Skessuhorn - 23.10.2019, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201912
Síðustu ár hefur orðið töluverð
fjölgun unglinga sem kjósa að
fermast borgaralega en síðastliðið
vor voru 545 fermdir á vegum Sið-
menntar, er það aukning um 200
unglinga frá árinu 2016. Borgara-
leg ferming er óháð trú og snýst
undirbúningur fermingarinnar
fyrst og fremst um að kenna ung-
mennunum gagnrýna hugsun og
almenna siðfræði. „Við erum með
ellefu vikna námskeið yfir veturinn
fyrir krakka á höfuðborgarsvæð-
inu en förum út á land með helg-
arnámskeið, tvær helgar á hverjum
stað,“ segir Heiðrún Arna Friðriks-
dóttir, verkefnastjóri Borgararlegr-
ar fermingar hjá Siðmennt í samtali
við Skessuhorn. Næsta vor verður
borgaraleg ferming haldin á Akra-
nesi í fjórða skipti. „Við miðum
við að ná að lágmarki tíu krökkum
á hverjum stað til að halda fræðslu
í heimabyggð,“ segir Heiðrún og
bætir því við að hægt sé að fá at-
höfn í heimabyggð séu að lágmarki
3-5 börn sem ætla að fermast.
Áhersla á hagnýta
fræðslu
Skráningu í borgaralega ferm-
ingu lokar 15. nóvember næst-
komandi og þá verður ungmenn-
um raðað niður á námskeið en á
Akranesi verður námskeið haldið
helgina 8.-9. febrúar og 28.-29.
mars á næsta ári. „Á námskeið-
inu er áhersla lögð á mannrétt-
indi, jafnrétti, hvernig það er að
vera unglingur í nútíma samfélagi
og bara almenna hagnýta fræðslu
og gagnrýna hugsun. Við leggjum
áherslu á að námskeiðið sé þann-
ig byggt upp að krakkarnir taki
sjálfir þátt, frekar en að við séum
beint að kenna þeim. Þessu lýkur
svo með hátíðlegri athöfn, ferm-
ingu, þar sem athafnarstjóri flyt-
ur smá ávarp og fenginn er ræðu-
maður, einhver þekktur í samfé-
laginu, sem kemur með nokkur
gullkorn fyrir fermingarbörnin.
Krakkarnir fá síðan afhent skír-
teini. Við reynum að fá hluta af
fermingarbörnunum til að taka
þátt í athöfninni, til dæmis með
tónlistarflutningi, ljóðalestri eða
slíku. Það gengur ekki alltaf og
stundum höfum við fengið utan-
aðkomandi til að vera með smá
atriði. Athöfnin sjálf er tæplega
klukkustund og á bara að vera
ánægjuleg, létt og skemmtileg
fyrir alla,“ segir Heiðrún.
arg
Creditinfo mun síðdegis í dag veita framúrskarandi fyrirtækj-
um hér á landi viðurkenningu fyrir góðan rekstur. Að þessu
sinni verða 874 fyrirtæki verðlaunuð, en það er um 2% af öll-
um fyrirtækjum á Íslandi. Af þeim eru 36 fyrirtæki á Vestur-
landi.
Á meðfylgjandi lista eru þau fyrirtæki á Vesturlandi sem rata
á lista Creditinfo að þessu sinni. Borgarverk í Borgarnesi er
efst vestlensku fyrirtækjanna, er í 90. sæti yfir landið, og síðan
eru fyrirtækin hvert af öðru miðað við röðun á landsvísu:
Borgarverk ehf. Borgarnesi
Sementsverksmiðjan ehf. Akranesi
Vignir G. Jónsson ehf. Akranesi
Þorgeir & Ellert hf. Akranesi
Tak-Malbik ehf. Borgarnesi
Hraðfrystihús Hellissands Hellissandi
Runólfur Hallfreðsson ehf. Akranesi
Sæfell hf. Stykkishólmi
Skagaverk ehf. Akranesi
Meitill - GT Tækni ehf. Hvalfjarðarsveit.
BB & synir ehf. Stykkishólmi
Þróttur ehf. Akranesi
Bjarmar ehf. Akranesi
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar ehf. Akranesi
Sorpurðun Vesturlands hf. Fíflholtum.
