Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 2019 21
Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar 100% framtíðarstöðu slökkviliðstjóra Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Slökkviliðsstjóri er yfirmaður slökkviliðsins og er faglegur stjórnandi þess. Hann hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum
rekstri brunavarnarmála fyrir bæði sveitarfélögin. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Leitað
er að metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf.
ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR?
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun
slökkviliðsins
• Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins
• Úttektir, eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Samskipti við hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. nr. 75/2000
og starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa
háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum
• Umsækjandi þarf að hafa stjórnunarreynslu og þekkingu á rekstri
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
• Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði í starfi
• Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Leiðtogafærni og vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsókn skulu fylgja ítarlegar og greinargóðar upplýsingar um náms- og starfsferil
þar sem tilgreind eru verkefni og ábyrgð úr fyrri störfum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Páll Harðarson
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Starfið hentar öllum kynjum.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Í síðustu viku komu út skýrslur
með niðurstöðum kannana á við-
horfum heimafólks til ferðamanna
og ferðaþjónustu á fjórum áfanga-
stöðum; Reykjanesbæ, Stykk-
ishólmi, Húsavík og egilsstöð-
um. Kannaðar voru bæði sértæk-
ar og staðbundnar áskoranir sem
fylgja uppbyggingu ferðaþjónustu
og móttöku ferðamanna á þessum
stöðum.
niðurstöður staðfesta að ferða-
mennskan hefur mikil áhrif á sam-
félag heimamanna en áhrifin eru
nátengd staðbundnum einkennum
hvers staðar. Heilt yfir var jákvæð-
ni heimamanna nokkuð afgerandi
og voru flestir þeirrar skoðunar að
ferðamennska hefði bæði bætt lífs-
gæði og lífskjör í samfélaginu. ein-
hugur var um efnahagslegt mikil-
vægi atvinnugreinarinnar fyrir
samfélögin og að ferðaþjónusta
hafi bæði verið atvinnuskapandi og
ýtt undir fjölbreytni í atvinnulífi. Á
öllum stöðum hafði þjónustustig
haldist hátt að mati heimamanna.
Á öllum stöðunum kom fram að
ferðaþjónusta hefði haft neikvæð
áhrif á leigumarkað.
Stykkishólmur á
sér langa sögu í ferða
þjónustu
Í skýrslunni um Stykkishólm kem-
ur margt athyglisvert í ljós. Um
65% þeirra 235 þúsund erlendu
ferðamanna sem komu í Stykkis-
hólm árið 2018 komu á tímabilinu
maí til september sem þýðir að árs-
tíðasveifla í komum ferðamanna er
minni í Stykkishólmi en víða ann-
ars staðar. Íbúar Stykkishólms urðu
oftar en íbúar hinna svæðanna var-
ir við ferðamenn, í miðbænum sáu
þeir ferðamenn alla daga og æ oft-
ar yfir veturinn. Talað um að árið
2016 hafi orðið sprenging í fjölda
ferðamanna í bænum sem síð-
an hafi aðeins dregið úr. Flestum
heimamönnum fannst fjöldi ferða-
manna í bænum yfirleitt hæfilegur
en fundu þó mest fyrir fjöldanum á
sumrin af öllum svarendum könn-
unarinnar. Þetta er nokkuð ólíkt því
sem fram kom í viðhorfum íbúa á
Vesturlandi árið 2017 þar sem fram
kom að Vestlendingar urðu sjaldnar
en íbúar í öðrum landshlutum var-
ir við ferðamenn og voru líklegastir
til að finnast fjöldinn of lítill. Á því
geta verið skýringar. Stykkishólm-
ur á sér langa sögu um ferðaþjón-
ustu sem spunnist hefur í kringum
ferjusiglingar og gistingu og fyrir
þær sakir er löng hefð fyrir komum
ferðamanna í bæinn. Þá eru ótaldir
innlendir ferðamenn sem að mati
heimamanna hafa löngum verið
áberandi í bænum.
