Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2019, Side 2

Skessuhorn - 20.11.2019, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 20192 Vert er að minna á endurskinsmerk- in í skammdeginu sem nú hellist yfir. Ekki síst snemma á morgnana þeg- ar fólk á öllum aldri er á leið til vinnu eða skóla. Mikilvægt er að foreldrar passi upp á endurskinsmerkin fyrir börnin sín en jafnframt að fullorðn- ir gangandi eða hjólandi vegfarend- ur noti einnig þessi nauðsynlegu ör- yggistæki. Á morgun er útlit fyrir austanátt 5-13 m/s en hvassara verður með suð- austurströndinni. Rigning sunnan- og vestanlands en annars þurrt. Hiti 0-7 stig. Á föstudag, laugardag og sunnu- dag er spáð austlægri átt. Það verð- ur úrkomulítið en rigning með köfl- um sunnan- og austanlands. Hiti yfir- leitt 0-6 stig. Á mánudag er útlit fyrir ákveðna norðaustlæga átt og rign- ingu eða slyddu með köflum norðan- og austanlands en annars þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. Í síðustu viku spurðum við á vef Skessuhorns hvort lesendur borða til að lifa eða lifa til að borða. Flest- ir, 45%, segjast gera sittlítið af hvoru. 41% sögðust borða til að lifa og 15% svarenda lifa til að borða. Í næstu viku er spurt: Hvort velur þú frekar matvöru sem inniheldur hvítan sykur eða sætuefni? Ferðaþjónustan Húsafelli hlaut Ný- sköpunarverðlaun SSV á föstudaginn en verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem þykir hafa komið með áhugaverða nýjung á árinu. Allir sem standa að Ferðaþjónustunni Húsafelli eru Vest- lendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Eldur í Ölveri HVALFJ.SV: eldur kom upp í sumarhúsi í Ölveri við Hafnarfjall á mánudaginn. Húsráðanda tókst sjálfum að slökkva eldinn, sem kom upp í rafmagnstöflu. nokk- urn reyk lagði um húsið og er talið að húsráðandi hafi mögulega fengið reykeitrun. Sjúkrabíll var sendur á vett- vang og manninum var gef- ið súrefni. Hresstist hann við það. Talið er nokkuð augljóst eftir vettvangsrannsókn að kviknað hafi í út frá lekaliða í rafmagnstöflunni, að sögn lögreglu. -kgk Tillögur íbúa til framkvæmda SNÆFELLSBÆR: Tölu- verðu fé verður veitt til framkvæmda á tillögum sem bárust frá íbúum Snæfells- bæjar í gegnum verkefnið Betri Snæfellsbær. Tillaga þess efnis var samþykkt sam- hljóða á fundi bæjarstjórn- ar 12. nóvember síðastlið- inn. Litið var á þessa fyrstu hugmyndasöfnun sem nokk- urs konar þróunarverkefni til að kanna áhuga og þátt- töku meðal íbúa, sem gátu sent inn tillögur og hug- myndir að betri byggð frá 19. september til 19. októ- ber. „Skemmst er frá því að segja að þátttaka meðal íbúa reyndist góð og bárust 45 til- lögur sem tæknideildin hefur nú til meðferðar,“ segir á vef Snæfellsbæjar. eftir frum- skoðun á hugmyndum lagði tæknideild til að gert yrði ráð fyrir töluverðum fram- kvæmdakostnaði í fjárhags- áætlun næsta árs, vegna Betri Snæfellsbæjar. Þær hug- myndir og tillögur sem verða settar á fjárhagsáætlun 2020 og koma til framkvæmda þá verða kynntar sérstaklega þegar vinnu verður að fullu lokið. -kgk Hálfs árs leyfi REYKHÓLAHR: Karl Kristjánsson, sveitarstjórn- arfulltrúi í Reykhólahreppi, hefur óskað eftir hálfs árs leyfi frá sveitarstjórnarstörf- um, til 1. júní næstkomandi. Beiðni hans var samþykkt samhljóða á síðasta fundi sveitarstjórnar 12. nóvem- ber síðastliðinn. Ágústa Ýr Sveinsdóttir, fyrsti varamað- ur, tekur sæti Karls í sveit- arstjórn á meðan hann er í leyfi. -mm Miðfellsbúi mokar HVALFJSV: Vegagerðin og Hvalfjarðarsveit hafa sam- ið við fyrirtækið Miðfells- búa ehf. um snjómokstur og hálkueyðingu í sveitarfé- laginu fram á vor. Fimm til- boð bárust í mokstur í Hval- fjarðarsveit þegar auglýst var eftir þeim, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. -kgk Rúmlega tuttugu tonna fiskibátur, einar Guðnason ÍS-303, strand- aði við Gölt á utanverðum Súg- andafirði seint á miðvikudagskvöld í liðinni viku. Stjórnstöð Land- helgisgæslunnar barst neyðarkall frá bátnum klukkan 22 en fjór- ir voru um borð. TF-eIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var þegar í stað kölluð út sem og björgunar- sveitir Slysavarnafélagsins Lands- bjargar á norðanverðum Vestfjörð- um. Báturinn