Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Side 2

Skessuhorn - 23.10.2019, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 20192 Menning, skemmtun og listvið- burðir eru allsráðandi næstu dagana, víða á Vesturlandi. Við hvetjum fólk til þátttöku. Minnum á að á morgun hefj- ast Vökudagar á Akranesi og standa þeir til 3. nóvember. Einnig verður árlegur haust- fagnaður haldinn í Dölum um helgina og Rökkurdagar standa nú yfir í Grundarfirði. Þetta og svo allt hitt að auki. Á morgun stefnir í norðanátt 13-20 m/s og snjókomu eða él, en yfirleitt þurrt á sunnan- verðu landinu. Frost á bilinu 0-6 stig. Á föstudag er spáð norðan 8-13 m/s og dálítil él verða á Norður- og Austurlandi en léttskýjað á Suður- og Vest- urlandi. Frost 0-6 stig. Lægir um kvöldið og kólnar. Á laugardag er útlit fyrir hæga breytilega átt og yfirleitt léttskýjað. Frost á öllu landinu. Á sunnudag og mánudag er spáð vestlægri átt, víða þurrt og bjart veður og hiti í kringum frostmark. Skýjað með köflum og þurrt að kalla vestanlands og hiti 1-5 stig. Lesendur Skessuhorns eru margir frekar nægjusamir buxnalega séð, ef marka má könnun á vef Skessuhorns í síðustu viku þar sem spurt hvar hversu margar buxur fólk ætti. 37% eiga á bilinu 6-10 bux- ur og önnur 37% láta duga að eiga 1-5 buxur. 14% sögð- ust eiga 11-15 buxur, 5% 16-20 stykki og einnig 5% sem eiga fleiri en 30 buxur í sínum fata- skáp. 2% svarenda eiga á bilinu 21-25 buxur og sagðist þá bara einn eiga 26-30 buxur. Í næstu viku er spurt: Aðhyllist þú breytt mataræði? Sóley Rós Þórðardóttir er ung Dalakona og kokkur sewm stofnaði nýverið veisluþjón- ustufyrirtækið Moon veiting- ar ásamt vinkonu sinni. Sóley er Vestlendingur vikunnar að þessu sinni. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Leitað hófanna í brunavörnum BORGARBYGGÐ: Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku voru til umfjöll- unar erindi tveggja nágranna- sveitarfélaga um samstarf í brunavörnum. Til kynning- ar voru drög að samningi Borgarbyggðar við Skorra- dalshrepp um brunavarnir í Skorradal. „Drögin eru ítarleg og mjög frábreytt núverandi samning,“ segir í fundargerð. Byggðarráð lýsti yfir stuðn- ingi sínum við að ljúka samn- ingi á forsendum samningsins; „að því tilskyldu að ásættanleg niðurstaða fengist hvað varð- ar greiðslur Skorradalshrepps fyrir þá þjónustu sem sveitar- félagið kaupir af Borgarbyggð á þessu sviði.“ Á sama fundi var kynnt bréf Eyja- og Mikla- holtshrepps frá 20. september sl. þar sem óskað er eftir við- ræðum við Borgarbyggð um þjónustu Borgarbyggðar um brunavarnir í sveitarfélaginu. Sveitarstjóra var falið að boða til fundar um málið og leiða viðræðurnar af hálfu Borgar- byggðar. -mm Skemmtikvöld fellur niður AKRANES: „Skemmti- kvöld Kórs Akraneskirkju sem vera átti í Frístundamiðstöð- inni við Garðavöll föstudag- inn 25. október, fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka.“ -fréttatilk. Undir áhrifum VESTURLAND: Síðdegis á laugardag var maður hand- tekinn á Akranesi, grunað- ur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, án öku- réttinda, nytjastuld og skjala- fals. Sést hafði til mannsins brjótast inn í bíl á Akranesi og aka á brott. Maðurinn hafði tekið númeraplötur af öðrum bíl nokkrum dögum áður og sett á stolna bílinn. Maðurinn viðurkenndi að hafa farið inn í tvo bíla á Akranesi og fram- vísaði hlutum úr þeim bílum. Málið telst upplýst, að sögn lögreglu. Sama dag var öku- maður stöðvaður í Borgar- nesi, grunaður um um ölvun við akstur. Var hann færður á lögreglustöðina og kallað eftir lækni sem tók úr honum blóð- sýni. Honum var síðan sleppt úr haldi eftir að hafa veitt sýni. Málið er í rannsókn. Á mánu- dag stöðvaði lögregla för öku- manns um Innnesveg, grun- aðan um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Maðurinn reyndist enn fremur ekki hafa ökuskírteini meðferðis og gat ekki sýnt fram á að hann hefði gild ökuréttindi. -kgk Um klukkan 15:30 á fimmtudag í liðinni viku kom upp eldur í bátn- um Vesturborgu ÍS í skipasmíða- stöð Skipavíkur