Skessuhorn - 06.11.2019, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201910
Síðastliðinn laugardagsmorgun
komu bormenn frá Ræktunarsam
bandi Flóa og Skeiða niður á heitt
vatn skammt fyrir neðan skólahúsið
í Ólafsdal. Það er Minjavernd sem
stendur að uppbyggingu á staðnum
og segist Þorsteinn Bergsson fram
kvæmdastjóri að vatnsfundurinn á
laugardaginn hafi glatt sitt gamla
hjarta. „Þetta mun gjörbreyta öll
um möguleikum til heilsársrekstrar
í Ólafsdal en í það minnsta lengja
rekstrarárið verulega,“ segir Þor
steinn í samtali við Skessuhorn.
Vatnið sem fannst er 35 gráðu
heitt og skilar borholan um fimm
sekúndulítrum. Vatnið fannst á 326
metra dýpi. „Við höfðum ákveð
ið að hætta borun á laugardaginn
þannig að þetta mátti ekki tæpara
standa. Bormennirnir höfuðu dýpk
að holuna um einn metra þarna
um morguninn þegar þeir komu
þá niður á vatnsæðina.“ Þetta er
önnur vinnsluholan sem boruð er
í Ólafsdal en þar áður höfðu tvær
hitastigulsholur verið boraðar til
að miða út vænlega borstaði. Fyrri
vinnsluholan gaf góða vísbendingu
um hita í jörðu og segir Þorsteinn
að ef ekki hefði verið komið niður
á rennandi vatn hefði mátt virkja
hitann í holunni með góðri varma
dælu. „Þetta góða vatnsmagn þýð
ir að við munum nota vatnið beint
til gólfhitunar en með varmadæl
um verður hitinn á því hækkaður í
60 gráður og vatnið leitt í ofna til
kyndingar.“
Þorsteinn segir vatnsfundinn
þýða byltingu fyrir uppbygginguna
í Ólafsdal og möguleika til fjöl
breyttrar þjónustu. „Fyrir framtíð
arstarfsemi þýðir þetta meðal ann
ars að við munum tengja heita potta
og allskyns lúxus sem ella hefði
verið dýrari í rekstri. Við hugs
um mjólkurhúsið, stundum kall
að Vatnshúsið, sem allsherjar bað
hús. Á tíma Torfa Bjarnasonar og
skólahalds í Ólafsdal var vatnslind
úr fjallinu virkjuð og henni veitt
heim í bæjarhúsin. Fyrst rann vatn
ið í gegnum fjósið og því var auð
velt að brynna kúnum, kæla mjólk
og aðrar matvörur í mjólkurhús
inu, en einnig lá vatnspípan inn í
önnur hús á tímum skólahalds. Við
viljum halda á lofti þessari frum
kvöðlastarsemi Torfa og nýta vatn
ið sem mest. Vatnshúsið verður
því nýtt sem alsherjar baðhús með
köldum potti, sturtum, snyrtingum
og sauna. Heitur pottur verður þar
fyrir utan. nú er unnið að endur
gerð fjóssins og verður húsinu lok
ið fyrir áramót. eftir áramót fara
menn að hreiðra um sig þar innan
dyra því næsta skref í framkvæmd
um, eftir að því verki lýkur, eru lag
færingar á skólahúsinu innandyra.
Þegar að því kemur á mannskap
urinn að geta gist í fjósinu,“ segir
Þorsteinn.
