Skessuhorn - 06.11.2019, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 2019 23
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Fyrirtæki á Vesturlandi í fremstu röð
Við erum stolt af því að vera í hópi
framúrskarandi fyrirtækja á Vesturlandi
samkvæmt útnefningu Creditinfo
Guðni Th. Jóhannesson forseti Ís
lands og Lilja Alfreðsdóttir hafa í
samvinnu við aðila menntakerfisins
og ráðuneyti sveitarstjórnarmála
bundist samtökum um að veita Ís
lensku menntaverðlaunin. Verð
launin voru veitt í tíð fyrri forseta
frá árinu 2005 en hefur nú verið
komið í ákveðinn farveg með sam
komulagi milli þeirra sem að þeim
standa. Markmið verðlaunanna
er að vekja athygli samfélagsins á
metnaðarfullu og vönduðu skóla
og frístundastarfi og auka veg
menntaumbótastarfs. Verðlaunin
verða veitt í þremur flokkum. ein
verðlaun verða veitt skóla eða ann
arri menntastofnun fyrir framúr
skarandi starf. Í annan stað verð
ur kennara sem stuðlað hefur að
framúrskarandi menntaumbótum
veitt verðlaun. Þriðju verðlaunin
verða veitt þróunarverkefni á sviði
menntunar sem stenst ítrustu gæða
kröfur. Að auki verður veitt hvatn
ing til einstaklings, hóps eða sam
taka sem lagt hafa af mörkum við
að stuðla að menntaumbótum sem
þykja skara fram úr.
Forseti hefur skipað Gerði
Kristnýju Guðjónsdóttur, skáld
og rithöfund, formann viðurkenn
ingarráðs, sem mun halda utan um
framkvæmd verðlaunaveitinganna.
Samstarfsaðilar undirrituðu í
gær samkomulag um verðlaunin á
Bessastöðum. Auk embættis forseta
Íslands, mennta og menningar
málaráðuneytis og samgöngu og
sveitarstjórnarráðuneytis, koma að
verkefninu Félag um menntarann
sóknir, Grunnur félag fræðslu
stjóra og stjórnenda skólaskrifstofa,
Kennaradeild Háskólans á Akur
eyri, Kennarasamband Íslands,
Menntamálastofnun, Menntavís
indasvið Háskóla Íslands, Miðstöð
skólaþróunar við Háskólann á Ak
ureyri, Samband íslenskra sveit
arfélaga, Samtök áhugafólks um
skólaþróun og Skóla og frístunda
svið Reykjavíkurborgar. mm
Íslensku menntaverð-
launin verða veitt að nýju
Árið 2005 hlaut Grundaskóli á Akranesi Íslensku menntaverðlaunin. Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands afhendir hér Guðbjarti Hannessyni skólastjóra
verðlaunin. Í bakgrunni eru fulltrúar nemenda, kennara og Foreldrafélags
skólans. Ljósm. úr safni Skessuhorns.