Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201926
Starfsfólk Skessuhorns undirbýr
þessa dagana flutning skrifstof-
unnar í annað húsnæði. Skrifstof-
an hefur síðan 2003 verið rekin við
Kirkjubraut 56 en mun föstudag-
inn 25. október nk. verða flutt að
Garðabraut 2A á Akranesi, fyrstu
hæð (áður skrifstofa Sjóvá). Af þeim
sökum verður skrifstofan lokuð eft-
ir hádegi föstudaginn 25. október.
Eins og gerist á góðum heimilum
á gamalt dót það til að safnast upp
í geymslum. Margir rúmmetrar af
pappír, ónýtum húsgögnum, úr-
sérgengnum tölvum og -búnaði, er
nú á leið í förgun og endurvinnslu.
Lögð er sérstök áhersla á að varð-
veita allar ljósmyndir sem teknar
hafa verið síðustu 22 árin, frá því
útgáfan hóf göngu sína. Á með-
fylgjandi myndum má sjá hluta þess
sem safnast hefur saman og fargað
verður.
mm
Eftir dásamlega og bjartsýna spjall-
ið um framtíð Afríku sem ég átti á
norsku við súdanska verkfræðing-
inn Adbeletif, sem flest ykkar lás-
uð um í síðasta blaði, þá steig ég út
úr flugstöðinni í Niamey í Níger
og á 40°C stiga hitavegg. Mín elsku
besta kærasta var þarna til að taka á
móti mér en brosið hennar var eitt-
hvað veikt. Við föðmumst og hún
baðst afsökunar á kraftleysinu sínu í
faðmlaginu, hún taldi mögulegt að
hún væri komin aftur með malaríu,
í þriðja sinn á þessu ári.
Hún er samt alveg einstök og vildi
ekkert láta vorkenna sér eða vera
með neinn aumingjaskap. Klukkan
var orðin margt, það var vinnudag-
ur daginn eftir og hún sagði að best
væri að koma sér beint heim, sér-
staklega núna þegar myrkrið væri
skollið á. Við hoppuðum upp í litla
bláa bílinn hennar og hún brunaði
inn í borgina. Ég var kannski eins
og hundur í framsætinu þegar ég
setti höfuðið út um gluggann, upp-
fullur af spenningi við að sjá borg-
ina betur. Ég komst mjög fljótlega
að því að allar mínar kvartanir út í
umferðareglur, hámarkshraða og
holótta vegi heima á Íslandi fóru í
gegnum hugann minn og svo út um
gluggann á leiðinni.
Ég hef aldrei séð neitt þessu
líkt. Í myrkrinu sá ég ekki mikið af
borginni sjálfri en ég gat bara ekki
hætt að stara út um gluggann. Því-
lík mannmergð og alls konar um-
ferð! Við keyrðum fram hjá enda-
lausum bílskrjóðum sem stundum
voru bundnir saman með reipum í
bland við að keyra framhjá einum
og einum glæsibíl. Inn á milli voru
heimagerðir vagnar dregnir áfram
af ösnum og fólk þeyttist inn á milli
bíla á mótorhjólum og reiðhjól-
um, en ótrúlegast af öllu voru svo
hugrökkustu gangandi vegfarend-
ur sem ég hef séð. Það fólk stökk
áfram skref fyrir skref, en þess á
milli stóð það grafkyrrt á meðan
bílarnir og hjólin brunuðu bara
hársbreidd framhjá. Allt gert af yf-
irvegun til þess að komast í gegnum
umferðina og fara yfir veginn. Ég
hef enn ekki séð neinar nothæfar
gangbrautir hérna í höfuðborginni.
Kærastan sá mig gapa og sagði:
„Þú venst þessu, maður þarf bara
að keyra sérstaklega varlega í bland
við að vera mjög ákveðinn. Það eru
ekki beint umferðarreglur hérna,
en samt stundum, sérstaklega á
hringtorgunum þegar löggan er að
reyna að fá mútur. Ekki vera kurteis
því enginn annar er það og passaðu
þig sérstaklega á mótorhjólunum.
