Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201918
Hjónin Ása Laufey Sigurðardótt-
ir og Hallgrímur Þór Finnborga-
son lögðu af stað í heimsreisu
ásamt þremur börnum sínum, Sig-
ríði Freyju 16 ára, Guðlaugu Maríu
13 ára og Matthíasi Kára sem verð-
ur 9 ára í lok mánaðarins. Fjölsyld-
an, sem var búsett á Akranesi, tók
ákvörðun um að selja húsið og allar
sínar eigur síðasta sumar og héldu
af stað 3. ágúst. Þau voru þá búin
að skipuleggja ferðalagið sex mán-
uði fram í tímann en stefna þó á að
vera á ferðinni í heilt ár. en hvers
vegna ákváðu þau að fara í þessa
ferð? „Við erum bara að leika okk-
ur og hafa gaman. Okkur langar að
kynnast heiminum, læra um ólíka
staði og ólíka menningu og kynnast
alls konar fólki,“ svarar Ása. „Og
við vildum bara sjá hvað er þarna
úti,“ bætir Hallgrímur við.
Ekki eftir neinu að bíða
Ása og Hallgrímur hafa rætt það í
hálfkæringi annað slagið að fara í
heimsreisu en þau segja þó aldrei
neina alvöru hafa verið þar á bakvið,
ekki fyrr en síðastliðið vor. Í apríl
tóku þó endanlega ákvörðun um að
þau ætluðu að láta verða af þessu.
„eftir að strákurinn okkar greindist
með sykursýki fórum við að hugsa
meira um það hvað lífið er stutt og
maður veit aldrei hversu mikinn
tíma maður fær eða hvernig heils-
an hjá manni verður í framtíðinni.
Það var eiginlega ástæðan fyrir því
að við ákváðum að núna væri bara
tíminn til að láta verða af þessu, það
var bara ekki eftir neinu að bíða,“
segja þau en fjölskyldan var stödd í
Kína þegar Skessuhorn sló á þráð-
inn til þeirra. eftir að ákvörðun var
tekin fór allt á fullt í undirbúningi
og fengu þau ferðaskrifstofu til að
aðstoða sig með skipulag á flug-
ferðum, gististöðum og afþreyingu
fyrstu sex mánuðina. Framhaldið
munu þau svo sjá um að skipuleggja
sjálf. „Okkur þótti gott að fá aðstoð
af stað en við höfum lært mikið á
ferðalaginu og vitum meira hvern-
ig er best að gera þetta, eins og að
leita að besta verðinu, finna út hvar
sé best að vera og hvað sé sniðugast
að gera á hverjum stað. Þetta hefur
verið svona „learn as we go“ ferða-
lag,“ segir Ása og hlær.
Ferðalagið almennt
gengið vel
Aðspurð segjast þau alveg hafa lent
í smá óþægindum á ferðinni en al-
mennt hefur ferðalagið gengið
vel. „Það hefur ekkert stórkostlegt
komið upp á þannig séð. Við höf-
um stundum átt pínu erfitt með að
finna rétta staðinn sem við erum að
fara á og svo höfum við lent á mjög
skítugum herbergjum sem standast
ekki alveg okkar kröfur um hrein-
læti. Það er bara margt öðruvísi hér
úti í heimi en við erum vön á Íslandi
eða þar sem við ferðumst mest, inn-
an evrópu,“ segir Ása. Þá lentu þau
í heldur óþægilegu atviki á Maldí-
veyjum þegar þau ætluðu að fara
frá einni eyju yfir á aðra. „Það var
um hálftíma sigling á milli eyjanna
og á miðri leið átta ég mig á því að
við gleymdum vegabréfunum okk-
ar í skúffu á hótelinu sem við vor-
um á. en þetta reddaðist sem bet-
ur fer allt og við fengum vegabréfin
aftur,“ segir Ása og hlær. Hún lenti
líka í smá óhappi þegar þau voru
að skoða sig um á rafmagnshlaupa-
hjólum í Singapúr. „Ég missi jafn-
vægið aðeins og flýg beint á haus-
inn og fékk út úr því þetta rúmlega
góða glóðurauga, dofna hönd, kúlu
og svona. en sem betur fer er gott
heilbrigðiskerfi í Singapúr og all-
ir tala ensku svo ég fékk bara fína
aðstoð og jafnaði mig alveg,“ seg-
ir Ása. „Við erum líka með góða
ferðatryggingu sem er mjög mikil-
vægt þegar maður fer í svona ferða-
lag,“ segir Hallgrímur. „Já, sérstak-
lega þegar maður er klaufi eins og
ég,“ skýtur Ása inn í og hlær. Þá
hafa þau gleymt einstaka hlutum
hér og þar en ekkert sem þau sjá
sérstaklega eftir. elsta dóttir þeirra
gleymdi reyndar tölvu í rútu í Tæ-
landi en hana fengu þau til baka.
