Skessuhorn - 06.11.2019, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201924
Síðastliðið laugardagskvöld voru
hátíðartónleikar í Reykholtskirkju
til heiðurs Páli Guðmundssyni
listamanni á Húsafelli. Kammer
kór Suðurlands undir stjórn Hilm
ars Arnar Agnarssonar og Reyk
holtskórinn undir stjórn Viðars
Guðmundssonar fluttu þar hljóð
myndir Páls, „Hjartað í fjallinu“,
auk nokkurra annarra verka. Hluti
efnisskrárinnar hafði verið fluttur í
Hafnarborg fyrr á þessu ári. Heiti
tónleikanna var sótt í kvæði Sigurð
ar Pálssonar skálds um Pál. Sjálfur
lék Páll með auk fleiri listamanna
og þá á hljóðfæri sem Páll hef
ur ýmist smíðað eða gengið fram
á í umhverfi sínu, bæði úr jurta
og steinaríki, sumum þarna beitt
í fyrsta sinn opinberlega. Í vönd
uðum útsetningum runnu hljóð
myndir Páls við texta ýmissa skálda
saman í firna áhrifamikla og fallega
heild; hluti hljóðmyndanna var
frumfluttur. Í því góða tónleika
húsi sem Reykholtskirkja er var
líka óneitanlega notalegt að heyra
verk eftir sjálfan Bach (Bourrée í e
moll) leikið á steinaspil og rabar
baraflautu úr hráefnum frá Húsa
felli. Tónleikunum lauk sem mús
íkalskri fjöldasamkomu þar sem
báðir kórarnir við meðleik allra
hljóðfæraleikaranna fluttu norður
ljós, verk Páls við ljóð einars Bene
diktssonar, tónverk sem frumflutt
var á Listahátíð 2014.
Með tónleikunum í Reykholti
fengum við enn að kynnast nýrri
hlið á hinum fjölhæfa listamanni,
Páli Guðmundssyni á Húsafelli.
Tónleikarnir urðu að dýrlegri
stund; eiginlega viðburði. Verða án
efa með þeim eftirminnilegri sem
hljómað hafa í Reykholtskirkju.
Kirkjan var fullsetin áheyrendum
sem þökkuðu Páli og flytjendum
innilega að loknum tónleikum.
Bjarni Guðmundsson
Ljósm. Gunnlaugur A Júlíusson.
Ítalski skiptineminn Giovanni Gaio
stundar nám við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Hann
hefur einungis verið á Íslandi í tvo
og hálfan mánuð en engu að síður
bannaði hann fréttaritara Skessu
horns að ræða við sig á ensku. „Bara
íslenska takk,“ sagði hann skýrmælt
ur. Giovanni býr í Stykkishólmi og
unir hag sínum vel. Þriðjudaginn
29. október síðastliðinn hlaut hann
viðurkenningu fyrir góðan árangur
í stærðfræðikeppni framhaldsskóla
nema en hann lenti í 8.10. sæti á
efra stigi keppninnar. Með því vann
hann sér inn þátttökurétt í úrslitum
sem fara fram í mars á næsta ári.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
þessum efnilega Ítala spreyta sig
á meðal fremstu stærðfræðinema
landsins, en hann horfir með til
hlökkun til þeirrar áskorunar. tfk
Fimmtudagskvöldið 7. nóvember
stendur Danshljómsveit Friðjóns
Jóhannssonar fyrir opnu húsi og út
gáfukynningu á diskinum Þá og nú
sem er 37 laga tvöfaldur safndiskur
með lögum Skagamannsins Óðins
G. Þórarinssonar. Óðinn á nokkuð
af þekktum lögum og má þar nefna
nú liggur vel á mér, Heillandi vor,
Síðasti dansinn og Blíðasti blær.
Undanfarið hefur hljómsveitin
staðið fyrir söfnun á eldri útgáfum
af lögum Óðins auk þess að taka
upp fjölda áður óútgefinna laga.
Kynningin fer fram í Frístunda
miðstöðinni við Garðavöll á Akra
nesi og hefst kl. 20 00. Leikin verða
vel valin lög eftir Óðinn og spjallað
um útgáfuna. Aðgangur er ókeypis.
-fréttatilkynning
Tónleikar á vegum Minningarsjóðs
Heimis Klemenzsonar verða haldn
ir í Reykholtskirkju föstudaginn 15.
nóvember klukkan 20:30. Á dagsk
ánni veður fjölbreytt tónlist frá öflug
um listamönnum. Fram koma að þessu
sinni Soffía Björg Óðinsdóttir frá ein
arsnesi og Guðmundur Ingi Þorvals
son frá Brekkukoti.
Tilgangur sjóðsins er að styðja við
bakið á og efla ungt tónlistarfólk á
Vesturlandi í listsköpun sinni. Haldnir
eru tónleikar að minnsta kost árlega til
að styrkja sjóðinn og efla þannig stuðn
ing við unga tónlistarmenn í héraði.
Listamenn og aðrir sem að tónleikun
um standa gefa góðfúslega sitt framlag
til tónleikanna. -fréttatilkynning
Tónleikar á vegum Minningar-
sjóðs Heimis Klemenzsonar
Guðmundur Ingi Þorvaldsson.Soffía Björg Óðinsdóttir.
Einstakur viðburður
í Reykholtskirkju
Hjartað í fjallinu og fleiri verk tengd Páli listamanni á Húsafelli
Mynd af framhlið umslags utan um diskana.
Kynna nýjan safndisk með
lögum Óðins G Þórarinssonar
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar.
Giovanni Gaio fyrir framan Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Ítalskur skiptinemi með frábær-
an árangur í stærðfræðikeppni