Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 40

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 40
468 LÆKNAblaðið 2018/104 „Stundum láta læknar eins og þeir viti allt um lækningar, en ég get aðeins sagt að eftir því sem við vitum meira um lækningar þeim mun auðmýkri verðum við. Við vitum að við höfum fjölda með- ferða sem virka, en ég stæði mig vart ef ég héldi því fram að við vissum ná- kvæmlega hvað við erum að gera. Ég get fullvissað ykkur um að eftir 40 ár gerum við hlutina allt öðruvísi en nú,“ segir hinn farsæli Harvard-prófessor Ronald G. Tompkins, MD, ScD og deildarstjóri skurðlækninga á Massachusetts General Hospital. Hann á að baki afar farsælan feril, stofnaði og stýrði til að mynda bæði Miðstöð skurðlækninga, vísinda og líf- verkfræði (Center for Surgery, Science and Bioengineering) og Miðstöð verkfræði í lyflækningum (Center for Engineering in Medicine) á Mass General. Hann hefur meðal annars afrekað að finna leið til að lækka dánartíðni vegna brunasára. Rannsóknin sem hann leiddi uppskar ein stærstu verðlaun læknasamfélagsins í Bandaríkjunum. Hann hefur tryggt verkefnum sínum yfir 200 milljónir dala styrkveitingar. Tompkins á yfir 450 fræði- greinar að baki. „Læknar eiga alltaf að vera á tánum. Alltaf að læra. Það á að vera keppikefli þeirra. Við verðum að vera auðmjúk, viðurkenna það sem við vitum ekki og vera fullkomlega opin fyrir því að læra meira. Það er skoðun mín. Við getum einfaldlega ekki varið aðra skoðun en þá,“ segir hann. Í öflugu tengslaneti Tompkins var meðal þeirra skurðlækna sem heimsóttu Ísland um miðjan septem- ber á árlegri ráðstefnu. Tómas Guðbjarts- son hjartaskurðlæknir og Dagný Heiðdal voru gestgjafarnir. Allt frá upphafi hefur hópurinn verið þröngur. Fundirnir ná aftur til seinni heimstyrjaldarinnar. Þá samanstóð hann af breskum, skandinav- ískum og bandarískum skurðlæknum, segir Tompkins, en á síðustu 20 árum hafi skurðlæknar allsstaðar að orðið hluti af hópnum. Tompkins var á árum áður ritari hópsins. „Ráðstefnur sem þessar eru afar mikil- vægar fyrir lækningar. Tengsl og spjall um það sem er efst á baugi hverju sinni hjálp- ar okkur að ná árangri.“ Miðlar af þekkingu sinni Sjúkdómurinn ME/CFS (ME: myalgic encephalomyelitis, þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, eða vöðvaverkja-, heila- og mænubólga, CFS: chronic fatigue syndrome, síþreyta) á hug hans allan en nýverið tóku Harvard og Stan- ford sig saman um að komast til botns í þessum óræða sjúkdómi. ME/CFS- rannsóknarmiðstöðin fékk í maí 1,8 millj- ónir dollara í styrktarfé til að kafa ofan í málið. „ME/CFS er áhugaverður sjúkdómur. Mjög flókinn og líður fyrir þá staðreynd að hafa ekki lífmerki (biomarker). Hann hefur miklar afleiðingar og við honum er engin lækning,“ lýsir Tompkins. „Margir læknar hafa efast um að þetta sé raunverulegur sjúkdómur eða að hann sé til, þar sem lífmerki skortir. Í augum efasemdalækna er því spurt hvort sjúk- dómurinn sé eingöngu hugarástand,“ segir hann. „Það hefur valdið mörgum hugarangri í áranna rás og því afar fáir sérfræðingar sem fást við þessa sjúklinga.“ Sjúkdóms- einkennin eru meðal annars þróttleysi, þokukennd hugsun og taugaheilbrigðis- röskun. Fókus settur á að finna lausn Tompkins segir að áhugi hans á sjúk- dómnum hafi kviknað vegna sambands hans við prófessor í Stanford, Ron Davis, sem hann hefur unnið með í áratugi í gegnum Opnu lækningamiðstöðina (Open Medicine Foundation). „Ég hef reynslu af bólgum og efnaskipt- um eftir slys en Dr. Davis er drifinn áfram af þeirri bitru staðreynd að eini sonur hans, sem á þrítugsaldri, er þungt haldinn af sjúkdómnum. Ég hef því bæði ráðfært mig við hann persónulega og faglega. Ég hef tekið þátt í samræðum og fyrirlestrum þar sem farið er yfir þau gögn sem finnast um þessi tilvik. Mér er það ljóst að bólgur og efnaskipti spila stórt hlutverk,“ segir Tompkins. „Þau stuðla að þessum sjúk- dómi sem hefur svo mörg einkenni.“ Tompkins segir að þrátt fyrir að það séu yfir 10.000 deildir í læknaskóla Harvard hafi sérfræðingar skólans ekki fyrr tekið höndum saman um að skoða málið. „Þegar svona öflugar stofnanir með fjölda hæfra sérfræðinga ákveða að vinna saman, safna gögnum og einblína á að gera sitt, fæst niðurstaða sem skiptir máli.“ Horfir fram á við ekki aftur En hvers vegna núna? Tompkins segir að hann hafi aðeins nýlega heyrt af þessum tilvikum. Spurður hvort rétt sé að læknar hafi haft fordóma gegn þessum sjúkling- um með óútskýrð veikindi svarar hann: „Ég horfi ekki til fortíðar. Ásökun hjálpar ekkert og er engum til framdráttar. Ég hef heyrt af því að hver bendi á annan, en ég Læknar vita ekki allt um lækningar – segir Harvard-prófessorinn og verðlaunalæknirinn Ronald G. Tompkins ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.