Skessuhorn - 06.11.2019, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201920
Opinber heimsókn forseta Íslands,
hr. Guðna Th. Jóhannessonar og
frú elizu Reid eiginkonu hans, til
Snæfellsbæjar hófst á miðvikudags
morgun og lauk um kvöldið með
fjölskylduhátíð í félagsheimilinu
Klifi. Forsetahjónin og fylgdar
lið þeirra komu víða við í sveitarfé
laginu. Stofnanir og fyrirtæki voru
heimsótt eins og sjá má á meðfylgj
andi myndum.
Heimsókn forstetahjónananna
hófst í grunnskólanum í Ólafsvík
snemma að morgni. Þar var
gestunum kynnt gildi skólans
og sérstaklega átthagafræðinám
nemenda. Þá gengu forsetahjónin í
stofur og heilsuðu upp á nemendur.
Þaðan lá leiðin í leikskólann Krílakot
í Ólafsvík þar sem tekið var á móti
gestum og starf skólans kynnt.
eftir skólaheimsóknirnar lá leiðin
í fiskvinnsluna Valafell í Ólafsvík
þar sem starfsemi fyrirtækisins
var kynnt og kaffiveitingar voru á
boðstólnum. Veðrið lék við hvern
sinn fingur hér í Snæfellsbæ þennan
dag og brugðu forsetahjónin á það
ráð að ganga á næsta áfangastað í
mildu haustveðrinu.
Á dvalarheimilinu Jaðri var tekið
á móti forsetahjónum með virktum
og virðingu þar sem sögur voru
sagðar og bros var á hverju andliti.
Í grunnskólanum á Hellissandi
var snæddur hádegisverður, fínasti
þorskur, með nemendum og
starfsliði auk þess sem skólakórinn
steig á svið og skemmti viðstöddum.
Líkt og í grunnskólanum í Ólafsvík
gengu forsetahjónin í stofur og
heilsuðu upp á nemendur og
starfsfólk. Að því loknu fóru hjónin
á fund bæjarstjóra og fulltrúa
bæjarstjórnar þar sem stiklað var á
stóru um starfsemi sveitarfélagsins
og lífið í sveitarfélaginu.
eftir hádegi lá leiðin í KG
fiskverkun í Rifi þar sem starfsemi
fyrirtækisins var kynnt og gengið
um vinnslusal áður en ekið
var í gestastofu Þjóðgarðsins á
Malarrifi þar sem málstofa fór
fram um áskoranir og tækifæri í
ferðaþjónustu á Snæfellsnesi.
Um klukkan 20 um kvöldið hófst
svo fjölskylduhátíð í félagsheimilinu
Klifi í Ólafsvík þar sem íbúar og
nærsveitungar gátu átt góða stund
með forsetahjónunum. Kvenfélag
Hellissands sá um veitingar og
Tónlistarskóli Snæfellsbæjar flutti
tónlistaratriði.
af
Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Snæfellsbæ
Frá heimsókninni í Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi.
Forsetahjónin og ungir Snæfellingar í GSNB í Ólafsvík.
Gestirnir kynntu sér starfsemi KG fiskverkunar í Rifi.
Forsetahjónin þáðu prjónless að gjöf frá íbúum Jaðars. Hilmar Björnsson afhenti
þeim gjöfina en fram kom að Hilmar var til sjós með afa Guðna á árum áður. Á dvalarheimilinu Jaðri fengu forsetahjónin hlýjar móttökur.
Fiskur snyrtur í KG fiskverkun í Rifi. Forsetahjónin heimsóttu Krílakot.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri fékk að gjöf ljósmyndir frá
síðustu opinberu heimsókn forsta í Snæfellsbæ, þegar
Ólafur Ragnar Grímsson kom þangað.
Á meðfylgjandi mynd eru Eliza Reid, Guðni Th. Jóhannesson
og Heiðar Elvar Friðriksson verkstjóri í fiskvinnslunni
Valafelli.