Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2019, Side 26

Skessuhorn - 09.10.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201926 Starfsfólk Skessuhorns undirbýr þessa dagana flutning skrifstof- unnar í annað húsnæði. Skrifstof- an hefur síðan 2003 verið rekin við Kirkjubraut 56 en mun föstudag- inn 25. október nk. verða flutt að Garðabraut 2A á Akranesi, fyrstu hæð (áður skrifstofa Sjóvá). Af þeim sökum verður skrifstofan lokuð eft- ir hádegi föstudaginn 25. október. Eins og gerist á góðum heimilum á gamalt dót það til að safnast upp í geymslum. Margir rúmmetrar af pappír, ónýtum húsgögnum, úr- sérgengnum tölvum og -búnaði, er nú á leið í förgun og endurvinnslu. Lögð er sérstök áhersla á að varð- veita allar ljósmyndir sem teknar hafa verið síðustu 22 árin, frá því útgáfan hóf göngu sína. Á með- fylgjandi myndum má sjá hluta þess sem safnast hefur saman og fargað verður. mm Eftir dásamlega og bjartsýna spjall- ið um framtíð Afríku sem ég átti á norsku við súdanska verkfræðing- inn Adbeletif, sem flest ykkar lás- uð um í síðasta blaði, þá steig ég út úr flugstöðinni í Niamey í Níger og á 40°C stiga hitavegg. Mín elsku besta kærasta var þarna til að taka á móti mér en brosið hennar var eitt- hvað veikt. Við föðmumst og hún baðst afsökunar á kraftleysinu sínu í faðmlaginu, hún taldi mögulegt að hún væri komin aftur með malaríu, í þriðja sinn á þessu ári. Hún er samt alveg einstök og vildi ekkert láta vorkenna sér eða vera með neinn aumingjaskap. Klukkan var orðin margt, það var vinnudag- ur daginn eftir og hún sagði að best væri að koma sér beint heim, sér- staklega núna þegar myrkrið væri skollið á. Við hoppuðum upp í litla bláa bílinn hennar og hún brunaði inn í borgina. Ég var kannski eins og hundur í framsætinu þegar ég setti höfuðið út um gluggann, upp- fullur af spenningi við að sjá borg- ina betur. Ég komst mjög fljótlega að því að allar mínar kvartanir út í umferðareglur, hámarkshraða og holótta vegi heima á Íslandi fóru í gegnum hugann minn og svo út um gluggann á leiðinni. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt. Í myrkrinu sá ég ekki mikið af borginni sjálfri en ég gat bara ekki hætt að stara út um gluggann. Því- lík mannmergð og alls konar um- ferð! Við keyrðum fram hjá enda- lausum bílskrjóðum sem stundum voru bundnir saman með reipum í bland við að keyra framhjá einum og einum glæsibíl. Inn á milli voru heimagerðir vagnar dregnir áfram af ösnum og fólk þeyttist inn á milli bíla á mótorhjólum og reiðhjól- um, en ótrúlegast af öllu voru svo hugrökkustu gangandi vegfarend- ur sem ég hef séð. Það fólk stökk áfram skref fyrir skref, en þess á milli stóð það grafkyrrt á meðan bílarnir og hjólin brunuðu bara hársbreidd framhjá. Allt gert af yf- irvegun til þess að komast í gegnum umferðina og fara yfir veginn. Ég hef enn ekki séð neinar nothæfar gangbrautir hérna í höfuðborginni. Kærastan sá mig gapa og sagði: „Þú venst þessu, maður þarf bara að keyra sérstaklega varlega í bland við að vera mjög ákveðinn. Það eru ekki beint umferðarreglur hérna, en samt stundum, sérstaklega á hringtorgunum þegar löggan er að reyna að fá mútur. Ekki vera kurteis því enginn annar er það og passaðu þig sérstaklega á mótorhjólunum. Hafðu gluggann opinn til að kæla bílinn en lokaðu fljótt ef við verð- um stopp á veginum svo að sölu- mennirnir og betlararnir fari ekki með hendurnar inn. Þetta er allt í góðu, þú venst þessu.“ Á endanum komumst við heim. Vinalegi öryggisvörðurinn opnaði hliðið og fyrir innan háu veggina var þessi litla paradís sem núna er heimilið mitt. Háar plöntur um- kringja fallegt hús með lítilli sund- laug. Ég tók eftir að það eru járn- rimlar á hverjum glugga og ekk- ert gras í garðinum, bara sandur, en samt var þetta svo vinalegt við fyrstu sýn. Sérstaklega vinalegt var þegar varðhundarnir komu hlaup- andi að mér, dillandi rófunni og greinilega til í að leika frekar en að verja húsið. En þessi nótt var samt erfið, elsku kærastan varð veikari og veik- ari. Hún var búin að fara tvisvar á síðustu dögum í blóðprufu til að kanna hvort hún væri með malar- íu en niðurstaðan alltaf neikvæð, læknirinn sem hún hitti sagði að þetta væri líklegast bara kvef eða flensa. Hún þekkti samt einkenn- in, hún hafði upplifað þetta tvisv- ar áður en aldrei var þetta svona slæmt. Ég hjúkraði henni yfir nótt- ina og allan næsta dag, og hún fór auðvitað ekkert í vinnuna. En um kvöldið var hún komin með hita vel yfir 40°C, skalf og barðist við upp- köst. Hún var samt alltaf að reyna að gera lítið úr þessu, hún er hörku- tól sem vill helst bara hrista hlutina af sér, en það var augljóst að hún varð að komast til læknis. „Allt í lagi, en þú verður þá að keyra mig þangað. Ég skal leið- beina þér á réttan stað,“ sagði hún veiklulega þegar ég fór með hana út í litla bláa bílinn. Ég dró djúpt inn andann og keyrði af stað út um hliðið. Það voru skaflar af rauðum sandi á veginum og hverjum hefði grunað að reynslan frá því að keyra í íslenskum vetri myndi gagnast hér? Ég náði að fara á hraðanum yfir sandinn án þess að festa bíl- inn og fékk veiklulegt hrós frá kær- ustunni í farþegasætinu, því það er víst frekar algengt að festast í þessu. Svo kom að því að takast á við brjáluðu og stjórnlausu umferðina í gegnum borgina. Einhvern veginn komumst við í gegnum þetta allt og á leiðarenda. Kærastan komst til læknis, þetta var svo sannarlega malaría og hún fékk lyf og góða meðferð. Hún er sem betur fer núna, mörgum dögum síðar, orðin nokkuð hress aftur og samkvæmt blóðprufu blessunarlega alveg laus við malaríuna. Ég er að venjast þessu lífi hérna og náttúrulega vona að ég fái ekki malaríu. Himinn og jörð venjulega farast í mínum huga ef ég upplifi smá kvef, þannig að ég efa að ég muni takast á við malaríu af sömu hörku og kærastan. Svo er ég auð- vitað sérstaklega að venjast umferð- inni hérna, og ég get sagt ykkur að ég mun líklegast kyssa hið marg- umrædda og umdeilda 30 km há- markshraðaskilti í Borgarnesi næst þegar ég kemst heim til Íslands. Ég þrái í dag ekkert meira en hæga og hófstillta umferð. Höfundur er Borgnesingur sem elti nýverið ástina til Níger og skráir ferðasögu sína í Skessuhorn. Flutningur skrifstofu Skessuhorns í undirbúningi Skaflar af rauðum sandi og ökulexíur í Níger „Svo eru menn að kvarta yfir einu 30 km hraðaskilti við Borgarbraut!“ Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Dæmigerð umferð í Niamey í Níger.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.