Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2019, Side 26

Skessuhorn - 20.11.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201926 Vísnahorn Jæja hátíðirnar nálgast óðum og veitir víst ekki af að reyna að koma sér upp einhverju kristilegu hug- arfari áður en allt brestur á. Jólalögin eiga trúlega eftir að glymja á okk- ur ósparlega og lítið annað í boði en láta það yfir sig ganga. Á organistanámskeiði þar sem verið var að æfa gömul sálmalög tautaði Ingi- björg Bergþórsdóttir fyrir munni sér: Við skulum gaula Gregorsöng, grimmt við skulum stund´ann. Sé bænin nógu leið og löng lætur Drottinn undan. Þó kirkjusókn sé almennt ekki neitt til að hrópa húrra fyrir er hún þó oftast nokkuð góð um hátíðarnar. Um prest nokkurn sem eins og fleiri kollegar hans mátti búa við fremur dræma kirkjusókn orti Þórdís Sigurbjörns- dóttir: Uppi í stólnum æ og sí áminningar fremur. Lítið gagn er þó að því þegar enginn kemur. Hvað sem líður nú okkar andlegu fóðr- un þarf skrokkurinn alltaf sitt með einhverj- um hætti. Oftast þarf þar eitthvað að koma á móti. Annaðhvort peningar eða vinna. emil Petersen sagði einhvern tímann: Auraleysis þreytir þraut -það er gömul saga. Ég hef aldrei ort fyrir graut alla mína daga. Margir Borgnesingar muna eftir ólafi Gunnarssyni frá Borgum sem bjó nokkur ár í Borgarnesi og lýsti sjálfum sér svo: Ístran vex á Ólafi um það margir rabba, hann mun vera viljugri við að éta en labba. Skagfirðingurinn Bjarni Gíslason fæddur um 1880 var alinn upp hjá vandalausum sem var svosem rúmlega nógu algengt með börn fátæklinga á þeim árum en hér koma þrjár ósamstæðar vísur eftir hann: Þótt mig léki lífið grátt, lítill virtist gróði, ég hef máske alltaf átt ögn í sparisjóði. Ég hef kynnst við trega og tál, trúin finnst mér lygi, ljósblik innst í eigin sál er mitt hinsta vígi. Hefir skeikað hæfni þrátt, hugur reikað víða en að leika lokaþátt lítt mér eykur kvíða. Menn hafa lengi velt fyrir sér tilgangi lífsins og hvort líf sé eftir þetta eða tilvera með ein- hverjum hætti. Freysteinn Gunnarsson orð- aði þetta svo: Gleðin er léttvæg og lánið er valt. Lífið er spurning sem enginn má svara. Vinirnir koma kynnast og fara, kvaðning til brottfarar lífið er allt. Svo er líka hægt að velta fyrir sér hvaða refsingu við hljótum hinum megin fyrir synd- irnar sem við drýgjum í hérvistinni og þá með hverjum hætti þeim refsingum verður útdeilt. Kannske þurfum við að þola sjálf það sem við höfum gjört öðrum? Ja, maður spyr sig. Hilm- ar Pálsson orti um einhvern ágætan mann: Karlinn metið sjálfsagt setur senn í óðarsmiðjunni. Naumast betur nokkur getur nauðgað ljóðagyðjunni. Og af einhverju öðru tilefni sagði Auðunn Bragi: Margir fremja fúlan prett, forðast allt hið sanna, engin takmörk eru sett illsku sumra manna. Hvort sem alltaf er nú beinni illsku að kenna gengur mannskepnunni misjafnlega að rata þann hinn þrönga veginn enda sagði Guðmundur Illugason frá Skógum: Haldir þú til himnaranns hár er stigi að ganga en fótmál eitt til andskotans og engar tröppur þangað. einu sinni þótti jákvætt að vera í þokka- legum holdum eða jafnvel rúmlega það en það er víst liðin tíð. Fólk hópast í líkamsrækt- arstöðvarnar en að sjálfsögðu ekki nema að- gengi sé gott. Gnægð bílastæða og góður raf- magnsstigi fast að þrekhjólinu. Gestur Guð- finnsson orti um heilsulindina. Kannske í orðastað einhverrar góðrar konu: Ó, sæla heimsins heilsulind. Sem hrísla verð ég grönn við allskyns nudd og nuð og juð og naumast meira en spönn. En guð var alltaf góður mér og gaf mér marga björg og einnig þessi „aukapund“, sem urðu helzt til mörg. Ég þyngdist meira en þarflegt var og það er fyrir sig en nálaraugu allar dyr eru orðnar fyrir mig. Með rögg og festu ræðst ég að þeim rækals fituvef uns hvert það pund sem guð mér gaf ég gert að engu hef. nýlega var þess minnst að 120 ár eru liðin frá fæðingu Jóhannesar úr Kötlum. Fyrir all- nokkrum árum var reistur minnisvarði um Jó- hannes á lóð Barnaskólans í Búðardal. Höfuð- mynd af skáldinu standandi á grönnum súl- um og minnti Onna á Kjörseyri óþægilega á hvernig höfuð