Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2019, Side 6

Skessuhorn - 20.11.2019, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 20196 Fresta út­ sendingum STYKKISH: Fyrirhugað var að hefja upptökur á fundum bæjarstjórnar Stykkishólms- bæjar, til birtingar á heimasíðu sveitarfélagsins, 1. nóvember síðastliðinn. Sátt er um málið meðal allra lista, sem er í sam- ræmi við stefnu þeirra allra um opnari, skilvirkari og gagnsærri stjórnsýslu, að því er fram kem- ur í fundargerð frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Bæjarráð hafði áður fjallað um málið og lagt til að útsendingum yrði frestað um þrjá mánuði, þar sem tækjabún- aður, umgjörð og nánari útfærsla lægi ekki fyrir. Bæjarstjórn sam- þykkti afgreiðslu bæjarráðs með fjórum atkvæðum gegn þremur. Fulltrúar Okkar Stykkishólms gagnrýndu frestunina í bók- un sinni og kváðust ekki skilja hvers vegna tæki svona langan tíma að hanna útfærslu og um- gjörð fyrir verkefnið. nú þeg- ar sendi fjöldi bæjarfélaga út frá fundum og Stykkishólmsbær þyrfti ekki að finna upp hjólið í þeim efnum. -kgk Laus hross á vegum VESTURLAND: nokkuð var um lausagöngu hrossa í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Að morgni þriðjudagsins 12. nóvember var tilkynnt um lausa hesta á Vest- urlandsvegi til móts við narfa- staði. Síðdegis á miðvikudag var tilkynnt um laus hross und- ir Hafnarfjalli, en fundið var út úr því hver eigandi hrossanna var, sem kom strax á staðinn og kom þeim aftur í girðingu. Þá var tilkynnt um laust hross, eitt á ferð og dökkt að lit á Snæ- fellsnesvegi við Ölkeldu kl. 21 kvöld eitt í síðustu viku, sem er alvarlegt því hrossin sjást illa í myrkri og geta skapað hættu í umferðinni. -kgk Sextíu samning­ um þinglýst VESTURLAND: Alls var 60 kaupsamningum vegna fast- eignaviðskipta þinglýst á Vest- urlandi í októbermánuði. Þar af voru 19 samningar um eign- ir í fjölbýli, 25 samningar um eignir í sérbýli og 16 um ann- ars konar eignir. Á vef Þjóð- skrár kemur fram að heildar- velta þinglýstra kaupsamn- inga í landshlutanum í októ- ber var 2.023 milljónir króna og meðaupphæð á samning var 33,7 milljónir. Af þessum 60 samningum var þriðjungur þeirra um eignir á Akranesi, eða 20 samningar. Af þeim voru 13 um eignir í fjölbýli og sjö um eignir í sérbýli. Heild- arvelta samninganna sem þinglýst var á Akranesi var 838 milljónir króna og meðalupp- hæð á samning 41,9 milljónir. -kgk Segin saga hrað­ aksturs VESTURLAND: Það er seg- in saga að hraðakstur er áber- andi í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Var liðin vika engin undantekning þar á, að sögn aðstoðaryfirlögreglu- þjóns. Ökumaður var stöðv- aður að morgni þriðjudagsins 12. nóvember á 131 km/klst. á Vesturlandsvegi við Galtar- holt. Var honum gert að greiða fjársekt að upphæð 115 þús- und krónur. Þá var einn stöðv- aður í vikunni á 124 km/klst. hraða við Búðardal og segir lögregla enn allt of algegnt að sjá hraðaksturstölur milli 110 og 120 km/klst. í umdæminu. -kgk Komdu niður sungu öll í kór AKRANES: Kallað var eftir aðstoð lögreglu vegna drengs sem hafði klifrað upp á þak Brekkubæjarskóla á Akranesi að morgni síðasta fimmtu- dags. Drengurinn hlýddi ekki boðum kennara og starfs- fólks um að koma niður og því var haft samband við lög- reglu, sem kom á staðinn og eftir það fékkst drengurinn til að koma niður. Málið var til- kynnt til barnaverndar, eins og alltaf er gert ef lögregla sinnir málum sem varða börn upp að 18 ára aldri. Dóp í bíl og á heimili BORGARBYGGÐ: Síðast- liðinn miðvikudag stöðvaði lögregla för ökumanns sem ók um Vesturlandsveg í Borg- arfirði, grunaðan um akst- ur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fíkniefnapróf gaf til kynna að hann hefði neytt am- fetamíns. Var hann því hand- tekinn, færður á