Læknablaðið - okt. 2018, Side 32
460 LÆKNAblaðið 2018/104
viðurkennt nám, hvorki hér á landi né annars staðar. Það er því
umhugsunarefni að slíkar ráðningar fari enn fram, hvort sem það
er í kjölfar kandídatsárs eða í framhaldi annars framhaldsnáms.
Mikilvægt er að þeir almennu læknar sem í slíkum stöðum eru,
hafi fullan skilning á mögulegu mikilvægi og afleiðingum.
Skipulag framhaldsmenntunar og staða sérgreinna
Eina raunhæfa og örugga leiðin til að tryggja að tími almennra
lækna á Íslandi nýtist, er því að hann sé innan skipulagðs fram-
haldsnáms. Til að nám standist alþjóðlegar nútímakröfur verður
það að byggja á viðurkenndri marklýsingu, hafa vel skilgreind
og heilsteypt mats- og handleiðslukerfi (mynd 1), ásamt form-
föstum leiðum til mats á framgangi, byggðu á ofangreindum
kerfum. Slíkt hefur nú þegar verið innleitt innan margra stærstu
sérgreina lækninga á Íslandi með góðum árangri. Til þess höfum
við greinilega fulla burði (töflur I og II). Almennum læknum er
einungis óleikur gerður ef umhverfið hér fylgir ekki þessari al-
þjóðlegu þróun. Upplýsingar um framhaldsnám af bestu gæðum
sem fylgja læknum héðan til frekara framhaldsnáms bera bæði
þeim sjálfum og stofnunum okkar mikilvægan og góðan vitnis-
burð. Kröfur um vel skilgreind og skrásett hæfniviðmið verða sí-
fellt almennari og samhæfðari, sama hvert í heiminum er haldið.
Það væri ábyrgðarleysi gangvart ungum læknum að fylgja ekki
þessari þróun.
Mikilvægi framhaldsmenntunar
Virkt framhaldsnám innan veggja kennslusjúkrahúss ætti að
vera vísindastarfsemi frjór jarðvegur. Uppbygging framhalds-
menntunar með bættu skipulagi og innviðum, ásamt vaxandi
áherslu á menntun og kennslu í daglegum störfum skapar
tækifæri til að tvinna þessa grunnþætti læknisstarfsins saman
á skipulagðari og skilvirkari hátt en áður. Unnið verður að því
áfram að þróa skilgreinda og skipulagða möguleika á rann-
sóknartengdu framhaldsnámi á næstu misserum.
Þróun og innleiðing framhaldsmenntunar er langtímaverkefni
og kemur að nýliðun sérfræðilækna á Íslandi á margvíslegan hátt.
Við erum ekki einungis að framleiða sérfræðlækna framtíðarinn-
ar, heldur einnig þróa það umhverfi og menningu sem fólk býst
við og leggur metnað sinn í á Íslandi til framtíðar. Ég reikna með
að sérfræðilæknar framtíðarinnar vilji snúa til baka á stofnanir
þar sem þeir vita að fram fer nám og framhaldsnám af bestu
alþjóðlegu gæðum, og hlakki til að taka þátt í þeirri vinnu. Við
störfum í samhengi alþjóðlegrar samkeppni um hæfasta starfs-
fólkið, sem við verðum að standast til framtíðar. Heilbrigðisstofn-
anir á Íslandi verða að standast þessa samkeppni áfram.
Vissulega er sú reynsla og þekking sem sérfræðilæknar koma
með heim frá mismunandi stöðum styrkur fyrir íslenskt heil-
brigðiskerfi og læknastéttina. Hins vegar má ekki gleyma því
að læknavísindin þróast sífellt hraðar, samsetning samfélagsins
breytist og heimurinn minnkar. Þekking eða vinnulag sem við
kynnumst í sérnámi er því miður oft orðið úrelt örfáum árum
eftir að heim er komið. Virkt framhaldsnám þar sem stór hluti
vinnunnar er unninn af læknum í metnaðarfullu námi sam-
kvæmt uppfærðum alþjóðlega viðurkenndum marklýsingum
og eru jafnvel að læra fyrir krefjandi alþjóðleg próf, gjörbreytir
þessu umhverfi. Sérfræðilæknar fá þannig einnig vissa sí-
menntun og þurfa að halda í við þekkingarþróunina. Hér þarf
að nýta hvort tveggja, reynsluna að utan en einnig tryggja að ný
þekking þróist stöðugt hér heima fyrir. Skipulagt metnaðarfullt
framhaldsnám á Íslandi kemur alls ekki í veg fyrir að læknar
komist í frekara sérnám í útlöndum, þvert á móti styrkir það þá í
alþjóðlegri samkeppni.