Áhyggjur af stöðnun
sem ferðaþjónustubær
Að mati heimamanna felst aðal-
aðdráttarafl bæjarins í náttúrufeg-
urð Breiðafjarðar og gömlu húsun-
um í bænum sem heimamenn voru
stoltir af. Þetta var í samræmi við
svör ferðamanna í ferðavenjukönn-
un sem gerð var í Stykkishólmi
sumarið 2018. Ferðamenn voru al-
mennt ánægðir með dvölina í bæn-
um, einkum með fegurð og um-
hverfi bæjarins, gestrisni bæjarbúa
og staðsetningu. Hlutverk ferða-
þjónustu í fjölskrúðugu atvinnu-
lífi bæjarins var eitt meginstefa í
niðurstöðunum í Stykkishólmi en
auk þess voru heimamenn ánægð-
ir með framboð þjónustu í bænum
og mannlífið. Fjölbreytt atvinnulíf
var talinn vera einn af stærstu kost-
um samfélagsins og væri afkoma
heimamanna ekki háð afkomu
einnar atvinnugreinar. Ákveðn-
ar áhyggjur voru meðal heima-
manna um að bærinn hefði mögu-
lega staðnað sem ferðaþjónustubær
á sama tíma og Snæfellsnes í krafti
þjóðgarðs hefði eflst sem áfanga-
staður. Fram kom að auðvelt væri
fyrir ferðamenn að fara í dagsferð
um nesið frá höfuðborgarsvæðinu
og að Stykkishólmur væri raun-
verulega úr leið með tilliti til Snæ-
fellsnesshringsins. Viðmælendur
töldu að efla þyrfti aðdráttarafl bæj-
arins en til þess þyrftu fyrirtæki og
sveitarfélag að taka höndum sam-
an. Fram kom að mörg ferðaþjón-
ustufyrirtæki í bænum væru afar lít-
il. Mikil vinna hlaðist á fáar hend-
ur í litlu samfélagi sem geti leitt til
þess að batteríin klárist þrátt fyrir
góðan ásetning.
Heimagisting á
lagagráu svæði
eitt einkenni Stykkishólms er að í
hluta íbúaðarhúsa bæjarins er ekki
föst búseta. Talað var um þau sem
frístundahús í eigu utanbæjarfólks
og eignir sem leigist að öllu leyti
eða að hluta til ferðamanna. Auk
þess eru einhverjir íbúar að skapa
sér tekjur með því að bjóða upp á
heimagistingu . Í viðtölunum kom
fram að mikil aukning hefði orðið
á slíkri gistingu fyrir ferðamenn. Í
ferðavenjukönnuninni kom fram
22% svarenda hefði verið í einka-
gistingu í Stykkishólmi s.s. Airbnb.
Í sumum tilfellum var slík ráðstöf-
un samfélagslega samþykkt, s.s. í
tilfellum útleigu húsa til stéttar-
félaga og þegar hús eru leigð í heilu
lagi til ferðamanna. Það kom hins
vegar skýrt fram að helstu árekstr-
ar heimamanna og ferðaþjónustu
tengdust ráðstöfun fasteigna með
þessum hætti og að um viðkvæmt
mál væri að ræða. Auk þess höfðu
erfið mál um heimagistingu á laga-
lega gráu svæði valdið úlfúð í sam-
félaginu og haft neikvæð áhrif á bú-
setuskilyrði og lífgsæði íbúa. Kall-
að var eftir enn skýrari úrræðum
fyrir heimamenn og auknu eftirliti
af hálfu hins opinbera og í útgáfu
leyfa. mm
Helstu ummæli ferðamanna um Stykkishólm.
Ferðaþjónusta hefur bætt lífsgæði og lífskjör
Stykkishólmur þekktur fyrir fagurt umhverfi og gömlu húsin
Stykkishólmur séður úr Súgandisey.