, sálusorgarar, áheyr-
endur, snillingar, heimspekingar,
aðstoðarmenn, meðdrykkjendur.
Ekki ólíkt því að vera bara eins og
prestar í kirkju. Við leit í texta er
þessi skilgreining á presti: „Prest-
ur er sá aðili sem annast guðsþjón-
ustur eða helgihald fyrir trúbræð-
ur sína. Prestar eru almennt álitnir
vera í góðu sambandi við almættið
og leitar fólk oft til presta til að fá
ráðgjöf í andlegum málefnum sem
og öðrum.“
Þetta sumar reyndi mjög á þessa
tengingu veiðileiðsögumanns-
ins og laxfisks í ám á Vesturlandi.
Undirritaður starfaði við veiði-
leiðsögn í sumar og upplifði þetta
ástand beint í æð. Í raun er það
búið að taka mig rúma tvo mán-
uði að skrifa þennan pistil, ég geng
ekki svo langt að skilgreina mig
og fleiri með streituáfallaröskun,
en þetta varð mjög hárugt á tíma-
bili. Þegar áin var sem minnst í
flæði vorum við leiðsögumennirn-
ir eins og zebrahestar á þurrkatíma
að leita að hyljum sem voru nægi-
lega djúpir til þess að festa ekki ör-
túbuna í botninum. Ég fékk sting
í hjartað þegar ég þurfti að fylla
á Camelbak-inn minn þar sem ég
stóð úti í ánni og hún rétt náði mér
yfir ökkla, ég var með það sem ég
kýs nú að kalla vatnsviskuvit.
Biblíusögurnar rifjuðust upp
fyrir mér þegar ég stóð og hnýtti
græna örtúbu á stærð við rykkorn á
taum sem var þynnri en mannshár,
ég var að leita að svörum. Ég hafði
ekki áhuga á því að vera eins og
Liverpool aðdáendur gærdagsins;
„...þetta hlýtur að lagast“ heldur
hlaut þetta að vera eitthvað meira,
æðra. Þarna var verið að reyna á
kjarna okkar tilvistar, trúna á hæfi-
leika okkar sem leiðsögumenn.
Var þetta sumar verk Satans? Er
ég Job? Maðurinn sem Satan fékk
leyfi hjá Guði að pína og kvelja,
allt til þess að fá hann til að for-
mæla guði sínum. Gat ég formælt
laxinum fyrir að koma ekki í ána,
gat ég formælt rigningunni fyrir
að koma ekki? Þá kemur spurning
á móti, formælirðu ljóninu fyrir að
rífa gazellunna í sig eða hatarðu
fjallið sem stíflaði ána með aur-
skriðu sinni? Náttúran gerir eins
og hún vill og það er ekkert sem
maður getur gert í því, þó maður
sé í Simms fatnaði.
Þetta er farið að líta út eins og
hugleiðing í messu. Kannski hefði
ég átt að verða prestur?
Með kveðju,
Axel Freyr Eiríksson, Ferjukoti.
„Ég hef alltaf verið mjög andleg manneskja“
-segir Helga Guðný Jónsdóttir jógakennari
Helga Guðný Jónsdóttir jógakennari. Ljósm. arg.
Pstiill - Axel Freyr Eiríksson
Trúin flytur fjöll (og lax)