Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 26

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 26
454 LÆKNAblaðið 2018/104 Læknablaðið kallaði eftir greinum um menntun lækna í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Það er útbreidd skoðun að kennsla í greinum þar sem verklegur þáttur er stór, sé hann eitthvað sem gerist af sjálfu sér, það lærist sem fyrir lærlingunum sé haft. Því þurfi ekkert sérstakt skipulag eða stjórnun þar sem þannig háttar til. Þar sem kennsla er heldur ekki sérlega hátt skrifuð í Háskóla Íslands (lítill merit í sjálfu sér) og stjórnun enn síður, er eðlilegt að stjórnun og skipulagning læknanemakennslu „gefi ekki marga punkta“ í starfsmati. Það er því með ákveðinni auðmýkt sem ég skrifa þennan pistil. Við Óttar Guðmundsson rituðum saman í Læknablaðið (2014; 100: 152-6, 159-65) um læknanám í 100 ár, Óttar um þau fyrstu 70 af sinni alkunnu ritsnilld og sagnfræðiþekkingu, en ég reyndi síðan að gera grein fyrir þeim breytingum sem hafa orðið á síðustu 30 árum. Í pistlinum var gerð grein fyrir upptöku nýs inntökuprófs, vísindaverkefnum á 3. námsári, valtímabili á 6. ári, eflingu samskiptafræði, upptöku CCSE (Comprehensive Clinical Science Examination) frá National Board of Medical Examiners (NBME, Bandaríkjunum) auk smærri lagfæringa í námsskrá læknadeildar HÍ. „andlega og líkamlega hraustir“ Í „Lestrar- og kennsluáætlun fyrir Læknadeild Háskóla Íslands“ frá 1913 má finna nokkrar almennar leiðbeiningar. Þar segir: „Stúdentar, sem hafa í hyggju að nema læknisfræði ættu að gera sér það ljóst að læknisstarf er þeim einum hent, sem eru andlega og líkamlega hraustir.“ Síðar eru ábendingar um hvernig vinna megi úr tímaskorti, sem þá þegar virðist hafa valdið nokkrum áhyggjum. „Úr tímaskortinum má nokkuð bæta hvað þetta snert- ir, ef aldrei er annað lesið en ágætis bækur“. Og að lokum er tekið fram að: „Nauðsynlegt er að taka sjer nokkrar frístundir á degi hverjum. Nokkrum hluta þeirra ætti að verja til íþrótta, og í leyf- um er þeim tíma vel varið, sem gengur til þeirra.“ Frá 1987 hefur þetta breyst svolítið og síðan þá segir í Kennsluskrá: „Við útskrift skulu læknakandídatar búa yfir nýj- ustu þekkingu í læknisfræði (knowledge), hafa tileinkað sér fagmannlega afstöðu (attitude) til starfs síns og sjúklinga sinna og hafa öðlast færni til að hagnýta þekkingu sína til hagsbóta fyrir skjólstæðinga sína (skills). Þeir skulu geta tekist á við frek- ari þjálfun sem læknar og/eða vísindamenn með skipulagðri leiðbeiningu og eftirliti og hafa ekki glatað neinum möguleikum hvað varðar val á framhaldsnámi.” International Association for Medical Education Á síðustu 30 árum hafa samtök læknaskóla um allan heim verið að eflast og tengjast tryggari böndum. Þar er meira samstarf og meiri samnýting reynslu og þekkingar. Þessi þróun hefur að- allega gerst undir forystu AMEE (International Association for Medical Education). Þá hefur verið einnig mismikið líf í World Federation for Medical Education (WFME), sem hefur þó á síð- ustu árum farið vaxandi í góðu samstafi við AMEE. Þriðji stóri áhrifavaldurinn er bandaríska heilbrigðiskerfið, í nánu samstarfi við læknaháskólana, þar sem settir hafa verið fram staðlar sem gilda fyrir bandaríska læknaskóla sem þurfa úttekt frá LCME (Liaison Committee on Medical Education). Svo hafa verið sett- ar fram sambærilegar kröfur um getu, kunnáttu og bakgrunn þeirra lækna sem koma til Bandaríkjanna í framhaldsnám og þar með óbeint til þeirra skóla og þeirra heilbrigðiskerfa sem þeir koma frá. ECFMG (Educational Commission for Foreign Medical Graduates) hefur annast framkvæmd þessa verkefnis. Nú er stefnt að því að árið 2023 verði komið á alþjóðlegri viðurkenningu læknaskóla og eru það ofantaldir aðilar sem standa að því verkefni. Í yfirliti WFME segir að þetta verkefni gangi vel í Bandaríkjunum og Asíu en Evrópa sé mun skemmra á veg komin. Er þar kennt um tungumálaerfiðleikum auk þess sem Af læknanámi Kristján Erlendsson læknir dósent – kennslustjóri læknadeildar HÍ krerlend@landspitali.is

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.