Skessuhorn - 06.11.2019, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201926
Opið hús á Skessuhorni á nýjum stað
Í tilefni af flutningum Skessuhorns frá
Kirkjubraut að Garðabraut 2a á Akranesi var
boðið til opins húss síðastliðinn föstudag.
Fjöldi gesta leit við á nýju skrifstofuna, þáði
veitingar og gladdist með starfsfólki blaðs
ins.
Skopmyndir Bjarna Þórs, sem birst hafa
í Skessuhorni í áranna rás, voru til sýnis og
sölu. er starfsfólki Skessuhorns mikil ánægja
að segja frá því að á fjórða tug mynda seldist
og mun ágóðinn af sölunni renna óskiptar til
Mæðrastyrksnefndar.
Starfsfólk Skessuhorns vill þakka öllum
þeim sem litu við hjartanlega fyrir komuna
og samveruna síðastliðinn föstudag.
kgk
Magnús Magnússon ritstjóri ásamt Hlédísi Sveinsdóttur alt muligt konu.
Hrafnhildur Harðardóttir auglýsingasali Skessuhorns bauð gesti velkomna.
Hjónin Bragi Þórðarson og Elín Þorvaldsdóttir.
Anna Rósa Guðmundsdóttir blaðamaður hrærir í heita súkkulaðinu sem gestum
var boðið upp á.
Vilhjálmur Birgisson studdi að sjálfsögðu við skopmyndasöluna enda hefur verkalýðsforynginn oft verið færður á mynd í
höndum Bjarna Þórs. -
Magnús ritstjóri og Hallfríður Jóna Jónsdóttir sem kom og keypti skopmynd af Gísla rakara, fyrrum vinnuveitanda sínum.
Valdimar Þór Guðmundsson og Sigurþór Þorgilsson frá
Tölvuþjónustunni kíktu við.
Guðjón Brjánsson og Hafsteinn Sigurbjörnsson ræða málin.
Mæðgurnar Steinunn Kolbeinsdóttir og Kolbrún Ingvars-
dóttir, starfsmaður Skessuhorns.
Mæðginin Bjarnheiður Hallsdóttir og Tómas Týr Tómasson
glugga í skopmyndasafnið.