Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Síða 4

Skessuhorn - 23.10.2019, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 20194 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Mjjjááá Þessa dagana á ég í svona ástar-haturs sambandi og er dáldið að reyna að vinna í sjálfum mér með það. Þetta ástar-haturs samband er ekki í garð nokkurrar mannveru, heldur katta. Sjálfur er ég alinn upp í sveit þar sem aldrei voru færri en tveir til fjórir kettir hverju sinni og kom okkur vel til vina. Þeir höfðu hlutverk í lífi sínu, bjuggu í útihúsunum og sáu um að halda músastofninum í skefjun. Kvölds og morgna mættu þeir svo í fjós- ið og fengu spenvolga mjólk í skálina sína og mat eftir þörfum. Kettirnir og heimilishundurinn hverju sinni voru meira að segja vinir. Hafa vafalítið gert sér grein fyrir tilverurétti og hlutverki hvors annars. Kötturinn fór til dæmis aldrei í smalamennskur og hundurinn veiddi hvorki mýs né fugla. Þeir voru semsé ekki að troða á réttindum hvors annars og lifðu því í friði. Svo nánir voru þeir jafnvel að þeir löptu stundum saman úr mjólkurskál- inni. Máltækið að slást eins og hundur og köttur varð semsé ekki til á þeim bænum. Sambýli hunda og katta eru hins vegar hreint ekki alltaf mjög friðsam- legt. Það skýrist af því að báðar þessar dýrategundir eru rándýr. Hundur bregst undantekningar lítið við aðsteðjandi ketti með því að reykspóla í kvikindið. Kötturinn finnur sér venjulega tré til að forða sér upp í, nú eða skríður undir bíl. Sennilegasta skýringin á þessu hatri er sú að þetta eru ar- fgeng viðbrögð hunda þegar þeir rekast á annað rándýr sem gæti veitt þeim samkeppni í lífsbaráttunni. Sama er uppi á teningnum úti í náttúrunni þar sem refir og minkar halda sjaldnast til á sama landssvæðinu. Á sama hátt þvælast refir og minkar nær aldrei inn í þéttbýlið þar sem urmull er af hun- dum og köttum. Við mannfólkið gerum talsvert af því að halda svona rándýr, okkur til ánægju, oftast. Heimilistíkin á mínu heimili hefur þannig fylgt okkur í rúm ellefu ár og samlagast því að búa þar, jafnvel þótt hundar af hennar ættstof- ni hafi upphaflega verið ræktaðir til að smala fé. En hún má eiga það að aldrei, svo lengi sem hún dregur andann, mun hún þola kött á lóðinni sinni (lesist Stór-Langasandssvæðinu). Finnst henni kettir ómerkilegar kynjav- erur sem hún hrekur hiklaust burtu með tiltækum ráðum. En kettir eru lævísir og liprir. Í mínum huga eru þeir hérumbil jafn slóttugar og fólk sem veikt er af siðblindu. Ég elska ketti í þéttbýli því þeir halda músum fjarri. Þeir hafa þannig sitt hlutverk í lífinu, líkt og fjóskettirnir forðum. En nú er svo komið að þetta ástar-samband við þá er að hallast út í haturssamband í mínu tilfelli. Einhver kötturinn er nefnilega farinn að ásækja okkur. Þegar heimilisfólk, og heimilishundurinn, er gengið til náða laumast köttur þessi upp í glug- gasyllu, teigir loppuna um meter upp í opnanlegt fag á þvottahússglugga- num, opnar og hoppar inn. Síðan er staðið í hundadallinum og byrjað að flytja bita úr honum út sömu leið og komið var inn. Stundum vekur hann okkur með bramboltinu ef hann flýtir sér of mikið. Kettinum til hróss skal þó tekið fram að svona ránsferðir eru aldrei farnar nema ilmur af íslensku lambakjöti berist í þefvísar nasir hans. Finnst honum vafalaust ekki taka því að brjótast inn hjá fólki nema ránsfengurinn sé álitlegur. Þannig hö- fum við þurft að sjá á eftir sláturkeppi, kótilettum og nú síðast síðubitum í hundadallinum. Kettir eru vissulega rökkurdýr og kjötætur sem hafa lifað sem húsdýr í mörg þúsund ár. Ég held að kettirnir séu ekki vandamálið í mínu nágrenni. Ég lít svo á að það séu annað hvort eigendur þeirra, sem hættir eru að gæta katta sinna á nóttunni eða/og jafnvel fóðra þá ekki nógsamlega. Eða þá að skýringuna megi finna í að útigangsköttum sé að fjölga. Þá er dýraeftirliti ábótavant. Ég ætla hins vegar þrátt fyrir allt að ríghalda í ást mína á köt- tum. Þoli ekki mýs og þrátt fyrir ótuktarsemina virði ég þá fyrir frábæran matarsmekk. Magnús Magnússon Íslenska kvikmyndin Agnes Joy var frumsýnd í Háskólabíói síðastliðinn fimmtudag. Fjölmenni var á sýn- ingunni en um er að ræða mynd um Rannveigu sem er að upplifa kuln- un í starfi og einkalífi. Þá er hjóna- bandið