Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 28

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 28
456 LÆKNAblaðið 2018/104 Rannsóknarverkefni 3. árs hefur verið rekið frá háskólaárinu 1993/1994 með miklum ágætum af rannsóknarnámsnefnd. Þannig hafa um 750 nemendur kynnt rannsóknarverkefni sín og birt út- drætti í Læknanemanum. Þessi þáttur læknanámsins er sniðinn að forskrift Yale-læknaskólans en þar hefur þetta verið gert frá árinu 1839. (Þeir settu að vísu á stofn sérstakt vísindarit til að birta af- rakstur þessa námshluta; Yale Journal of Biology and Medicine (1928) („... a place for medical students to publish their data“.) Samskipti og siðfræði Á síðustu árum hafa verið byggð upp námskeið í mannlegum samskiptum, siðfræði og samskiptum læknis og sjúklings. Sá þáttur verður mikilvægari með hverju árinu með hröðum tækniframförum og þjóðfélagsbreytingum. Þar er fjallað um fag- mennsku og mikil áhersla lögð á teymisvinnu. Þá hefur deildin verið opin fyrir að prófa nýjungar í kennslu og námsmati og hafa prófessorar verið í fararbroddi hvað það varðar. Þannig hefur verið fest í sessi vandamiðuð nálgun (PBL) og stöðvapróf (OSKE) og vendikennsla og aðferðir gagnvirkrar kennslu er verið að prófa. Þá eru Landspítali og hjúkrunarfræði- deildin að byggja upp Færnibúðir (skills labs) sem koma til með að breyta miklu um klíníska kennslu. Ný námskeið í móttökuvikum 1. árs; „Að verða/vera læknir“ og vika um bráðaviðbrögð (Bjarg- ráður) lofa góðu. Þar er til dæmis einn dagur helgaður öðrum heilbrigðisstéttum þar sem koma fulltrúar þeirra, segja frá námi sínu og starfi og samvinnu þeirra við lækna. Þá hafa samskipti við fulltrúa stúdenta farið vaxandi, þeir unnið sérstök verkefni og kannanir og hjálpað þannig til við að gera námið markvissara og viðráðanlegra. Á þessum síðustu áratugum hefur læknadeild lagt ríka áherslu á að laga námið að breyttum þjóðfélagsaðstæðum og breyttum kröfum til heilbrigðisþjónustu. Kannanir benda til þess að almennt sé ánægja með fyrirkomulag námsins. Heilbrigðis- stofnanir njóta bættrar menntunar læknanema og öflug menntun kandídata kemur heilbrigðisþjónustinni til góða. Það er hins vegar nauðsynlegt að halda þessu alltaf áfram og bæta í. Nú er verið að undirbúa fjórðu formlegu breytinguna á þessu tímabili. Þar verður lögð áhersla á eftirtalda þætti: Læknir framtíðarinn- ar, Personalized medicine (einstaklingssértæk læknisþjónusta), þverfaglegt samstarf, menntun og vísindi, menntun og vísindi sem undirstaða gæða og þróunar heilbrigðisþjónustu, MDPhD og Alþjóðlegur samanburður. Mikil umræða er á alþjóðavettvangi um aukin tengsl milli grunngreina og klínískra greina og verður reynt að sinna þessu í næstu endurskoðun. Auk þess verður að skapa pláss fyrir tækninýjungar sem koma fram með ógnarhraða, en jafnframt að leggja áherslu á hið mannlega og mannlegu samskiptin, sam- skiptafræði og siðfræði. Öll þessi atriði voru tekin fyrir á nýjasta AME-þinginu þannig að ákveðið jafnvægi haldist og aukist milli tæknilegrar þróunar og áherslu á mannleg samskipti í lækna- náminu. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki Þegar horft er til spár alþjóðastofnana um það að árið 2030 muni vanta 18 milljónir heilbrigðisstarfsmanna á heimsvísu, er ljóst að leggja þarf aukna áherslu á menntun heilbrigðisstarfsmanna en ekki síður á að halda þeim í störfum sem til þeirra hafa verið menntaðir. Það er því áhyggjuefni að þegar eru komnar fram skýrslur um það að íslenska heilbrigðiskerfið sé alvarlega undir- mannað (McKinsey-skýrslan 2016). Þegar umræða um kulnun læknanema og kennara þeirra er farin að vera alvöruumræða á þingum (AMEE 2018), verður að spyrja hvaða áhrif það muni hafa á menntun lækna, en líka hvort menntun lækna verði ekki að sinna þessum framtíðarspám. Með þeim breytingum á lækna- náminu er stefnt að því að fjölga læknanemum úr 48 í 60 á næstu árum og er víða búið að meta möguleika heilbrigðiskerfisins til þess að mæta þessari fjölgun. Það eitt og sér er auðvitað ekki mikið. Það mun þó kalla á nokkuð breytta samsetningu náms, í Ljósmyndir af kennslu læknanema við Háskóla Íslands. Myndir: Kristinn Ingvarsson.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.