í Stykkishólmi. Að sögn Jóns Þórs Eyþórssonar, varð- stjóra hjá Lögreglunni á Vestur- landi, var báturinn inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Verið var að logsjóða í botn bátsins, frammi við stefni hans, þegar eldurinn kviknaði. Mikill reykur kom upp, sem lagði frá bátnum. Lögregla og Brunavarnir Stykk- ishólms og nágrennis voru fljótar á staðinn, en auk þess var kallað eft- ir aðstoð frá Slökkviliði Grundar- fjarðar og Slökkviliði Snæfellsbæj- ar. Eftir að bátnum var komið út úr húsinu gekk slökkvistarf greiðlega og lauk á sjötta tímanum. Engin slys urðu á fólki. kgk/ Ljósm. kgk. Síðastliðinn föstudag undirrituðu Grundarfjarðarbær og Borgarverk verksamning um lengingu Norður- garðs í Grundarfjarðarhöfn. Borg- arverk átti lægsta tilboð af fimm sem bárust í útboði í september síðastliðinn en tilboðið hljóðaði upp á 247 milljónir króna eða 0,6% yfir kostnaðarátætlun verksins, samkvæmt frétt Skessuhorns fyrir skömmu. Byggður verður 90 metra langur brimvarnargarður en í heild er lengingin 130 metrar. Vegagerð- in hannaði lengingu hafnargarðsins og sá um útboðsgerð en Efla verk- fræðistofa gerði útboðsgögn fyrir rekstur stálþilsins. Framkvæmdir hefjast síðar í mánuðinum en áætl- uð verklok eru 1. júní 2020. tfk Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum síðdeg- is á þriðjudag í liðinni viku breyt- ingu á aðalskipulagi hreppsins sem felur í sér að Vestfjarðavegur verði lagður eftir svokallaðri Þ-H leið. Felur hún í sér veg um Teigsskóg og þverun þriggja fjarða; Þorska- fjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarð- ar. Var skipulagsbreytingin sam- þykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Meirihluti sveitarstjórnar lagði fram þriggja síðna rökstuðning með ákvörðun sinni. Þar lýsir meirihlu- tinn því að hann telji sveitarfélagið hafa uppfyllt rannsóknarskyldu sína í undirbúningi ákvörðunarin- nar. Brýn þörf sé á samgöngubó- tum, en sveitarfélaginu sé óheim- ilt að leggja fram valkost R, eins og skipulagsnefnd hafði lagt til, þar sem umferðaröryggi hennar hafi verið metið minna en annarra leiða í umferðaröryggismati Veg- agerðarinnar. Þá hafi sveitarfélagið við vinnu sína fengið skýr svör þess efnis að ekki yrði unnt að bæta við 4-6 milljörðum við þá fjárveitin- gu sem þegar liggur fyrir í Vestf- jarðaveg. „Því er það niðurstaða að hagsmunir samfélagsins veg- na bættra samgangna séu meiri en þau neikvæðu umhverfisáhrif sem þau hafi í för með sér,“ segir í rökstuðningi meirihlutans með ákvörðun sinni. Tryggvi Harðarson sveitarstjóri segir í samtali við Skessuhorni að nú fari aðkomu sveitarfélagsins að málinu senn að ljúka. Þegar skipu- lagið hefur verið staðfest af Skipu- lagsstofnun mun Vegagerðin sækja um framkvæmdaleyfi og hafa fors- varsmenn hennar gefið það út út að þeir vonist til að framkvæmdir geti hafist á næsta ári. Tryggvi segir að sveitarfélagið hyggist afgreiða um- sókn um framkvæmdaleyfi eins fljótt og auðið er. Þar með verður þeim þáttum málsins sem snúa að sveitarfélaginu lokið. Tryggvi bætir þó við að nokkrir aðilar hafi boðað að þeir muni kæra framkvæmdaley- fið þegar það hefur verið gefið út. Verði framkvæmdaleyfið kært fær málið sinn farveg fyrir dómstólum. kgk Eldur kviknaði í báti í Hólminum Slökkvistarf langt komið, búið að skera gat á bátinn og verið að sprauta vatni inn, til að kæla hann. Einnig fóru slökkviliðsmenn inn í bátinn til að gæta þess að ekki leyndust glæður milli þilja.Slökkviliðsmenn að störfum á vettvangi. Grundarfjarðarbær semur við Borgarverk Yfirlitsmynd frá Vegagerðinni sem sýnir lengingu Norðurgarðs. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri og Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri Borgarverks undirrita samninginn. Kjartan Elíasson verkfræðingur á Siglingasviði Vegagerðarinnar og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri vottuðu undirritunina. Ljósmynd: eg Sveitarstjórn staðfesti Teigsskógarleið Horft að Reykhólum. Ljósm. úr safni/ mm.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.