Hafðu gluggann opinn til að kæla
bílinn en lokaðu fljótt ef við verð-
um stopp á veginum svo að sölu-
mennirnir og betlararnir fari ekki
með hendurnar inn. Þetta er allt í
góðu, þú venst þessu.“
Á endanum komumst við heim.
Vinalegi öryggisvörðurinn opnaði
hliðið og fyrir innan háu veggina
var þessi litla paradís sem núna er
heimilið mitt. Háar plöntur um-
kringja fallegt hús með lítilli sund-
laug. Ég tók eftir að það eru járn-
rimlar á hverjum glugga og ekk-
ert gras í garðinum, bara sandur,
en samt var þetta svo vinalegt við
fyrstu sýn. Sérstaklega vinalegt var
þegar varðhundarnir komu hlaup-
andi að mér, dillandi rófunni og
greinilega til í að leika frekar en að
verja húsið.
En þessi nótt var samt erfið,
elsku kærastan varð veikari og veik-
ari. Hún var búin að fara tvisvar á
síðustu dögum í blóðprufu til að
kanna hvort hún væri með malar-
íu en niðurstaðan alltaf neikvæð,
læknirinn sem hún hitti sagði að
þetta væri líklegast bara kvef eða
flensa. Hún þekkti samt einkenn-
in, hún hafði upplifað þetta tvisv-
ar áður en aldrei var þetta svona
slæmt. Ég hjúkraði henni yfir nótt-
ina og allan næsta dag, og hún fór
auðvitað ekkert í vinnuna. En um
kvöldið var hún komin með hita vel
yfir 40°C, skalf og barðist við upp-
köst. Hún var samt alltaf að reyna
að gera lítið úr þessu, hún er hörku-
tól sem vill helst bara hrista hlutina
af sér, en það var augljóst að hún
varð að komast til læknis.
„Allt í lagi, en þú verður þá að
keyra mig þangað. Ég skal leið-
beina þér á réttan stað,“ sagði hún
veiklulega þegar ég fór með hana
út í litla bláa bílinn. Ég dró djúpt
inn andann og keyrði af stað út um
hliðið. Það voru skaflar af rauðum
sandi á veginum og hverjum hefði
grunað að reynslan frá því að keyra
í íslenskum vetri myndi gagnast
hér? Ég náði að fara á hraðanum
yfir sandinn án þess að festa bíl-
inn og fékk veiklulegt hrós frá kær-
ustunni í farþegasætinu, því það er
víst frekar algengt að festast í þessu.
Svo kom að því að takast á við
brjáluðu og stjórnlausu umferðina í
gegnum borgina. Einhvern veginn
komumst við í gegnum þetta allt
og á leiðarenda. Kærastan komst
til læknis, þetta var svo sannarlega
malaría og hún fékk lyf og góða
meðferð. Hún er sem betur fer
núna, mörgum dögum síðar, orðin
nokkuð hress aftur og samkvæmt
blóðprufu blessunarlega alveg laus
við malaríuna.
Ég er að venjast þessu lífi hérna
og náttúrulega vona að ég fái ekki
malaríu. Himinn og jörð venjulega
farast í mínum huga ef ég upplifi
smá kvef, þannig að ég efa að ég
muni takast á við malaríu af sömu
hörku og kærastan. Svo er ég auð-
vitað sérstaklega að venjast umferð-
inni hérna, og ég get sagt ykkur að
ég mun líklegast kyssa hið marg-
umrædda og umdeilda 30 km há-
markshraðaskilti í Borgarnesi næst
þegar ég kemst heim til Íslands. Ég
þrái í dag ekkert meira en hæga og
hófstillta umferð.
Höfundur er Borgnesingur sem
elti nýverið ástina til Níger og skráir
ferðasögu sína í Skessuhorn.
Flutningur skrifstofu Skessuhorns í undirbúningi
Skaflar af rauðum sandi og ökulexíur í Níger
„Svo eru menn að kvarta yfir einu 30 km hraðaskilti við Borgarbraut!“
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Dæmigerð umferð í Niamey í Níger.