skorðaðist fljótlega á milli kletta og braut nokkuð á hon- um. Hægur vindur var á svæðinu og þónokkur alda. ekki reyndist unnt fyrir björgunarskip að kom- ast nálægt strandstað frá sjó sökum brims og voru björgunarsveitir þá sendar landleiðina frá norðanverð- um Súgandafirði. TF-eIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, kom á vett- vang klukkan 23:42 og áhöfn henn- ar hófst þegar handa við að bjarga skipverjunum fjórum um borð í þyrluna. Á miðnætti var búið að bjarga mönnunum, heilum á húfi, um borð í þyrluna. Þeir voru fluttir til Ísafjarðar. mm Ræður alþingismanna á Alþingi Ís- lendinga eru nú skráðar sjálfkrafa af gervigreindum talgreini. Tal- greinirinn skráir um tíu mínútur af ræðum á einungis þremur og hálfri mínútu, hann hefur allt að 90% rétt eftir og auðveldar til muna skrán- ingu og birtingu á ræðum alþing- ismanna. Talgreinir Alþingis hefur þegar skráð niður um 640 klukku- „Bergvíkin kom og hjálpaði okkur í fjóra daga í síðustu viku að sækja allt sem við áttum og koma því í land,“ segir ólafur Jónsson, annar tveggja skipstjóra Blíðu SH-27, sem sökk á beitukóngsveiðum norður af Langeyjum á Breiðafirði 5. nóvem- ber síðastliðinn, en ólafur var í fríi þegar skipið sökk. „Við tókum allt sem við áttum úti í land. Þetta voru 20 strengir, samtals um tvö þús- und gildrur,“ bætir hann við. „Við í áhöfn Blíðu fórum með þeim út, strákunum á Bergvíkinni, að tína þetta upp. Það gekk allt í sóma, var mikil vinna í stuttan tíma en við fengum gott veður og þetta er allt komið í land,“ segir hann og bætir því við að allir séu búnir að jafna sig eftir að Blíðan sökk. Á laugardag fór ólafur ásamt fleirum út í Rif og sótti Báru SH-027. Hún er nú komin suður til njarðvíkur þar sem henni verður breytt í beitukóngs- og ígulkerjabát, sem sagt til sömu veiða og stundaðar voru á Blíðu. ólafur kveðst þó ekki vita hvenær hann og áhöfnin kemst aftur til veiða. „Það mun taka einhvern tíma, vikur eða jafnvel mánuði, að útbúa þennan bát áður en við getum farið að veiða á honum. Það þarf að að smíða allt nýtt á dekkið á Bárunni, því það er ekkert í henni sem við notum til þessarra veiða. en að öðru leyti er hún mjög góður bátur,“ segir ólafur Jónsson að endingu. kgk/ Ljósm. sá. Bergvíkin komin með gildrur og búnað Blíðu til hafnar í Stykkishólmi. Sóttu gildrur og búnað Blíðu Áhöfnin á Bergvík GK aðstoðaði skipverja á Blíðu SH við að sækja gildrurnar sem voru úti þegar Blíða sökk á Breiðafirði fyrr í mánuðinum. Gervigreindur talgreinir skráir ræður alþingismanna Jón Guðnason afhendir hér Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra Alþingis ritvél sem tákn um talgreininn en hann er vistaður rafrænt í skýi. Ljósm. Anton Brink. stundir af ræðum þingmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá At- hygli fyrir hönd Alþingis. Talgreinir Alþingis var þróaður af vísindamönnum við verkfræði- deild Háskólans í Reykjavík sam- kvæmt samningi við Alþingi frá því í september 2016. Jón Guðnason, dósent við verkfræðideild HR, af- henti Rögnu Árnadóttur, skrifstofu- stjóra Alþingis, talgreininn form- lega á viðburði Almannaróms um máltækni á Degi íslenskrar tungu í Iðnó síðastliðinn laugardag. Fyrsti fasi þróunarstarfsins var að smíða og þjálfa nýjan talgreini og prófa mismunandi tæknilegar út- færslur af talgreiningu sem hent- aði verkefninu. Þá þurfti að gera hið mikla magn upptaka, sem Al- þingi á af ræðum, aðgengilegar fyr- ir talgreininn til þjálfunar. einnig þurfti að smíða sérhæft mállíkan sem hentaði málfari í ræðum á Al- þingi og gera kleift að bæta við orð- um sem ekki er að finna í útgefnum orðabókum og orðasöfnum. Dæmi um slíkt orð er „rafsígarettur“. Annar fasi vinnunnar, sem hófst í október á síðasta ári, var samþætt- ing talgreinisins við tölvukerfi Al- þingis og uppsetning ferla til að nýta talgreininn í að skrifa upp ræð- ur þingmanna, fara yfir og leiðrétta þá skráningu og koma ræðunum á vef Alþingis. Talgreinir Alþingis er smíðaður í opnum hugbúnaði og ætti að geta nýst mörgum öðrum sem þurfa að breyta töluðu máli í skrifaðan texta. mm Fjórum skipverjum bjargað um borð í þyrlu

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.