Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 30
458 LÆKNAblaðið 2018/104
Undanfarin misseri hefur mikil og góð umræða skapast um fram-
haldsmenntun lækna. Umræðan hefur bæði tengst stöðu lækna
í framhaldsnámi gagnvart nýlegum reglugerðarbreytingum og
almennum forsendum, gildum og möguleikum framhaldsnáms
hér. Óhætt er að segja að skoðanir og sjónarhorn eru misjöfn.
Tilgangur þessarar greinar er að skýra stöðu, möguleika og sam-
hæfða stefnu áframhaldandi uppbyggingar framhaldsmenntunar
lækna á Íslandi.
Hægt hefur verið að læra læknisfræði á Íslandi allt frá því á
seinni hluta 19. aldar1 en framhalds- og undirsérgreinanám hefur
að langmestu leyti átt sér stað erlendis. Flestir almennir læknar
verja þó einhverjum árum við vinnu á Íslandi áður en haldið er
utan. Þessi tími hefur að vissu leyti nýst til aðlögunar að íslensku
heilbrigðiskerfi og undirbúningi og reynslu fyrir frekara sérnám.
Þessi hópur lækna er og verður í vaxandi mæli einn mikilvægasti
og verðmætasti starfskraftur heilbrigðiskerfisins.
Reglugerðarbreytingar og uppbygging
Framhaldsnám í lækningum á sér áhugaverða sögu og hefur ver-
ið í umræðunni áratugi.2 Áhugavert er að skoða greinar um efnið
frá seinni hluta síðustu aldar, þar sem vangaveltur fólks eru í
raun þær sömu og liggja til grundvallar núverandi uppbyggingu.3
Skipulagt framhaldsnám í almennum lyflækningum hófst á
sameinuðum Landspítala fyrir nær tveimur áratugum.4 Fullt
framhaldsnám í heimilislækningum og geðlækningum hefur
verið mögulegt um árabil og er áfram í styrkum vexti.5,6 Án þessa
bakgrunns hefði núverandi uppbygging aldrei verið möguleg.
Fram til 2015 gátu störf talist til sérfræðiréttinda, óháð
því hvort um var að ræða skipulagt framhaldsnám eða ekki.
Með tilkomu reglugerðar 467/20157 breyttist þetta. Nú er
gerð skýr krafa um að ef tími skuli teljast til sérfræðiréttinda
verði hann að falla undir skilgreint framhaldsnám, sam-
kvæmt viðurkenndri marklýsingu og á kennslustofnun sam-
Tómas Þór Ágústsson
Sérfræðilæknir
í almennum lyflækningum og
innkirtlalækningum og formaður
Framhaldsmenntunarráðs
lækninga á Landspítala
tomasa@landspitali.is
Framhaldsmenntun lækna á Íslandi
Mynd 1. Dæmi um heildstætt og tæmandi matskerfi framhaldsnáms í lækningum.
Til viðbótar við hefðbundna kennslu með fyrirlestrum og í tengslum við dagleg störf er lögð áhersla á að allir þættir viðkomandi marklýsingar séu metnir og að
sem allra flest kennslutækifæri séu nýtt með þar til gerðum matsaðferðum. Megintilgangur matskerfisins er að veita sérnámslækni skilvirka og gagnlega endur-
gjöf. Matskerfið er þannig fyrst og fremst tæki til náms.
CbD: Case Based Discussion, Mini-Cex: Mini Clinical Exercise, DOPS: Direct Obesrvation of Procedural Skills, QIPAT: Quality Improvement Project
Assessment Tool, MSF: Multi Source Feedback/360° mat, TO: Teaching Observation