Torfi dregur ekki dul á að vatns
fundurinn síðastliðinn laugardag
hafi verið eins og happadrættis
vinningur fyrir starfsemina í Ólafs
dal. „Þetta kemur til með að þýða
ýmsa jákvæða hluti. Hitaveita þýð
ir auknar líkur á heilsársrekstri, í
það minnsta lengir hún rekstrarár
ið. Hér verður bæði skemmtilegra
og hagkvæmara að hafa ýmsa starf
semi.“ Unnið er af krafti í endur
gerð húsanna í Ólafsdal. Ýmis sér
smíði fer fram í Reykjavík en vinna
á staðnum er öll í höndum heima
manna úr Dölum og úr Stykkis
hólmi. mm
Umhverfisviðurkenningar Akra
neskaupstaðar 2019 voru afhentar
síðastliðinn miðvikudag á Bókasafni
Akraness. Í lok sumars var auglýst
eftir tilnefningum. Dómnefnd fór
í vettvangsferðir og tók tilnefn
ingarnar út. Meðal þess sem dóm
nefnd leit til við mat sitt var fagur
fræði, fjölbreytileiki, samtal við al
menningsrými og hvort þau vöktu
í víðum skilningi athygli á atriðum
sem skipta uppbyggingu og fram
tíð bæjarins máli. nefndina skip
uðu Helena Guttormsdóttir lekt
or við LbhÍ, Sindri Birgisson um
hverfisstjóri Akraneskaupstaðar og
Ása Katrín Bjarnadóttir B.S. nemi í
umhverfisskipulagi við LbhÍ.
Í kjölfar vinnu þeirra ákvað
skipulags og umhverfisráð að veita
viðurkenningar í fjórum flokkum;
falleg einbýlishúsalóð, hvatningar
verðlaun, samfélagsverðlaun og tré
ársins.
Fallegasta einbýlishúsalóðin að
mati dómnefndar er hjónanna Þóru
Þórðardóttur og Helga Helgasonar
að Brekkubraut 25. Í umsögn dóm
nefndar segir að aðkoman að lóð
inni sé opin og í góðu samræmi við
stærð hússins. Stiklar, fjölbreyttur
lággróður og runnar leiði þann sem
fer um garðinn að bakgarðinum,
þar sem komið hafi verið fyrir safni
gróðurkassa með einkar smekk
legum hætti. Þar og í gróðurhús
inu sé stunduð fjölbreytt ræktun
grænmetis og kryddjurta. Fjölmörg
ávaxtatré eru við skjólvegg sem
liggur að lóðamörkum bakatil og
dvalarsvæði afmarkað frá ræktunar
svæði, en einnig á opinn hátt. Seg
ir dómnefnd að með auðveldu að
gengi, góðri hönnun og fjölbreyttri
ræktun vinni eigendur í anda
heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð
anna um sjálfbæra þróun „Garður
inn og nýting hans er gott fordæmi
hvernig fagurfræði, nýting dvalar
svæða og matvælaframleiðsa geta
farið fram,“ segir í mati dómnefnd
ar. Geta má þess að í Skessuhorni í
næstu viku verður rætt við Þóru um
garðyrkjuna og störf þeirra hjóna á
Brekkubraut 25.
Tré rsins er hlynur sem stendur í
garðinum við Stillholt 11. Að mati
dómnefndar er um að ræða fallegt
gamalt tré sem sést vel frá götunni.
„Trén eru í raun tveir einstakling
ar, eru sennilega gróðursett á sjötta
áratug síðustu aldar og mynda fal
lega þyrpingu, gefa götumynd
inni ákveðinn karakter og sýna að
fjölbreyttar tegundir sem ekki eru
mikið notaðar þrífast í bænum,“
segir í matinu.
Samfélagsverðlaunin komu að
þessu sinni í hlut leikskólans Akra
sels, fyrir endurvinnslustefnu skól
ans, moltugerð og vinnu með sjálf
bærnimarkmið Sameinuðu þjóð
anna.
Hvatningarverðlaunin komu í
hlut Fjólu Guðmundsdóttur og
Árna Þórs Traustasonar að Akurs
braut 17, eða Sólbakka. Verðlaun
in hljóta þau fyrir stórfellda endur
nýjun á húsi sem er að mati dóm
nefndar áberandi í götumyndinni
við höfnina og á sér ríka sögu.
kgk
Fulltrúar þeirra sem sæmdir voru umhverfisviðurkenningum Akraneskaupstaðar 2019 síðastliðinn miðvikudag. Ljósm.
Akraneskausptaðar.
Sæmd umhverfisviðurkenningum
Borinn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða kom á laugardaginn niður á fimm sekúndulítra af 35 gráðu heitu vatni. Ljósm. sá.
Heitt vatn finnst í Ólafsdal
Á eftir að gjörbreyta möguleikum til heilsársrekstrar