Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 25 Helgi Magnússon og fleiri fjár- festar hafa keypt helmings eignar- hlut 365 miðla í Torgi ehf. útgáfu- félagi Fréttablaðsins. Seljandi er Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Þau hjón eru því í fyrsta skipti í 16 ár ekki að reka fjölmiðla hér á landi. Auk Fréttablaðsins hafa þau stað- ið að rekstri Stöðvar2, Bylgjunnar og Vísis. Helgi keypti fyrr á þessu ári helmingshlut í Torgi. „Fyrir- hugað er að sameina rekstur Torgs og Sjónvarpsstöðvarinnar Hring- brautar, þegar Samkeppniseftirlit- ið og Fjölmiðlanefnd hafa fjallað um samrunann, sem er háður sam- þykki þessara stofnanna,“ segir í frétt Fréttablaðsins um kaup Helga Magnússonar og viðskiptafélaga hans. Þá segir í fréttinni að ætlunin sé að eigendur Hringbrautar leggi fyrirtæki sitt inn í Torg og eignist hlutabréf í félaginu. Það eru þeir Sigurður Arngrímsson, gegnum félag sitt Saffron, og Guðmundur Örn Jóhannsson. Aðrir hluthafar í sameinuðu félagi verða Jón Þóris- son og Helgi Magnússon sem verð- ur eigandi meirihluta hlutafjár og mun gegna formennsku í stjórn Torgs ehf. mm Síðastliðinn miðvikudag fór fram í Borgarnesi árleg íþróttakeppni framhaldsskólanna þriggja á Vestur- landi. Keppnin nefnist WestSide en þar eigast við í skemmtilegum leik nemendur Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi, Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og Fjöl- brautaskóla Snæfellinga í Grund- arfirði. Keppt var í Gettu betur og ýmsum íþróttagreinum. Það var Fjölbrautaskóli Snæfellinga sem fór með sigur af hólmi í samanlagðri stigakeppni skólanna. Eftir íþrótta- keppnina var kvöldmatur en að hon- um loknum var ball í Menntaskól- anum í Borgarnesi fram yfir mið- nætti. Gunnhildur Lind ljósmynd- ari Skessuhorns kíkti við í íþrótta- húsinu í Borgarnesi síðdegis í gær þegar keppt var í blaki. mm/ Ljósm. Gunnhildur Lind. Tilkynning um kaupin. Helgi Magnússon fyrir miðri mynd. Ljósm. Fréttablaðið/Anton Brink. Helgi Magnússon með meirihluta í Torgi ehf Vestlenskir framhaldsskólanemar kepptu í WestSide Sigurður Örn Sigurðsson, íþróttakennari við Menntaskólann í Borgarnesi, betur þekktur sem „Sössi“ hjá nemendum skólans. Hér fundar hann með nemendum sínum áður en blakkeppnin hófst. Nemendur úr MB. F.v. Marinó Þór Pálmasson, Bjartur Daði Einarsson og Arna Hrönn Ámundadóttir. Góð tilþrif hjá leikmanni NFFA. Leikmenn NFSN ekkert nema einbeitingin uppmáluð. Viðureign NMB og NFSN endaði með jafntefli svo það var framlengt þangað til annað hvort liðið skoraði úrslitastigið, leikar enduðu með Borgarnes-sigri. Nemendur hvöttu sitt fólk áfram af pöllunum í Fjósinu í Borgarnesi. Nemendur frá NFSN og NFFA í blakleik.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.