Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 2019 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
www.skessuhorn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr.
941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta orma-
hreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi.
Hundahreinsun verður mánudaginn 14. október
frá kl. 17:00-21:00.
Kattahreinsun verður þriðjudaginn 15. október
frá kl. 17:00-21:00.
Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness að
Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin).
Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. að greiða þarf
með peningum):
Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta
og hundafári, verð kr. 3.000.
Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.
Perlutex ófrjósemistöflur fyrir hunda og ketti,
verð kr. 1.500.
Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra
nálgast skráningargögn á staðnum. Eigendur mega koma og ná í
pillur ef þörf krefur.
Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir
um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar. Seinni
hreinsun verður laugardaginn 2. nóvember, nánar auglýst síðar.
Nánari upplýsingar veita dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478
eða dýralæknir í síma 892-3230.
Hunda- og
kattaeigendur athugið
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
e
hf
.
Við bjóðum upp á glæsilega aðventuferð til Austurríkis
og hefjum ferðina í borg barokksins, hinni stórkostlegu
Salzburg. Borgin er einstök á aðventunni og jólamarkaður
hennar einn sá fallegasti í heimi. Virkisbærinn Kufstein
í Tíról tekur því næst á móti okkur og minnir helst á
myndskreytt ævintýri. Upplifðu allt það stórkostlega sem
aðventan í Austurríki hefur upp á að bjóða!
Aðventusveifla í Salzburg & Tíról
1. - 8. desember
Fararstjóri: Þóra Björk Valsteinsdóttir
Í síðustu viku var hafist handa við að
dýpka höfnina á Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi. Síðast var höfnin dýpk-
uð fyrir tíu árum, að sögn Björns
Arnaldssonar, hafnastjóra Snæ-
fellsbæjar. Höfnin verður dýpkuð
úr tveimur metrum í þrjá metra og
alls um fjögur þúsund rúmmetrar
sem verða fluttir úr henni. Það er
Haftak ehf. í Hafnarfirði sem vinn-
ur verkið og eru verklok áætluð 1.
desember nk. Björn segir að smærri
línubátar séu orðnir allt að 30 tonn
að stærð og hefur verið erfitt fyrir
þá að athafna sig í höfninni á fjöru,
en nú sé með þessum framkvæmd-
um komið fyrir það vandamál.
af
Þriðjudaginn 1. október hélt körfu-
bílshópur Slökkviliðs Borgar-
byggðar reglubundna æfingu sína.
Að þessu sinni var æft við fjölbýlis-
húsið Borgarbraut 57 í Borgarnesi,
en húsið er nýtt og þangað flyt-
ur þessi misserin fólk sem orðið er
50 ára eða eldra. Svo skemmtilega
vildi til að daginn bar einmitt uppá
Alþjóðadag aldraðra!
Slökkvilið Borgarbyggðar keypti
körfubíl fyrr á þessu ári, notaða
Skania bifreið frá Svíþjóð. Ekki
þótti forsvaranlegt annað í ljósi
hæðar nýrra fjölbýlishúsa að hafa
búnað sem hægt er að nota til björg-
unar úr mikilli hæð. „Æfingin fólst
meðal annars í því að máta bílinn
við húsið með tilliti til fjarlægða frá
því við vinnu með krana bílsins og
aðgengi okkar að baklóð húsanna
við Borgarbraut 57 og 59. Fólki var
bjargað til jarðar af svölum fjórðu
hæðar fjölbýlishússins en full út-
dreginn er kraninn 32 metrar og
nær því í ríflega sex metra hæð yfir
efstu brún sjöundu hæðar Borgar-
brautar 57,“ segir Bjarni Kristinn
Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í sam-
tali við Skessuhorn. „Hann segir að
ekki hafi annað verið að heyra á
íbúum Borgarbrautar 57 en að þeir
væru hæstánægðir með framtak
slökkviliðsins og eins og einn þeirra
komst að orði; „þetta veitir manni
svo mikla öryggistilfinningu.“ „Við
í slökkviliðinu væntum góðs sam-
starfs við íbúana á B 57 í framtíð-
inni við æfingar slökkviliðsins, og
óskar þeim alls góðs,“ sagði Bjarni
Kristinn Þorsteinsson slökkviliðs-
stjóri að æfingu lokinni.
mm
Kristján Finnur Kristjánsson og Sigur-
þór Óskar Ágústsson slökkviliðsmaður
í körfunni með dágótt útsýni yfir
Borgarfjörðinn. Ljósm. kfk.
Æfðu björgun úr hæsta
fjölbýlishúsi Borgarbyggðar
Hér er verið að bjarga fólki af fjórðu hæð hússins. Ljósm. bkþ.
Eins og sjá má getur bíllinn teigt rana sinn talsvert hærra en á efstu hæð Borgar-
brautar 57. Ljósm. bkþ.
Þannig er útsýnið úr 30 metra hæð
ofan við Borgarbraut 57, vissulega
ekki fyrir lofthrædda. Myndina tók
Kristján Finnur Kristjánsson ofurhugi
af skipulagssviði Borgarbyggðar sem
fór upp ásamt slökkviliðsmönnum.
Dýpka
Arnar-
stapahöfn