„Það hafa verið að gleymast föt,
hleðslutæki og svona eitt og ann-
að. Þegar maður er á svona miklu
ferðalagi, stoppar bara í tvo til þrjá
daga á hverjum stað, þá ruslar mað-
ur upp úr töskunum og svo hendir
í þær á hraðferð svo það gleymist
eðlilega stundum eitthvað,“ segir
Hallgrímur. „Við erum ekki að hafa
miklar áhyggjur af því samt og von-
um bara að einhver finnir þetta sem
geti nýtt það,“ bætir Ása við.
Húsbíll í Ástralíu
Þegar blaðamaður heyrði í fjöl-
skyldunni voru þau búin að fara til
London, Dubai, Abu Dhabi, Ind-
lands, Maldíveyjar, Singapore, Balí,
Kualalumpur, Tælands, Víetnam,
Kambódíu, og Laos áður en þau
fóru til Kína. Um þessar mundir
eru þau stödd í Suður-Kóreu og er
ferðinni heitið til Japans og þaðan
til Ástralíu þar sem þau ætla að vera
yfir jólin og áramót og endar sex
mánaða planið þeirra á nýja-Sjá-
landi. „Við tókum alveg mánuð af
þessum tíma sem við erum búin að
vera á ferðinni bara í að ferðast um
Laos, Víetnam og Kambódíu, sem
var mjög áhugavert ferðalag. Við
höfum líka farið og skoðað margt,
sáum meðal annars Taj Mahal á Ind-
landi sem var alveg magnað. Ann-
ars höfum við gert alveg ótrúlega
margt á þessum tíma,“ segja þau en
fjölskyldan er meðal annars búin að
fara í eyðimerkur safarí, sjá Kína-
múrinn auk þess sem þau fögnuðu
jólunum með heimamönnum í Abu
Dhabi. „Við ætlum að vera í Ástr-
alíu í mánuð og fyrstu tvær vikurn-
ar ætlum við að ferðast um á hús-
bíl,“ segir Ása. „Það verður spenn-
andi að sjá hvernig það gengur með
þrjú börn. Þetta verður örugg-
lega áskorun,“ heldur Ása áfram og
hlær. Jólin ætla þau að halda í Bris-
bane og áramótin í Sidney.
Sjá sjálf um kennslu
Hvernig er það þegar fjölskylda
fer svona á ferðalag með börn á
skólaaldri? „Krakkarnir voru í
Brekkubæjarskóla og við rædd-
um við kennarana þeirra og feng-
um mjög góð ráð varðandi námið,
hvað væri gott að hafa í huga og
svoleiðis. Matthías er í 4. bekk og
hann tók stærðfræðibækurnar með
sér út og svo erum við með raf-
bækur sem hann les. Við fengum
bara leyfi til að sjá sjálf um kennsl-
una þeirra á meðan við erum úti.
Við erum enn tengd Mentor og
fylgjumst þar með öllum áætlun-
um og reyndum að skipuleggja
námið þannig að þau læra virka
daga eins og ef þau væru í skóla
og reynum þannig að halda þeim
á áætlun,“ útskýrir Ása og bæt-
ir því við að samband þeirra við
kennarana sé mjög gott. „Þetta
hefur bara gengið mjög vel og við
Systkinin með Taj Mahal á Indlandi í bakgrunni.
Fjölskylda tók sig upp og flakkar um heiminn
Fjölskyldan við Angkor Wat í Kambódíu.
Krakkarnir voru vinsælir í myndatökum með kínverskum ferðamönnum.
Það voru 272 þrep að komast upp í Batu Caves í Malasíu.
Fjölskyldan gekk í hlutverk fílahirða í einn dag þar sem þau fengu m.a. fræðslu og
bað með fílunum.