Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Síða 33

Læknablaðið - okt. 2018, Síða 33
LÆKNAblaðið 2018/104 461 Samantekt Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil og hröð þróun í uppbyggingu framhaldsnáms á Íslandi. Stór hluti þessarar vinnu hefur átt sér stað í náinni samvinnu við sumar virtustu stofnanir heims á þessu sviði (tafla I og II). Gæði þessa náms sem hér fer fram eru þannig síst minni er gerist í nágrannalöndum okkar. Mikilvægt er að þessi vinna fari ekki í súginn vegna metnaðar- eða skilningsleysis heldur haldi áfram að þróast á eðlilegan hátt. Unnið verður áfram að styrkingu innviða og auknum stuðningi við verkefnið. Gengið verður úr skugga um að allt framhaldsnám sem hér fer fram standist íslenskar og alþjóðlegar reglugerðir og lög. Mikilvægast er þó að allir hlutaðeigandi aðilar horfi raun- verulega til framtíðar með það fyrir augum að tryggja að við get- um áfram veitt viðeigandi heilbrigðisþjónustu af hæstu gæðum á Íslandi. Þar verður viðeigandi framhaldsnám algerlega nauðsyn- legur hlekkur, og verður að skipa tryggan sess í stefnumótun stjórnvalda varðandi heilbrigðismál til framtíðar. Framhalds- menntunarráð lækninga vinnur nú að þessu með áframhaldandi styrkingu og þróun innviða, þar með talið mats- og hæfisnefnd, í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld. Heimildir 1. Magnússon MK. Læknaskóli í 140 ár. Læknablaðið 2016; 102: 537. 2. Ólafsdóttir IS, Sævarsdóttir S, Pálsdóttir K, Petersen H, Baldursson Ó. Afstaða unglækna og læknanema til sérfræðináms á Íslandi. Læknablaðið 2005; 91: 511-4. 3. Þjóðleifsson B, Þorsteinsson SB, Benjamínsson E. Greinagerð um framhaldsnám í almennun lyflækningum á Íslandi. Læknablaði 1980; 66: 85–7. 4. Haraldsson Þ. Framhaldsnám í lyflækningum við Landspítala: Fyrstu deildarlæknarnir útskrifaðir. Læknablaðið 2004; 90: 856. 5. Sigurjónsson H. Vandað sérnám í heimilislækningum. Viðtal við Ölmu Eir Svavarsdóttur. Læknablaðið 2008; 94: 222-5. 6. Sigurjónsson H. Breytingar á sérfræðinámi í geðlækningum. Viðtal við Pál Matthíasson. Læknablaðið 2009; 95: 370-3. 7. Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi. | Reglugerðir | Reglugerðasafn [Internet]. reglugerd.is/ reglugerdir/allar/nr/467-2015 - ágúst 2018. 8. Líndal Þ. Um stjórnarskrárvernd atvinnuréttinda á grundvelli atvinnufrelsis- og eignar- réttaákvæða íslensks og dansks réttar. VANTAR ÁRTAL:130. 9. shapeoftraining.co.uk/static/documents/content/Shape_of_training_FINAL_Report. pdf_53977887.pdf - ágúst 2018. 10. gmc-uk.org/-/media/documents/Promoting_excellence_standards_for_medical_education_ and_training_0715.pdf_61939165.pdf - ágúst 2018. Unglæknirinn Karl Andersen í sigti Morgunblaðsins árið 1990 og umfjöllunarefnið of mikið vinnuálag aðstoðarlækna: „Það er erfitt að eiga marga „sjúrnala“ eftir undir morgun. Maður hugsar ekki skýrt eftir 20 tíma vöku.“ Hjúkrunarfræðingarnir Arndís Jónsdóttir og Kristín Aðalsteinsdóttir spjalla við Sigurð Guðmundsson lyflækni, og aðstoðarlæknirinn Karl Andersen er í símanum að greiða úr verkefnum dagsins. Myndirnar tók Sverrir Vilhelmsson fyrir Morgunblaðið. „Blaðamaður fær sér sæti í afdrepi starfsfólks á slysadeild. Nokkuð sér- stök aðstaða með sjónvarpi, kaffikrók og sérhannaðri viftu til að nema tóbaksþefinn á brott frá vitum þeirra sem reykja ekki. Þetta er hinn huggulegasti staður og nokkurs konar félagsmiðstöð starfsfólksins. Þar skiptast menn á skoðunum. Þarna eru samankomnir þrír læknar, þar af einn í kurteisisheimsókn. Blaðamaður kemur sér strax að efninu og spyr þá út í vinnu ungu læknanna, aðstoðarlæknanna. Það skal viðurkenn- ast að spurningin var eilítið leiðandi, en gerði sitt gagn og kom af stað hröðum og hnitmiðuðum orðaskiptum: „Vinnuálagið hefur alltaf verið svona. Það er bara nýtt að menn kvarti," segir sá fyrsti. „Þeir vinna sem þrælar núna, en voru guðir í eina tíð," segir annar og er greinilega ósáttur við harða afstöðu félaga síns, sem minnist þess alls ekki að hafa verið í guðatölu. „Maður var eins og vinnudýr," bætir sá þriðji við, en fær ekki fulllokið máli sínu fyrir þeim sem fyrstur var til svars, sem segist aldrei hafa kynnst annarri eins vinnuþrælkun og í Svíþjóð á sínum tíma. „En maður fékk þó borgað fyrir," segir sá þriðji og stendur upp.“ Úr grein Kristjáns Þorvaldssonar sem bar heitið „Svefnvana sinna þeir sjúklingunum“ en yfirskriftin var „Langþreyttir sjúkrahúslæknar“. Morgunblaðið 25. febrúar 1990.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.