ekki vel statt og hún föst í starfi sem hún hatar og á í útistöð- um við dóttur sína, Agnesi. Agnes er uppreisnagjörn og virðir ekki reglur. Þegar nýr nágranni kem- ur hverfur eiginlega gremja þeirra mæðgna um stund og fjölskyldan fer að endurmeta hlutina og kljást við nýjar áskoranir. Myndinni leikstýrði Silja Hauks- dóttir auk þess sem hún skrifaði handritið ásamt þeim Göggu Jóns- dóttur og Jóhönnu Friðriku Sæ- mundsdóttur. Aðalhlutverk eru í höndum Kötlu Margrétar Þor- geirsdóttur, Donnu Cruz, Þor- steins Bachmann, Björns Hlyns Haraldssonar og Kristins óla Har- aldssonar. Sögusvið myndarinnar er Akranes og er myndin að mestu tekin þar upp. arg Á sjö ára afmæli þjóðarat- kvæðagreiðslunnar 20. októ- ber síðastliðinn var tilkynnt að Píratar og Samfylkingin hyggjast leggja fram frum- varp að nýrri stjórnarskrá sem byggir á frumvarpi stjórn- lagaráðs og vinnu Alþingis í kjölfarið. Frumvarpið legg- ur til að halda áfram vinnu við setningu nýrrar stjórn- arskrá þar sem frá var horfið árið 2013. „Þjóðaratkvæða- greiðslan 20. október 2012 sýndi að rúmlega tveir þriðju kjós- enda vildu að tillögur stjórnlaga- ráðs skyldu lagðar til grundvall- ar nýrri stjórnarskrá. Alþingi hefur enn ekki lokið við lögfestingu nýju stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að hafa haft til þess 2.556 daga. Íslenska þjóðin er stjórnar- skrárgjafinn. Þingmenn og leiðtogar þjóðarinnar eiga að virða ákvörðun þeirra sem valdið hafa til þess að setja þeim leikreglurnar. Skylda kjörinna fulltrúa er til þess að leiða nýja stjórnarskrá í lög og virða þannig vilja íslensku þjóðarinnar,“ segir í tilkynn- ingu sem Logi Einarsson og Halldóra Mogensen rita und- ir. Þá segir að frumvarpið um nýju stjórnarskrána verði lagt fram á þingfundi á næstunni. mm Fiskvinnslan Ísfiskur á Akranesi hefur fengið jákvæða afgreiðslu lánsumsóknar hjá stjórn Byggða- stofnunar. Að sögn Alberts Svav- arssonar framkvæmdastjóra er sú lánafyrirgreiðsla háð uppfylltum skilyrðum sem fyrirtækið þarf svig- rúm til að mæta. Þetta fékkst stað- fest síðastliðinn föstudag en frá þeim tíma gáfu menn sér að óvissa um framtíði rekstrarins gæti varað í eina til tvær vikur. Albert kveðst engu að síður vongóður um að Ís- fiskur nái að vinna sig út úr þeim fjárhagslegu þrengingum sem fyr- irtækið hefur glímt við eftir flutn- ing starfseminnar úr Kópavogi og á Akranesi. „Ég er vongóður og vona innilega að starfsfólk okkar geti fengið jákvæð tíðindi fyrir mánaða- mótin,“ sagði Albert í samtali við Skessuhorn. Eins og kunnugt er var 42 starfs- mönnum við fiskvinnslu Ísfisks á Akranesi sagt upp störfum fyrir síð- ustu mánaðamót sökum óvissu um fjármögnun. mm Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn var um liðna helgi var ný stjórn kjörin í flokknum. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðal- mönnum og fjórum varamönnum. Katrín Jakobsdóttir var endurkjör- in formaður flokksins en hún hef- ur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, er nýr varaformaður. Katrín hlaut 187 atkvæði eða öll greidd atkvæði. Guðmundur Ingi hlaut 187 atkvæði af 192 greiddum atkvæðum. Fimm skiluðu auðu. Ingibjörg Þórðardóttir er nýr ritari hreyfingarinnar. Ingibjörg hlaut 119 atkvæði af 192. Una Hildardóttir sem einnig var í fram- boði hlaut 72 atkvæði. Einn skilaði auðu. Rúnar Gíslason úr Borgar- nesi er nýr gjaldkeri hreyfingarinn- ar. Rúnar hlaut 117 atkvæði af 192. Ragnar Auðun Árnason sem einnig var í framboði hlaut 69 atkvæði. Sex skiluðu auðu. Meðstjórnendur voru sömuleiðis kjörnir en þeir eru: Ragnar Auðun Árnason, Sóley Björk Stefánsdótt- ir, Berglind Häsler, Álfheiður Inga- dóttir, Þóra Magnea Magnúsdóttir, Elva Hrönn Hjartardóttir og Andr- és Skúlason. Varamenn eru Bjarni Jónsson, Cecil Haraldsson, Guðný Hildur Magnúsdóttir og Einar Bergmundur Þorgerðason Bóas- son. mm Ísfiskur fær fyrirgreiðslu Byggðastofnunar Skjáskot af þætti á Stöð2 um helgina þar sem rætt var við Halldóru Mogensen og Loga Einarsson um væntanlegt frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Boða frumvarp um nýja stjórnarskrá á grundvelli stjórnlagaráðs Ný stjórn kjörin á landsfundi Vinstri grænna Agnes Joy tekin upp á Akranesi og frumsýnd í liðinni viku

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.