sakamanna voru meðhöndluð hér fyrr á öldum: Nú hafa Dalamenn dáldið djarflega hresst uppá skáldið. Þeir litu til baka. -Hans ljóð munu vaka. Svo hengdu þeir hausinn á stjaka. eitt af hlutverkum svona þátta og ekki það ómerkasta er að bjarga ýmsum gömlum kveð- skap frá eilífri glötun. Því miður óttast ég að töluvert af gömlum vísnablöðum fari í glat- kistuna þegar farið er að taka til í dóti þeirra sem horfnir eru hér úr heimi. Allt slíkt væri betur komið í skjalasöfnum viðkomandi hér- aðs. en nú langar mig að spyrja hvort ein- hver kannast við vísur sem ortar hafa verið fyrir svona 120 árum eða rúmlega það um þá reiðhesta sem þá voru hvað mest áberandi í Reykholtsdal og Hálsasveit og þessi hending mun í: ,,af bar Grána Þorvaldar.“ Þar mun átt við Gránu Þorvaldar á norð- urreykjum sem var afburðahross á sinni tíð. Sömuleiðis ef einhver kannast við kvæði sem þetta erindi er í og þá höfund endilega hafið samband: Hlýðum húmsins óði heilladísin mín, auðga lífið ljóði ljúfu brosin þín. Með þökk fyrir lesturinn. Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Með rögg og festu ræðst ég að ­ þeim rækals fituvef Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefnd- ar Akraness fer fram föstudaginn 13. desember frá klukkan 13-17 að Þjóðbraut 13, þar sem Vínbúð- in var áður til húsa. Tekið verður á móti umsóknum alla virka daga frá 22. nóvember til 1. desember frá kl. 11-13 í síma 859-3000 (María) og 859-3200 ( Svanborg). Alllir umsækjendur þurfa að skila inn staðgreiðsluskrá sem sýn- ir tekjur frá janúar til nóvember (ekki skattframtal). Hana má nálg- ast á vef Ríkisskattstjóra og einn- ig er hægt að fá hana útprentaða á Skattstofunni. einnig þarf að skila inn búsetuvottorði en það fæst út- prentað á skrifstofu Akraneskaup- staðar. Tekið verður á móti gögnum og skriflegum umsóknum í húsi Rauða krossins Skólabraut 25a 4. og 5. desember frá kl. 16-18. Mjög mikilvægt er að sækja um á aug- lýstum tíma þvi úrvinnsla umsókna tekur tíma og eftir 13. desember verður ekki úthlutað. Styrktarreikningur Mæðra- styrksnefndar er: 0552-14-402048 kt: 411276-0829. -fréttatilkynning Konur úr Kvenfélagi ólafsvíkur, ásamt félögum úr Skógræktarfé- lagi ólafsvíkur og aðstoðarmönn- um, hittust í Réttarskógi síðastlið- inn sunnudag. Tilgangurinn var að sækja greni og birkigreinar. Grein- arnar ætla kvenfélagskonur að nýta til að búa til leiðisgreinar sem þær verða með til sölu í Jólaþorpi Snæ- fellsbæjar í aðdraganda jóla. Var þetta hin skemmtilegasti hittungur og voru allir sem tóku þátt sammála um að það væri sérlega ánægjulegt að geta nýtt greni úr skógi í heima- byggð og verður það vonandi fyrsta skrefið í nýtingu skógarins. þa Vel var mætt á Þorsteinsvöku sem fram fór á Sögulofti Landnáms- setursins í Borgarnesi síðastliðið fimmtudagskvöld. Að kvöldinu stóð nýlega stofnað félag sem ber heit- ið Arfur Þorsteins frá Hamri. Þor- steinsvaka þessi var skilgreind sem óformlegur framhaldsstofnfundur félagsins. Að þessu ljóða- og sagna- kvöldi komu nokkrir einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík. Flutt voru stutt ávörp og lesin valin ljóð og rímur eftir skáldið. Til máls tóku Guðrún nor- dal, Vigdís Grímsdóttir, Theódór Þórðarson, Ástráður eysteinsson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Valdimar Tómasson, Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir og Þórarinn Jónsson frá Hamri. Sá síðastnefndi las valdar rímur úr bálki sem Þorsteinn bróð- ir hans orti 13 eða 14 ára að aldri. Rímnabálkurinn fjallar um það þegar norðanmenn sækja suður yfir heiðar og ráðast á Þverhlíðinga. Glöggir menn töldu sig þar þekkja ýmsa val- inkunna sómamenn af lýsingu Þor- steins. ótrúlegt þykir að unglingur skuli hafa svo gott vald á íslenskri tungu sem raun ber vitni. Rímna- bálkur þessi hefur aldrei á prent far- ið. mm/ Ljósm. Anna Hallgrímsdóttir Sóttu greni í Réttarskóg Á Breiðinni á Akranesi. Ljósm. Jónas H Ottósson. Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness Þórarinn frá Hamri las úr óbirtum rímum eftir bróður sinn

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.