Læknablaðið - okt. 2018, Síða 35
LÆKNAblaðið 2018/104 463
Í pistlunum Úr penna
stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar
eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson
formaður
Magdalena Ásgeirsdóttir
ritari
Björn Gunnarsson
gjaldkeri
Guðrún Ása Björnsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
María Soffía Gottfreðsdóttir
Ólafur Ó. Guðmundsson
Stjórn
Læknafélags
Íslands
Jóhanna Ósk
Jensdóttir
sérfræðingur í
heimilislækningum
jojensdottir@gmail.com
Betri sjúkraflutninga
Nýlega kom út skýrsla, „Aukin aðkoma þyrlna að
sjúkraflugi“, unnin af vinnuhópi skipuðum af vel-
ferðarráðuneytinu. Einhver umræða hefur verið um
niðurstöðuna en hún hefur þó ekki farið hátt.
Niðurstaða nefndarinnar er að auka þurfi
sjúkraflutninga með þyrlum. Meirihluti nefndar-
innar, 5 aðilar, ráðleggja að sú leið sé valin að
styrkja Landhelgisgæsluna frekar til þess að sinna
því verkefni með auknum fjárframlögum, meðal
annars til þess að bæta við áhöfnum á þær þyrlur
sem þegar eru og verða í notkun. Það vekur athygli
að þeir nefndarmenn sem sinna klínískri vinnu
með skjólstæðingum telja aðra leið betri, þá leið að
sérstakri sjúkraþyrlu verði komið á fót með stuttum
útkallstíma og sérhæfðum mannskap, staðarvakt
með lækni og bráðatækni eða hjúkrunarfræðing,
og að slík þyrla yrði staðsett í samræmi við þörf á
utanaðkomandi bráðaþjónustu og hraðari sjúkra-
flutningum.
Ég er sammála því að auka eigi sjúkraflutninga
með þyrlu og ég er sammála því að það eigi að gera
með sérstökum sjúkraþyrlum staðsettum á fyrir-
fram ákveðnum álagspunktum á landinu þannig
að hægt sé að þjónusta sem stærstan hluta lands-
byggðar og dreifbýlis á sem stystum tíma. Ég ber
mikla virðingu fyrir Landhelgisgæslu Íslands en ég
tel að hennar kröftum sé betur varið í það hlutverk
sem hún sinnir nú þegar af miklum ágætum, leit og
björgun, sjúkraflutningar falla ekki þar undir. Auk
þess er bent á það að þyrlur Landhelgisgæslunnar
eru ekki sérstaklega útbúnar til sjúkraflutninga né
hefur áhöfn hennar að aðalstarfi umönnun veikra
og slasaðra.
Í dag er sjúkraflutningum sinnt á sjúkrabílum,
með sjúkraflugi og einstaka sinnum með aðstoð
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fyrir þann hluta Ís-
lendinga sem býr á stórhöfuðborgarsvæðinu skiptir
þetta litlu máli, sjúkraflutningar í Reykjavík taka
í flestum tilfellum minna en 10 mínútur og er
sjúkrabíll þess vegna mjög viðeigandi flutnings-
máti. Fyrir landsbyggðina er þetta stórmál, sjúkra-
flugvél er eðli málsins samkvæmt ófær um að lenda
á nema örfáum stöðum á landinu og þyrla Land-
helgisgæslunnar er eingöngu kölluð út í algjörri
neyð. Sjúkraflutningar í sjúkrabíl á landsbyggðinni
eru háðir því hvort á svæðinu búi fólk sem hefur
reynslu af sjúkraflutningum og umönnun veikra
og hvort það fólk hefur tök á að vera á endalausri
bakvakt og fá lítið borgað fyrir það. Auk þessa
hefur undanfarin ár verið mjög erfitt að manna
læknastöður á landsbyggðinni, fastráðnir læknar
fást nánast ekki og erfiðara er að manna stöður
með verktöku. Það eru margar og mismunandi
ástæður fyrir því að illa gengur að fá lækna til þess
að starfa eina eða fáa saman á dreifbýlu svæði þar
sem allar tegundir veikinda og slysa geta orðið að
þeirra ábyrgð. Eflaust myndi það hafa mikil áhrif
ef læknir í einmenningshéraði vissi að þegar mjög
bráð veikindi ber að eða þegar erfiðar aðstæður,
slys eða veikindi, koma upp sem hann er óvanur
að meðhöndla geti hann kallað í þyrlu með stuttan
útkallstíma og sérhæfða áhöfn sér til aðstoðar. Auk
þess er mikið öryggi í því fyrir lítið byggðarlag
sem er læknislaust að vita að þyrla getur brugðist
hratt við og verið mætt með sérhæfðan mannskap á
stuttum tíma þegar ástæða er til.
Það er falskt öryggi þegar læknirinn er stað-
settur í margra kílómetra fjarlægð frá skjólstæðing-
um sínum og jafnvel fjallvegur á milli, það er
falskt öryggi þegar læknirinn er einn ábyrgur fyrir
hverju sem getur komið fyrir skjólstæðinga hans
án aðstoðar bráðaþjónustu og þeirrar reynslu sem
henni fylgir og það er falskt öryggi þegar sjúkrabíll
þarf að keyra mörg hundruð kílómetra til þess að
koma skjólstæðingi á viðeigandi sjúkrastofnun og
mönnun sjúkrabílsins er jafnvel reynslulítil. Í fram-
tíðinni verða færri læknar staðsettir á landsbyggð-
inni en fleiri læknar sem koma þangað tímabundið
til þess að sinna sjúklingum. Bráðaþjónustu verður
ekki sinnt með staðarvakt læknis á öllu landinu
og því er þörfin gríðarleg fyrir þessa auknu bráða-
þjónustu og sjúkraflutninga sem sjúkraþyrla getur
boðið upp á.
Nú er kominn tími til þess að gera stórar
breytingar á sjúkraflutningum í dreifbýlu landi
og ég vona svo sannarlega að velferðarráðuneytið
hafi kjark til þess að stíga skref inn í framtíðina í
staðinn fyrir að reyna áfram að láta gamlar aðferðir
duga með litlum breytingum. Alvöru breytingar
munu hafa góð áhrif á afdrif sjúklinga og þjónustu
við þá en ekki síður hafa góð áhrif á mönnun við-
eigandi heilbrigðisþjónustu á landinu öllu.
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í