lögreglustöð og gert að gefa blóðsýni. Mað- urinn reyndist enn fremur vera án ökuréttinda. Í bifreið mannsins fundust ætluð fíkni- efni og við húsleit sem fram- kvæmd var í kjölfarið fundust sex brúnar töfluð, grænt duft sem talið er að sé kannabis, hvítt duft sömuleiðis og ólög- legur hnífur. -kgk Almennri verkstæðisþjónustu Bifreiðaþjónustu Snæfellsness í Grundarfirði verður lokað föstu- daginn 29. nóvember næstkom- andi. Bifreiðaþjónusta Snæfellsness er í eigu Rútuferða og er þetta liður í breytingum á rekstri fyrirtækisins. „Verkstæðinu verður lokað í nú- verandi mynd. Okkar helsti tekju- liður eru rútuferðirnar. Verkstæðið keyptu Rútuferðir á sínum tíma til að hafa aðstöðu fyrir tæki og tól og til að geta sinnt viðhaldi á hópferða- bifreiðunum. nú er orðið það mik- ið að gera á vettvangi Rútuferða, en minna á verkstæðinu, að við höf- um ákveðið að loka því og hættum þar með að reka almennt bifreiða- verkstæði,“ segir Lísa Ásgeirsdótt- ir, framkvæmdastjóri Rútuferða og Bifreiðaþjónustu Snæfellsness, í samtali við Skessuhorn. „Þó munum við áfram annast framrúðuskipti fyrir trygginga- félögin, þar sem við erum eini slíki þjónustuaðilinn á Snæfellsnesi,“ segir hún. „en öllum öðrum al- mennum bílaviðgerðum verður hætt og verkstæðið eingöngu notað til viðhalds og viðgerða á hópferða- bifreiðum Rútuferða,“ bætir hún við. „eini starfsmaður Bifreiða- þjónustu Snæfellsness, sem hefur sinnt almennum bílaviðgerðum til þessa, lætur af störfum í lok mán- aðarins. Hann langaði að breyta til og hefur fundið sér annað að gera, þannig að það er allt saman gert í sátt og samlyndi. Starfsmenn Rútu- ferða, sem hafa bæði annast akstur og viðhald á rútunum, munu gera það áfram á verkstæðinu þó almenn bifreiðaþjónusta leggist af,“ segir Lísa Ásgeirsdóttir að endingu. kgk eigendur BOX7, Crossfit stöðvar- innar í Grundarfirði, standa fyrir áheitasöfnun til styrktar Berglindi Jósepsdóttur næstkomandi laugar- dag, 23. nóvember. Ætlunin er að róa 500 kílómetra og safna áheit- um og eru allir Grundfirðingar og aðrir hvattir til að leggja málefninu lið. Crossfit stöðin verður opnuð klukkan 8 á laugardagsmorgun og verður ekki lokað aftur fyrr en búið er að ná 500 kílómetrum. Viðburð- ur var stofnaður á Facebook und- ir nafninu „Berjumst með Beggu“ og þar eru allir sem geta hvattir til að aðstoða með róðurinn og söfn- unina. „endilega komið og hjálpið okkur að róa bæði ungir sem aldn- ir. Þurfum alla þá hjálp sem býðst,“ segir í tilkynningu. Begga er 33 ára, tveggja barna móðir í sambúð með Sigurbirni og greindist hún með krabbamein í upphandlegg í júní síðastliðnum. Begga hefur síðan þá þurft að und- irgangast lyfjameðferð sem get- ur reynt mikið á. „Hún hóf sína fimmtu lyfjameðferð 6. október, full af von og trú þar sem meinið hafði minnkað en þá komu þung- bærar fregnir, meinið hafði stækkað og til viðbótar höfðu bæst við fimm mein í lungum. nú hefst hjá Beggu erfið geislameðferð sem hún verður í næstu þrjár vikurnar og svo áfram- haldandi lyfjameðferð eftir það. Hún þarf mikinn kraft og stuðn- ing til að halda áfram að berjast við meinin,“ segir í viðburðinum á Fa- cebook. Þeir sem vilja leggja Beggu og fjölskyldu lið er bent á að hægt er að heita á hvern kílómeter sem á að róa auk þess sem tekið verður við frjálsum framlögum og verður kassi á staðnum þar sem hægt er að setja pening og tekið er við millifærslu á reikning: 0321-13-161444, kt: 250868-4999. arg Efna til áheitasöfnunar fyrir unga móður í Grundarfirði Lísa Ásgeirsdóttir, framkvæmda- stjóri Rútuferða og Bifreiðaþjónustu Snæfellsness. Ljósm. úr safni/ tfk. Bifreiðaþjónustu Snæfellsness lokað um mánaðamótin Berglind Jósepsdóttir er 33 ára, tveggja barna móðir í sambúð og berst hún nú við krabbamein.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.