Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201918
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Mér líður eitthvað furðulega í mag
anum. Ég hef reynt eftir fremsta
megni að passa mig á því hvað
ég borða hérna í níger í Afríku.
Venjulega elska ég að prófa nýjan
mat og lagði til dæmis mikið á mig
til að fara inn í skóg til að finna og
borða slöngur og beltisdýr í níg
aragúa. en það var fyrir löngu síð
an, með aldrinum kom smá viska
og ég passa mig betur núna. Til
dæmis er ég ánægður með sjálfan
mig að hafa ekki enn látið freist
ast af ilminum af vafasama kjötinu
sem er grillað á opnum eldi á götu
horninu mínu, eða smakkað krydd
uðu engispretturnar úr opnu vögn
unum sem unglingarnir draga um
litla markaðinn hjá uppáhalds bak
aríinu mínu. nei, því miður er búið
að hræða mig með hryllingssögum
um sníkjudýr, nóróveirur og alls
konar matareitranir. Ég fer frekar
inn í fína loftkælda bakaríið og fæ
mér nýbakað croissant. Þetta cro
issant, eða smjördeigshorn á góðri
íslensku, er líka það besta sem ég
hef smakkað, sérstaklega tegundin
hérna sem er fyllt með einhverskon
ar tegund af blóðbergi. Fyrir ykkur
heima hljómar það kannski furðu
lega að vanþróaðasta ríki jarðar sé
með bakarí sem búi til, að mínu
mati, heimsins besta croissant. Ég
biðst afsökunar Geirabakarí. en
hafið í huga að þetta land var ný
lenda Frakklands og þeirra áhrifa
gætir hér enn. Ég hugsa stundum
um þetta þegar ég labba um sandi
þaktar götur heim til mín, í steikj
andi sólinni með nýbakað baguette
í einni hendi og poka af frönskum
mygluostum í hinni.
Matur án eitrana
Ég hef alltaf elskað að borða góð
an mat og fjölskyldan mín heima
á Ystunöf í Borgarnesi er hefð
bundin í eldamennskunni í bland
við smá ævintýrasemi. Þar á borð
um er stundum dásamlegur svart
fugl eða sviðalappir einn daginn og
svo kannski heimagerðir kínversk
ir dumplings þann næsta. Það á við
sérstaklega þegar bróðir minn og
kokkurinn Árni Ívar kemur í heim
sókn með kínversku konunni sinni
Ji Chen. Að elda mat er mér í blóð
borið og kærustunni minni til mik
illar gleði þá elda ég oft og mikið
hérna heima í níger. Ég tel mig
elda góðan mat en hérna er helsti
kosturinn við að elda heima þó ör
yggið. Við höfum efni á að fara ekki
á opnu almennu markaðina heldur
versla góðar matvörur í dýru búð
unum fyrir yfirstéttarfólk og út
lendinga, og heima hjá okkur höf
um við hreint eldhús með gasi og
rafmagni til að elda og geyma mat
inn. Það er auðvitað hægt að fara
út að borða og oft er sá matur al
veg frábær, en það er ekki sama
hvar það er gert. Ég skal gera ykk
ur greiða og sleppa því að lýsa fyrir
ykkur öllum þeim skelfilegu hryll
ingssögunum sem ég hef heyrt um
matareitranir hér í landi.
Forréttindi okkar
Þetta er því miður ekkert grín, þetta
er synd og skömm því þessar mat
areitranir eru lýsandi fyrir ástand
ið hérna í níger. Þar sem um tvær
milljónir manna eru á barmi hung
ursneiðar, þar sem flestir búa við
fátækt og tæknilegir innviðir eru
litlir eða ekki til staðar, þar er erfitt
að fæða fólk og hvað þá að gera það
á öruggan máta. Ég bý og í raun
hef alltaf búið við mikil forréttindi,
ég skil ekki hvað það er að upplifa
alvöru hungur. en ég held að fyrri
kynslóðir Íslendinga myndu skilja
þetta betur. Mér þótti fyndið að
langamma Lára var alltaf með full
ar frystikistur heima hjá sér og var
iðin við að koma fyrir mat í frysti
kistum og hólfum hjá ættingjum,
en ég held ég skilji hana ögn bet
ur núna. Hún upplifði alvöru hung
ur í sínum uppvexti. ef fátæka fólk
ið hérna í níger hefði möguleika
þá myndi það líklegast gera eins og
blessaða langamma mín gerði.
Að geta skotist út í búð og versl
að öruggar matvörur, koma svo
heim og geyma þær í ísskáp með
stöðugu rafmagni og geta eldað
næringarríka máltíð fyrir sig og
sína eftir hentisemi, það er ótrú
leg blessun sem við ættum alltaf að
hafa í huga. Fyrir fyrri kynslóðir Ís
lendinga væri þetta líklegast ólýs
anlegt kraftaverk, og fyrir mikið af
fólki hérna er þetta langþráður en
því miður fjarlægur draumur.
Mögnuð matarmenning
Þetta kemur mér til hugar og ger
ir að verkum að ég á stundum erf
itt með að njóta matarmenningar
innar hérna. Ég játa að ég og kær
astan förum auðvitað oft út að
borða og höfum farið í fínar veisl
ur og fengið að smakka dásam
lega bragðgóðan mat hérna í níg
er. Mig langar að vera jákvæður og
skrifa þennan pistil um hve gaman
það var að smakka steiktan úlfalda í
fyrsta skipti, eða bera saman bragð
á íslenskum sviðahaus og krydduð
um nígerskum sviðahaus, eða hve
heppinn ég var að fá að borða grill
að lamb með nígerska ofurstanum
í eyðimörkinni. Ég vil mæla með
að þið komið til niamey og próf
ið The SPOT FOOD, stórkost
legan veitingastað með vesturafr
ískum mat sem húshjálpin okk
ar David opnaði. Hér eru fullt af
stöðum sem elda öruggan og góð
an mat og það er svo fjölbreytt og
mögnuð matarmenning hérna sem
vert væri að njóta og segja glaður
frá. en sannleikurinn er því miður
sá að á meðan ég er að borða þá er
líklegast einhver í næsta nágrenni
að svelta.
Mér líður eitthvað furðulega í
maganum og það er ekki frönsku
mygluostunum að kenna. Ég held
að þetta sé samviskan mín að minna
mig á hve ótrúlega lánsamur ég er
miðað við svo marga aðra. Hvað
það eru mikil forréttindi að hafa
aldrei upplifað hungur.
Geir Konráð Theódórsson
Höf. er Borgnesingur, búsettur í
Níger og deilir reynslusögum til les-
enda Skessuhorns. Nú um mat.
Kryddaðar engisprettur, franskir mygluostar - eða hungur!
The Spot food diskur.
Greinarhöfundur snæðir hér nígerskan, kryddaðan sviðahausarétt.
„En sannleikurinn er því miður sá að á meðan ég er að borða þá er líklegast einhver í næsta nágrenni að svelta.“
Lamb grillað í sandi að hætti innfæddra.
Sólþurrkaðar engisprettur.