Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 2019 13
Hefur þú áhuga á þjónustu og
samskiptum?
Capacent — leiðir til árangurs
Akraneskirkja gegnir mikilvægu
hlutverki í þjónustu við
sóknarbörn í tæplega 7500
manna sveitarfélagi. Í kirkjunni
fer fram starf fyrir alla aldurshópa
og eru starfsmenn kirkjunnar
lykilinn að því að starð sé
vandað og að þjónustan sé í
samræmi við þarr þeirra sem
til hennar leita. Í Akraneskirkju
starfar samhentur hópur
sem leggst á eitt við að gera
kirkjustarð og þjónustuna
sem allra besta. Kirkjan leggur
áherslu á að starfsmenn
búi við gott starfsumhver
og geti þróast og dafnað í
star sínu. Kirkjan rekur, auk
hefðbundins safnaðarstarfs,
útfararþjónustu, safnaðarheimili
og sinnir verkefnum er snúa að
kirkjugarðinum á Akranesi.
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/15169
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í star.
Góð reynsla af rekstri og umtalsverð reynsla af bókhaldi.
Reynsla af þjónustu og framúrskarandi þjónustuviðmót.
Frumkvæði, góð samskipta- og leiðtogahæfni.
Sjálfstæði í star og ögun í vinnubrögðum.
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
2. desember
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Þjónusta við söfnuðinn, gestkomandi og aðra þá sem til
kirkjunnar leita.
Daglegur rekstur á skrifstofu og útfararþjónustu kirkjunnar.
Umsjón með bókhaldi, innkaupum, útsendingu reikninga
og eiri fjármálatengdum verkefnum.
Utanumhald og eftirfylgni viðhaldsverkefna.
Umsjón með Kirkjugarði Akraness.
Akraneskirkja leitar að lykilaðila til þess að sinna star skrifstofustjóra. Skrifstofustjóri er leiðandi í þjónustu við sóknina
og hefur yrumsjón með færslu bókhalds, innkaupum, uppgjörum og öðrum fjármálatengdum verkefnum auk þess að
vera helsti tengiliður vegna útfararþjónustu kirkjunnar. Starð krefst mikilla samskipta og ríkrar þjónustulundar.
Í boði er spennandi starf í gefandi umhver þar sem þjónusta við fólk á mikilvægum stundum í lí þess er kjarninn í
starnu.
Hallsteinssalur er í Safnahúsi, að Bjarnarbr. 4-6 í
Borgarnesi. Opið til kl. 16 á opnunardaginn og
eftir það 13-18 virka daga. Ókeypis aðgangur.
Safnahús Borgarfjarðar
433 7200 - www.safnahus.is
safnahus@safnahus.is
Samsýning kvenna með tengingu við
Borgarfjörð
23. nóv. 2019. - 7. jan. 2020
Elísabet Haraldsdóttir, Harpa Einarsdóttir, Ingibjörg
Huld Halldórsdóttir og Ósk Gunnlaugsdóttir.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 23. nóv. kl.
13.00. Efni hennar tengist sögunni um ambáttina Brák
í Egils sögu. Þar má sjá breitt svið listrænnar
tjáningar; leirlist, stór akrýl- og vatnslitaverk,
krosssaum, innsetningu og skúlptúr.
Verið velkomin!
Brák
Þeir sem óska eftir að birta mörk í nýrri
markaskrá sem gefin verður út á næsta
ári þurfa að hafa samband við markavörð
Mýrasýslu, Þóri Finnsson Hóli í Norðurár-
dal í síma 435-0041.
Öllum sem skráðir eru fyrir mörkum í gild-
andi markaskrá verður sendur listi yfir mörk
sín svo þeim gefist færi á breytingum, ef
þess gerist þörf. Skráningargjald er 3.000
kr. á mark. Mörk sem ekki er greitt fyrir falla
úr skráningu.
Markasöfnun þarf að vera lokið fyrir
20. desember nk.
Markavörður Mýrasýslu
Auglýsing um
búfjármarkaskráningu
í Mýrasýslu
Mikið ósamræmi er í þróun fjár-
veitinga til mismunandi verkefna
sem falla undir verksvið umhverf-
is- og auðlindaráðuneytisins, að því
er fram kemur í upplýsingum sem
Samtök náttúrustofa tóku sam-
an úr fjárlögum áranna 2005-2019
og fyrirliggjandi fjárlagafrum-
varpi fyrir næsta ár. „Þegar horft
er á þróunina sést að meðalfram-
lag til hverrar náttúrustofu lækk-
aði um 35% á núverandi verðgildi,
þegar tekinn er munur á hæstu fjár-
veitingunni á tímabilinu, árið 2008,
og fjárveitingunni árið 2019,“ seg-
ir Róbert A. Stefánsson, forstöðu-
maður náttúrustofu Vesturlands.
„Skoðað á sama hátt lækkaði fjár-
veiting til verndar Breiðafjarðar um
44% frá árinu 2005-2019. Allt önn-
ur mynd blasir við þegar litið er á
aðrar stofnanir. Fjárveitingar hækk-
uðu um 50% til náttúrufræðistofn-
unar Íslands frá 2005-2019 og um
82% til náttúrurannsóknarstöðv-
arinnar við Mývatn, en fjárveiting-
ar til Skógræktarinnar hækkuðu um
126% frá 2015-2019.“
Að sögn Róberts eru náttúrustof-
urnar átta dreifðar um allt land og
hver um sig með sjálfstæðan fjár-
hag. „Þessi samanburður á með-
alframlagi til náttúrustofa ann-
ars vegar og til nokkurra annarra
stofnana á sviði umhverfismála hins
vegar er sláandi. Við samgleðjumst
kollegum okkar, enda er fullt til-
efni til að efla rannsóknir á nátt-
úru landsins. Aftur á móti erum
við ósátt við lækkunina til náttúru-
stofa, sem nemur um það bil kostn-
aði við stöðugildi eins sérfræðings
á hverri stofu. Á litlum stofnun-
um munar aldeilis um minna. eftir
hrun fengum við þær skýringar að
um almenna aðhaldskröfu væri að
ræða en í uppsveiflunni undanfar-
in ár á það auðvitað ekki við leng-
ur og höfum við ekki fengið skýr-
ingar á því að þróunin hefur ekki
verið sú sama á náttúrustofnunum
og öðrum sambærilegum stofnun-
um. Þessi breyting byggir því ekki á
stefnumótun um að veikja starfsemi
náttúrustofnanna.“
arg
Ósamræmi
í þróun fjárveit
inga í umhverfis
geiranum Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is