Það hefur varla farið framhjá neinum að álag á heilbrigðiskerf-
ið og þau verkefni sem við fáumst við hafa þróast og breyst, sem
tengist bæði breytingum á aldurssamsetningu þjóðarinnar og
þróun læknavísindanna. Þörfin fyrir hæft vinnuafl sem sinnt get-
ur almennum en oft á sama tíma fjölþættum vandamálum hefur
aukist og mun halda áfram að aukast. Hér er alls ekki um sér-
íslenskt vandamál að ræða. Ein leið sem margar þjóðir hafa farið
til að bregðast við þessum vanda er að auka áhersluna á breitt
almennt grunnsérnám í stærstu heilbrigðisgreinum til að tryggja
viðeigandi vinnuafl til framtíðar.9 Rökstyðja mætti að í litlu sam-
félagi eins og Íslandi sé þetta jafnvel enn mikilvægara.
Ómögulegt er að veita fullnægjandi framhaldsnám ef heil-
brigðisþjónustan þar sem námið fer fram er ekki örugg og af
nægum gæðum. Þessir þættir eru samtvinnaðir og óaðskiljan-
legir og endurspeglast vel í þeim alþjóðlegu stöðlum sem meðal
annars hafa nú þegar verið notaðir til úttekta á framhalds-
menntunarprógrömmum á Íslandi.10 Uppbygging og framkvæmd
staðlaðs framhaldsnáms af bestu gæðum er því ein leið til að
tryggja góða heilbrigðisþjónustu. Ég get með nokkru öryggi stað-
hæft að þetta er einmitt reynslan innan þeirra greina þar sem
slíkt formfast framhaldsnám hefur verið innleitt á undanförnum
árum. Vinnuumhverfi, áherslur, þekking og metnaður samstarfs-
fólksins breytist. Mikilvægi þessa má ekki vanmeta. Í mörgum
greinum er einnig gerð formleg krafa um þátttöku sérnámslækna
í gæða- og umbótastarfi, sem styrkir enn frekar þetta umhverfi.
Stefna
Stefna okkar er því að þróa og veita breitt grunnsérnám í stærstu
sérgreinum sem sniðið er að íslensku umhverfi með það fyrir
augum að við getum raunverulega sinnt mikilvægasta hlutverki
okkar, að halda þjóðinni sem heilbrigðastri í nútíð og framtíð. Í
dag þýðir þetta í flestum greinum tveggja til þriggja ára grunn-
nám áður en haldið er annað í undirsérgreinarnám.
Nú þegar er möguleiki á fullu sérnámi í geðlækningum og
heimilislækningum á Íslandi. Við stefnum ekki að sérnámi í
undirgreinum annarra stærri greina. Ég reikna með að allir séu
sammála um að sérnám í til dæmis innkirtlalækningum eða
brjóstholsskurðlækningum væri óráðlegt á Íslandi í dag. Það er
hins vegar mjög mikilvægt að skilja þessa aðgreiningu stærri og
smærri greina. Við höfum ágæta burði til að þróa fullt sérnám í
almennum þáttum stærri greina, svo sem almennum lyflækning-
um og bráðalækningum. Slíkt gæti reyndar orðið nauðsynlegt til
að uppfylla ofangreindar þarfir fyrir starfskraft. Gæði og kröfur
slíks náms er stærsta áskorunin og verður slíkt best unnið í nánu
samstarfi við erlenda aðila.