Útnes ehf. Hellissandi
Akraberg ehf. Akranesi
Esjar ehf. Hellissandi
Nesver ehf. Hellissandi
Verslunin Kassinn ehf. ólafsvík
Breiðavík ehf. Hellissandi
Útgerðarfélagið Guðmundur ehf. ólafsvík
Trésmiðjan Akur ehf. Akranesi
Vélaverkstæði Kristjáns ehf. Borgarnesi
Bjartsýnn ehf. ólafsvík
Skarðsvík ehf. Hellissandi
Kaupfélag Borgfirðinga (svf) Borgarnesi
GS Import ehf Akranesi
Þórishólmi ehf. Stykkishólmi
Litlalón ehf. ólafsvík
Sandbrún ehf Hellissandi
Eðalfiskur ehf. Borgarnesi
Gísli Stefán Jónsson ehf. Akranesi
Hótel Borgarnes hf. Borgarnesi
Klafi ehf. Hvalfjarðarsveit
Blikksmiðja Guðmundar ehf. Akranesi.
mm
Eins og greint var frá í síðasta
Skessuhorni eru uppi áform um að
reisa allt að sex vindmyllur á Grjót-
hálsi í Borgarfirði. Það eru eigend-
ur jarðanna Hafþórsstaða í Norð-
urárdal og Sigmundarstaða í Þver-
árhlíð sem standa fyrir verkefninu.
Nú hafa drög að matsáætlun fyrir
vindmyllur á Grjóthálsi verið birt á
vef VSó Ráðgjafar, www.vso.is, og
verið send ýmsum hagsmunaaðil-
um til umsagnar. Næstu vikur gefst
tækifæri á að koma athugasemd-
um á framfæri og ábendingum um
hvernig verði staðið að mati á um-
hverfisáhrifum, segir í tilkynningu
frá VSó Ráðgjöf.
Í tilkynningu vegna matsáætl-
unar fyrir verkefnið segir m.a. að
aðgerðir í loftslagsmálum hafa
stuðlað að örri framþróun í beisl-
un vindorkunnar. „Tæknilegar
framfarir geta gert minni verkefni
eins og hér um ræðir hagkvæmari
en áður. Til skoðunar eru nokkr-
ir valkostir. Minnsti valkostur sem
skoðaður verður er ein vindmylla á
hvorri jörð, eða tvær alls. Stærsta
útfærslan er 6 myllur alls með 85
metra turnhæð, en 150 metra hæð
á oddi vængs þegar hann er í hæstu
stöðu. Framleiðslugeta valkosta er
á bilinu 9,8-30 MW. Til saman-
burðar eru önnur verkefni á Vest-
urlandi 24-35 vindmyllur hvert.“
Á síðastliðnum þremur árum
hafa lauslegar athuganir verið
gerðar og benda ýmsir þættir til
að staðsetningin á Grjóthálsi geti
hentað fyrir orkuframleiðslu af
þessu tagi. „Þannig er mikill og
jafn vindur á Grjóthálsi stærstan
hluta ársins. Einnig er vegur upp
hálsinn og háspennulínur með
stálmöstrum. Er því bæði um þeg-
ar raskað svæði að ræða og ekki
þarf að reisa háspennulínur til að
flytja orkuna. Fjölmarga þætti þarf
hins vegar að rannsaka svo meta
megi hvort svæðið henti í raun og
veru. Þar má nefna fuglalíf, yfir-
flug fugla, áhrif á náttúrufar, áhrif
á aðra starfsemi og ásýnd. Slíkar
rannsóknir eru tímafrekar en bú-
ast má við fyrstu niðurstöðum á
næsta ári. Verði rannsóknarniður-
stöður jákvæðar og verkefnið hag-
kvæmt, þurfa verkefni yfir 10 MW
að metast í rammaáætlun, en óvíst
er hvenær það yrði. Síðar í ferlinu
reynir einnig á skipulagsþátt máls-
ins og aðra leyfisveitendur eftir at-
vikum.“
Loks segir að helsta áhrifasvæði
verkefnisins yrði Þverárhlíð og
Norðurárdalur ofan Grábrókar.
Eins og fram kom í frétt Skessu-
horns í liðinni viku var haldinn
óformlegur kynningarfundur fyr-
ir íbúa fyrr í þessum mánuði og
verða fleiri slíkir haldnir í Borgar-
byggð á meðan matsferlinu stend-
ur, samkvæmt tilkynningu VSó
Ráðgjafar.
mm
Grjótháls. Bærinn Grjót í Þverárhlíð fremst á mynd. Ljósm. úr safni/ Mats Wibe Lund.
Drög að matsáætlun fyrir
vindmyllur á Grjóthálsi
Frá borgaralegri fermingu á vegum Siðmenntar. Ljósm. aðsend.
Borgaraleg ferming
á Akranesi næsta vor
Creditinfo birtir lista yfir 36 fyrirmyndarfyrirtæki á Vesturlandi