Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 42

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 42
470 LÆKNAblaðið 2018/104 Björn Guðbjörnsson1 Jón P. Einarsson2 Andrés Magnússon2 Ólafur B. Einarsson2 1Rannsóknarstofu í gigtarsjúkdómum, Landspítala og læknadeild Háskóla Íslands, 2Embætti landlæknis. Fjöldi erlendra rannsókna sýnir að umtals- verður samfélagslegur ávinningur er af markvissri meðferð til varnar beinþynn- ingarbrotum, sérstaklega meðal þeirra einstaklinga sem eru í aukinni áhættu á beinbrotum næstu 10 árin.1,2 Þá liggja fyrir rannsóknir sem styrkja klíníska leit meðal 65 ára kvenna og 72 ára karla sem eru í aukinni brotaáhættu vegna beinþynningar.2-4 Brotaáhætta tvöfaldast strax eftir fyrsta beinbrot hjá öldruðum og annað beinbrot verður oft innan eins árs.5 Þess vegna hafa mörg lönd lagt áherslu á sérstaka þjónustu fyrir þá sem hafa brotn- að vegna beinþynningar. Þessi þjónusta er kölluð Fracture Liaison Service (FLS) og hefur Landspítali tekið upp þetta verklag með sérstakri þjónustueiningu sem nefnd hefur verið Grípum brotin6 og Sjúkrahúsið á Akureyri rekur einnig sérfræðiþjónustu við þennan sjúklingahóp. Áætlað hefur verið að 1200-1400 einstaklingar brotni árlega hér á landi vegna beinþynningar en margir hljóta fleiri beinbrot í sömu byltunni og/eða fleiri brot á sama ári. Því má ætla að bein- þynningarbrotin séu allt að 1800-2000 á ári hér á landi.7 Beinbrot hafa í flestum tilfellum alvarlegar afleiðingar fyrir þann sem brotnar. Nýleg íslensk rannsókn sýndi að nærri þriðjungur þeirra sem mjaðmabrotna látast á innan við ári vegna fylgikvilla brotanna, en það er áttföld dánartíðni jafnaldra.8 Þrátt fyrir að flest lönd, þar með talið Ísland, hafi gefið út ítarlegar meðferðar- leiðbeiningar,9 og beinþéttnimælar á Vesturlöndum séu af fullkomnustu gerð (hérlendis eru þrír fullkomnir beinþéttni- mælar: á Landspítala, Sjúkrahúsi Akureyr- ar og Hjartavernd) er einstaklingum með sögu um beinbrot af völdum beinþynn- ingar samt ekki tryggð virk beinverndandi lyfjameðferð. Erlendar rannsóknir sýna að innan við þriðjungur kvenna með beinþynningarbrot fá formlegt áhættumat og boð um lyfjameðferð.10 Auk þess er meðferðarheldni þeirra sem fá meðferð oft á tíðum ábótavant, en talið er að með- ferðarheldni þurfi að vera yfir 80% til þess að fá ávinning af bisfosfónatmeðferð.11 Sá samfélagslegi ávinningur sem ætti að vera af beinverndandi meðferð er þá fyrir bí. Þess vegna er áhugavert að skoða hvernig beinverndandi lyf eru notuð hér á landi. Á mynd 1 má sjá fjölda daglegra LYFJAMÁL Tryggjum árangursríka beinverndarmeðferð Læknadagar 2019 – í Hörpu Læknadagar verða haldnir dagana 21.- 25. janúar 2019, - takið dagana frá. Árhátíð Læknafélags Íslands verður laugardaginn 26. janúar. Mynd 1. Myndin sýnir fjölda daglegra skammta af bisfosfónötum (RDD) á Íslandi á tímabilinu 2003-2015.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.