Skessuhorn - 06.11.2019, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 2019 21
Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson og frú eliza Reid
komu í opinbera heimsókn til Grundarfjarðarbæjar á fimmtu
daginn, en deginum áður höfðu þau varið í Snæfellsbæ en gistu
á Hótel Búðum. Veðrið lék við Snæfellinga og gesti þeirra á
meðan á heimsókninni stóð. Forsetahjónin kynntu sér starf
semi bæjarfélagsins í Grundarfirði, heimsóttu ungu kynslóðina
í grunn og leikskólum bæjarins og litu inn hjá eldri borgur
um. Fjölbrautaskóli Snæfellinga var heimsóttur í hádeginu en
eftir hádegið fóru forsetahjónin í fiskvinnslu Guðmundar Run
ólfssonar og fleiri atvinnufyrirtæki, auk þess sem þau áttu fund
með skátum.
Málstofa um sjávarútveg og samtímann var haldin í Bærings
stofu um miðjan daginn en síðdegis lauk opinni dagskrá heim
sóknarinnar með kaffiboði og tónlistarflutningi í Sögumiðstöð
inni þangað sem bæjarbúar voru velkomnir. Söngsveitin MÆK
flutti nokkur íslensk lög, en sveitina skipa fimm stúlkur úr
Grundarfirði, sem allar hafa lært söng í Tónlistarskóla Grund
arfjarðar. Að því loknu var boðið upp á kaffiveitingar. tfk
Forsetahjónin sóttu Grundfirðinga heim í opinberri heimsókn
Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson þáðu skoðunarferð um
nýja hátæknifiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar hf. Það
var Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri
sem sýndi forsetahjónunum húsið.
Guðni gefur hér ungum nemanda fimmu þar sem að hann hélt með „rétta“ liðinu í enska boltanum.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri, Pawel Klukowicz verkstjóri, Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri G.Run,
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú.
Forsetahjónin stilltu sér upp með áhöfninni á Farsæl SH eftir skoðunarferð um skipið. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri er lengst
til vinstri og Kristinn Kristófersson fjármálastjóri Soffaníasar Cecilssonar er lengst til hægri.
Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar sýnir forsetahjónunum
nýtt upplýsingaskilti um sögu hafnarinnar og byggðarinnar.
Árni Sigurjónsson skrifstofustjóri forsetaembættisins, Eliza Reid forsetafrú og
Guðni Th. Jóhannesson forseti ásamt nemendum FSN, ræða við spænskukennara
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í gegnum fjarveru skólans en það er skjár sem
kennarinn getur stýrt og leiðbeint nemendum þó að hann sé ekki á staðnum.
Guðni forseti lét ekki sitt eftir liggja í Klifurfelli þar sem hann gerði nýja klifur-
braut fyrir yngstu iðkendur Klifurhússins.
Forsetinn ræðir heimsmálin við íbúa á Dvalarheimilinu
Fellakjóli í notalegri stemningu.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri ásamt forsetahjónunum. Í baksýn er tákn bæjar-
félagsins; Kirkjufellið, fagurskapað og tignarlegt.