Skessuhorn - 06.11.2019, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 2019 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið leiðsagnarmat.
Fjarnemendum stendur til boða að mæta í tíma með dagskólanemendum í
Grundarfirði eða á Patreksfirði. Kennarar aðstoða nemendur m.a. á Skype og í tölvupósti.
Nemendum yngri en 18 ára stendur ekki til boða að gerast fjarnemendur við FSN.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og
aðstoðarskólameistara solrun@fsn.is og í síma 4308400.
Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á
vorönn 2020 fer fram rafrænt á
menntagatt.is eða á skrifstofu
skólans dagana 1.-30. nóvember.
Fjarnám
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám
dagana 7.-30. nóvember.
Umsækjendur um fjarnám geta
skráð sig í nám undir flipanum
„Fjarnám“
Námsbrautir í boði
Stúdentsbrautir:
Félags- og hugvísindabraut•
Náttúru- og raunvísindabraut•
Opin braut til stúdentsprófs•
Íþróttalína•
Hagfræðilína•
Framhaldsskólabrautir
Framhaldsskólabraut 1•
Framhaldsskólabraut 2•
Starfsbraut
Innritun á vorönn 2020
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Árlegt skammhlaup Fjölbrauta
skóla Vesturlands á Akranesi var
haldið á fimmtudag, en viðburður
inn hefur fyrir löngu fest sig í sessi
í starfi skólans. Venju samkvæmt
hófst dagskráin á því að nemend
ur og kennarar fylktu liði frá skól
anum í íþróttahúsið á Vesturgötu.
Þar hófst síðan liðakeppni í hinum
ýmsu greinum, blöðruboðhlaupi,
reiptogi, ullarsokkaboðhlaupi,
stígvélasparki og limbói svo fátt eitt
sé nefnt.
Að svo búnu hlupu langhlaup
arar liðanna hring um Akranesbæ
og keppt var í öðrum greinum í
skólanum, innanhúss sem utan.
nemendur skreyttu borð, máluðu
myndir, kepptu í plankahlaupi og
spreyttu sig í ýmsum bóklegum og
verklegum greinar sem sumar eru
kenndar við skólann en aðrar ekki.
Undir lokin æstust leikar verulega
á sal skólans, þar sem keppt var
í að planka, verpa eggjum, flytja
leikþátt, ganga silly walk og ýmsu
fleiru.
Að lokum voru stigin talin sam
an og fór svo að græna liðið sigraði
skammhlaupið með nokkrum yfir
burðum. Fengu allir liðsmenn bíó
miða í verðlaun. kgk
Tekið á því í reiptoginu.
Líf og fjör á
skammhlaupi FVA
Keppt var í hinum ýmsu greinum á skammhlaupi FVA. Hér er verið að keppa í
blöðruboðhlaupi.